Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 9
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Bílasala Reykjaness
Reykjanesbæ
www.bilasalareykjaness.is
419 1881
Ný kynslóð Subaru Forester er nú í fyrsta sinn búin nútíma raftækni sem
kallast e-BOXER HYBRID. Í henni sameinast kostir þverliggjandi BOXER-
vélar með einstaklega lágan þyngdarpunkt og rafmótors sem á hljóðlátan
hátt sparar eldsneyti, eykur afl og minnkar CO2 útblástur.
SUBARU FORESTER PREMIUM e-BOXER HYBRID
Sjálfskiptur, verð: 6.890.000 kr.
RAFMAGNIÐ ER
KOMIÐ Í SUBARU
ÞÚ VERÐUR AÐ PRÓFA!
NÝR SUBARU FORESTER
HYBRID
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
0
9
2
S
u
b
a
ru
F
o
re
s
te
r
e
B
o
x
e
r
5
x
3
8
f
e
b
Þetta orð, þetta nafn á landi, hefur yfir sér einstakan blæ. Von og ótta. Frelsi og fárán-leika. Gleði og sorg. Maður finnur allt í
Bandaríkjunum. Alla öfga, í allar
áttir. Bandaríkin eru úti um allt í
manns daglega lífi. Maður horfir
á bandarískt sjónvarp og bíó-
myndir. Notar bandarískar tölvur
og tölvuforrit. Les bandarískar
bækur. Og sörfar á bandarískum
fréttamiðlum. Börnin horfa á
bandaríska spéfugla á YouTube.
Okkur hjónin rak í rogastans um
árið þegar við uppgötvuðum allt
í einu að börnin okkar voru orðin
altalandi á ensku. Þau höfðu lært
á netinu. Íslenskt samfélag er
eiginlega orðið tvítyngt. Tækni-
og netmálið, og að stórum hluta
mál afþreyingarinnar, er enska, á
meðan íslenska er blessunarlega
ennþá hið daglega mál. Sum börn,
hef ég orðið var við, eru þó farin
að svissa yfir í ensku þar líka. Þá
gerist ég iðulega forn og vanda um
fyrir ungviðinu.
Alls konar áhrif
Það sem gerist í Bandaríkjunum
hefur áhrif á alla heimsbyggðina,
en líklega hafa þó Bandaríkin ein-
staklega mikil áhrif á Íslandi. Til
að skilja íslenskt samfélag, vil ég
meina, verður maður að horfast í
augu við það hvað Ísland er nálægt
Bandaríkjunum í menningu og
háttum. Við tengjum okkur mikið
við Norðurlöndin en okkur er
hins vegar tamt að líta fram hjá og
gera minna úr yfirgripsmiklum
áhrifum nágrannans í vestri.
Ef maður rýnir aðeins, birtist
myndin þó fljótt. Menningin er
eitt — sjónvarpið og það allt — en
svo eru öll hin stóru dæmin: Veiga-
miklir þættir samfélagsins eru hér
einkareknir, eins og í Bandaríkj-
unum. Björgunarsveitir, meðferð-
arúrræði, þjónusta við aldraða og
fatlaða. Á Íslandi er sterk hefð fyrir
því að fjölskyldur og frjáls félaga-
samtök annist þessa hluti. Eins og
í Bandaríkjunum. Og hér er líka
borin furðulega mikil og undarleg
virðing fyrir einstaklingsfram-
taki, sem birtist í því að fólk hér
þarf ekki að borga gjald fyrir afnot
af sameiginlegum auðlindum.
Það má bara verða skítríkt. Það er
fáránlega bandarísk pæling. Fleira
mætti án efa nefna.
Styrjöld í gangi
Að þessu sögðu tel ég mig hafa
útskýrt nægilega fyrir sjálfum mér
og lesendum af hverju í ósköp-
unum ég hef verið, á undanförnum
mánuðum — ef ekki árum— gjör-
samlega heltekinn af fréttum úr
bandarísku samfélagi. Ég endur-
hleð vefsíðu New York Times um
það bil á hálftíma fresti. Ég drekk
í mig fréttir af forvali Demókrata-
flokksins og les pistla um dusil-
mennið Trump eins og reyfara.
Hverju sætir? Jú, Bandaríkin eru
svo nálægt manni. Og eftir að hafa
sökkt mér í þetta sé ég ekki betur
en að það sé eiginlega stríð í gangi
í Bandaríkjunum. Það geisar þar
menningarleg styrjöld. Hún er sem
betur fer háð með orðum en ekki
tólum, en hatrömm er hún. Mér
finnst nánast eins og maður þurfi
að bregða sér vestur eftir og taka
þátt. Bera út bæklinga í hús í ein-
hverju úthverfinu. Mér finnst ég
skilja hvernig ungu fólki leið sem
Bandaríkin
ákvað að fara til Spánar í gamla
daga og berjast fyrir lýðræðinu við
heri Franco einræðisherra.
Stríðið í Bandaríkjunum snýst
um jafn mikilvæga hluti. Mál-
svarar hins opna og umburðar-
lynda samfélags — þar sem gildi
eins og sannleikur, heiðarleiki,
sanngirni, tjáningarfrelsi, upp-
lýstar ákvarðanir og jöfn tæki-
færi eru í hávegum höfð — eiga í
magnaðri orrahríð við erindreka
sérhagsmuna sem víla ekki fyrir
sér að spinna alls konar lygavefi,
hunsa vísindalegar staðreyndir,
ala á hatri og mölbrjóta alla múra
heiðarlegrar háttsemi til þess að fá
vilja sínum framgengt, sem er að
halda völdum í þágu sinna eigin
hagsmuna.
Alvarleiki málsins
Paul Krugman benti á um daginn
í einni grein sinni í New York
Times hversu svakalegt það væri
að annar af stóru stjórnmála-
f lokkunum í stærsta hagkerfi
heims beinlínis hafnar gróður-
húsaáhrifunum. Hlýnun and-
rúmsloftsins er ekki að eiga sér
stað samkvæmt Repúblikan-
af lokknum. Stærsta hagkerfi
heims er sem sagt um þessar
mundir stjórnað af stjórnmála-
f lokki sem ber öll einkenni mjög
furðulegs sértrúarsafnaðar. Það er
korter í að þessi f lokkur haldi því
fram að jörðin sé f löt og að rökin
fyrir því séu „af því bara“.
Útlitið er ekki bjart, en megi
Demókrötum auðnast að sameina
sjálfa sig gegn þessu yfirgengilega
rugli því þetta ástand varðar ekki
bara Bandaríkin heldur okkur öll.
Amy, Bernie, Elisabeth, Michael,
Pete eða Joe. Hver sem sigrar í
forvalinu. Þið megið ekki klikka á
þessu! Ég brjálast.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0