Fréttablaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.02.2020, Blaðsíða 18
BAUHAUS hefur fyrir löngu sannað tilveru sína með gríðarlegu vöruúrvali, gæða- vöru, faglegri ráðgjöf og góðri þjónustu,“ segir Einar Ingason á fyrirtækjasviði BAUHAUS. „Með öflugum innkaupum hefur BAUHAUS náð að veita viðskiptavinum frábær kjör á mjög breiðu úrvali gæðaefna. Einn helsti styrkleiki BAUHAUS liggur nefnilega í breiðu úrvali á öllu sem viðkemur byggingar- iðnaði og eru ríflega 120 þúsund vörunúmer á skrá hjá okkur, allt undir einu þaki. Það er markmið okkar að viðskiptavinir geti komið á einn stað og keypt þar allt fyrir framkvæmdirnar og eins og flestir þekkja er verslun BAUHAUS ein sú stærsta á landinu, ávallt troðfull af vörum og óhætt að segja að við nýtum okkar 22 þúsund fermetra vel,“ segir Einar. Allir velkomnir í viðskipti Með vaxandi sölu hefur fyrir- tækjasvið BAUHAUS vaxið veru- lega. „Okkur þykir einstaklega gaman að þjónusta alla okkar fjölmörgu og fjölbreyttu viðskiptavini. Allir eru velkomnir í viðskipti í BAU- HAUS og viðskiptavinir okkar koma frá flestum geirum og eru jafn fjölbreyttir og vöruúrvalið okkar,“ segir Einar. Stórverktakar og byggingarfélög sem eru í viðskiptum við BAU- HAUS kaupa mikið af sérlausnum sem og þau fjölmörgu gæðavöru- merki sem þekkt eru á mörkuðum og njóta trausts hjá fagfólki í bygg- ingariðnaði. „Fagmenn kaupa mikið af gluggum og timbri hjá okkur og við leggjum mikið upp úr gæðum á timbrinu okkar sem geymt er í hita- og rakastýrðu umhverfi. Þá hafa aðilar í ferðaþjónustu nýtt sér mikið af þeim frábæru lausnum sem við höfum upp á að bjóða fyrir baðherbergi og í gólfefnum,“ upp- lýsir Einar. Senda hvert á land sem er Hjá BAUHAUS fæst mikið úrval geymslulausna. „Geymslulausnirnar okkar eru einkar vinsælar. Þær þykja bæði góðar og hafa reynst viðskipta- vinum okkar mjög vel,“ segir Einar. „Til viðbótar bjóðum við upp á frábært úrval af hvers kyns vélum og verkfærum frá þekktum og traustum merkjum, svo sem Bosch, Makita og DeWalt.“ Þess má geta að landsbyggðin notfærir sér mikið pöntunarþjón- ustu BAUHAUS sem sendir hvert á land sem er. „Við gerum tilboð í tilbúna efnispakka eins og sumarhús, klæðningar og hellur, svo eitthvað sé nefnt. Það er einfalt að senda okkur línu á netfangið sala@bau- haus.is og við svörum um hæl með tilboði. Endilega kíkið til okkar á nýju söluskrifstofur BAUHAUS þar sem við kynnum starfsemi okkar enn frekar en einnig er alltaf hægt að senda okkur tölvupóst eða slá á þráðinn. Þú hefur engu að tapa en allt að vinna í að versla við BAU- HAUS!“ segir Einar kátur. BAUHAUS er á Lambhagavegi 2. Sími 515 0865. Netfang: sala@ bauhaus.is. Það er einfalt að senda okkur línu á á sala@bauhaus.is og við svörum um hæl með tilboði. Þú hefur engu að tapa en allt að vinna í að versla við BAUHAUS. Einar Ingason Á síðustu árum hefur verið mikil umræða um mikil-vægi hljóðvistar í umhverfi okkar, hvort sem það er á vinnu- stöðum eða á heimilum. Hávaða- áreiti getur haft heilsuspillandi áhrif, það dregur úr einbeitingu og veldur streitu. Með hljóðdemp- andi plötum frá Fibro Tech má draga úr slíku áreiti til muna því plöturnar draga úr glymjanda. Hljóðvistarplöturnar frá Fibro Tech bæta ekki einungis hljóðvist í rýmum heldur hjálpa þær einnig við hönnun rýmisins. Því er engin furða að hönnuðir og húsbyggj- endur velji Fibro Tech hljóðdemp- andi plötur til góðrar hljóðvistar. Þær eru afar stílhreinar og áferðar- fallegar og fallegir spónlagðir listar einkenna þær. Hægt er að fá Fibro Tech hljóðdempandi plötur með ljósri eik, reyktri eik, olíuborinni eik, grárri eik, aski og hnotu. Plöturnar frá Fibro Tech eru úr náttúrulegum efnum og með FSC- vottun. Kynnið ykkur málið á fibrotech.dk Góð hljóðvist með Fibro Tech Með Fibro Tech hljóðdempandi plötum fá vistarverurnar fallega ásýnd og einkar gott næði. FIbro Tech plöturnar eru stílhreinar og áferðarfallegar, úr 100 prósent náttúrulegum efnum og með FSC-vottun. Fibro Tech plöturnar eru sérlega glæsilegar. Bauhaus kynnir glæsilegar og hljóðdempandi plötur frá Fibro Tech. Þær draga úr glymjanda og hafa slegið í gegn. Svavar, Einar og Örn á fyrirtækjasviði BAUHAUS taka vel á móti viðskiptavinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Einfalt að fá tilboð í tölvupósti BAUHAUS er ein stærsta verslanakeðja Evrópu þegar kemur að öllu sem viðkemur góðum og traustum byggingariðnaði. BAUHAUS starfrækir tæplega 300 verslanir í 21 Evrópulandi. 6 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.