Fréttablaðið - 10.02.2020, Síða 41
Upphafsmaður þeirrar starfsemi sem nú er rekin undir hatti Véla og verkfæra
er Guðmundur Jónsson,“ segir
Sveinbjörn Lárusson, sölumaður
hjá fyrirtækinu, um upphafs-
ár þess. „Hann var upphaflega
smiður en í kjölfar vinnuslyss fór
hann að sinna innflutningi og
verslunarstörfum. Árið 1919 hóf
hann rekstur umboðs- og heild-
verslunar í eigin nafni og stofnsetti
verslunina Brynju við Laugaveg,
sem löngu er orðin þjóðþekkt.
Guðmundur seldi Brynju árið
1937 og beindi kröftum sínum að
umboðs- og heildsölu. Það var svo
1942 sem hann stofnaði hluta-
félagið Vélar og verkfæri í félagi við
son sinn og tengdasyni. Upphaf-
legt markmið fyrirtækisins var
verksmiðjurekstur af einhverju
tagi, framleiðsla á járnvörum fyrir
hurðir og glugga.“ Starfsemin var
lítil sem engin fyrstu árin, einkan-
lega vegna ófriðar í heiminum.
Ekkert varð úr verksmiðjurekstri
en aftur á móti óx starfsemin á
sviði umboðs- og heildverslunar
jafnt og þétt. Fyrirtækið þróaðist í
það að vera dreifingar- og söluaðili
á glugga- og hurðabúnaði og verk-
færum svo eitthvað sé nefnt en
vöruúrval fyrirtækisins er mjög
mikið. „Guðmundur Jónsson ehf.
og Vélar og verkfæri ehf. voru
rekin sem systurfyrirtæki fram
til ársins 2018 þegar GJ rann inn
í Vélar og verkfæri.“ Sveinbjörn
segir fyrirtækið hafa haldist innan
sömu fjölskyldu frá upphafi.
„Guðmundur Jónsson rak fyrir-
tækið allt til dauðadags, en þá tók
Guðmundur S. Guðmundsson,
sonur hans, við því. Árið 1963
tók síðan Sveinn H. Björnsson,
dóttursonur Guðmundar, við
stöðu framkvæmdastjóra og stýrði
fyrirtækinu næstu 50 árin, eða til
ársins 2013,“ segir hann. Núver-
andi framkvæmdastjóri Véla og
verkfæra er Björn V. Sveinsson,
barnabarnabarn Guðmundar
Jónssonar.
Hundrað ára í fyrra
Hann segir hundrað ára afmælinu
í fyrra hafa verið fagnað með
ýmsum hætti.
„Nýverið opnuðum við Lykil-
lausnir, sem er neytendamiðuð
verslun með hurða- og glugga-
búnað ásamt öryggiskerfum fyrir
snjallheimilin og lásasmiðirnir
okkar fluttu einnig þangað. Lykil-
lausnir er staðsett steinsnar frá
Vélum og verkfærum, í Skútuvogi
1 E. Opnunarpartí þessarar versl-
unar var samnýtt sem hundrað
ára afmælisveisla og var vinum
og velunnurunum fyrirtækisins
boðið. Starfsfólk hélt svo upp á
tímamótin með vélsleðaferð á
Langjökul og lét fara vel um sig á
glæsilega nýuppgerðu Hótel Geysi
í kjölfarið.“
Sveinbjörn segir viðskipta-
umhverfi hafa breyst mikið á 100
árum. „Í dag er lögð áhersla á að
dreifa ýmsum vörum til bygg-
ingarverslana og framleiðenda á
gluggum og hurðum.
Til viðbótar hefur orðið mikil
aukning í sölu beint til ýmissa
aðila og þá mest á vörum sem ekki
eru fáanlegar í byggingavöruversl-
unum,“ segir hann og nefnir sem
dæmi aðgangskerfi, mótora fyrir
bílskúrs- og iðnaðarhurðir, hurða-
og gluggabúnað, baðherbergis-
vörur, snjalllausnir fyrir heimili,
hönnunarvörur, höfuðlyklakerfi
og fleira.“
Fjölbreytt þjónusta og úrval
Vélar og verkfæri bjóða upp á
fjölbreytta þjónustu þar sem við-
skiptavinurinn er í fyrirrúmi. „Við
seljum ýmis verkfæri, til dæmis
handverkfæri eins og tangir,
hamra og sagir fyrir iðnaðar-
menn,“ segir Sveinbjörn og bætir
við: „Við erum með landsins mesta
úrval af handföngum á hurðir
bæði úti- og innihurðir, fyrir
fyrirtæki, stofnanir og heimili. Þá
erum við með mjög mikið úrval af
íhlutum á baðherbergi og salerni,
wc-rúlluhaldara, slár fyrir fatlaða,
wc-bursta, ruslafötur og ýmislegt
f leira í litum og áferð nánast að
óskum hvers einasta viðskiptavin-
ar. Einnig erum við með gott úrval
af alls kyns mælingartækjum,
hæðar-leiserum og kross-leiserum
sem og hallamálum.“
Vélar og verkfæri eru einnig með
fjölbreytt úrval af hurðabúnaði.
„Við seljum allan hurðabúnað frá
lömum að rafmagnshurðarpump-
um. Þar eigum við allar tegundir
af skrám og búnaði kringum þær,
hurðapumpur fyrir þarfir hvers
og eins og svo snjalllausnir til að
aðgangsstýra hurðum. Að ekki sé
talað um flóttaleiðabúnað sem
uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði
og virkni fyrir hvaða mannvirki
sem er. Flóttaleiðabúnaður sem
við leggjum áherslu á og seljum til
notkunar í opinberum byggingum
uppfyllir alla brunavarnastaðla
eins og EN179, EN125 og EN13637
sem er nýr staðall um rafeinda-
stýrðan flóttaleiðabúnað. Í verslun
okkar Lykillausnum erum við með
marga af færustu sérfræðingum
landsins í smíði lykla og sýlinder-
kerfa og þar smíðum við lykla
fyrir heimili, stofnanir og almenn
fyrirtæki.“
Lyklar og snjalllausnir
Sérstaklega má nefna hin vel
þekktu Assa lyklakerfi sem og
allan búnað frá Assa Abloy, eða
eins og Sveinbjörn orðar það: „Allt
frá venjulegri innihurð á svefn-
herbergi upp í að stýra aðgengi
eða flóttaleið á hurðabúnaði í
stórverslunum eins og H&M.
Krafan frá þeim var að allur hurða-
búnaður væri frá Assa líkt og þeir
nota alls staðar annars staðar í
heiminum. Við erum einnig með
bílskúrshurðaopnara hvort sem
er fyrir heimili, bílastæðahús eða
fyrirtæki.“
Hann segir fyrirtækið fylgjast
vel með nýjungum á markaði enda
séu alltaf einhverjar framfarir og
nýjungar á ferðinni. „Við reynum
að fylgjast með og skoða hvað
gæti hentað hér. Snjalllausnir við
opnun á heimilum þar sem app í
síma getur opnað læsingar er það
sem hefur einna mest aðdráttarafl
í dag og svo eru þjófavarnarkerfi
sem láta eigendur vita þegar farið
er inn eða hægt er að fara inn á
og skoða hvort ekki sé allt í lagi á
heimilinu sífellt að vera vinsælli.“
Að lokum ítrekar Sveinbjörn
metnað fyrirtækisins í að koma til
móts við óskir viðskiptavina og
þarfir. „Hjá Vélum og verkfærum
reynum við að uppfylla þarfir
viðskiptavina okkar, ef við eigum
ekki vöruna á lager þá er oft hægt
að finna hana hjá birgjum okkar
og sérpanta.“
Nánari upplýsingar má finna á
vv.is
Lykilfyrirtæki með langa sögu
Vélar og verkfæri eiga meira en hundrað ára sögu sem hófst með stofnun verslunarinnar
Brynju við Laugaveg. Fyrirtækið sérhæfir sig í verkfærum, hurðabúnaði og lykillausnum.
Vélar og verkfæri sérhæfa sig í hurðabúnaði í öllum stærðum og gerðum.
Þar má finna landsins mesta úrval af hurðarhúnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sveinbjörn Lárusson, sölumaður hjá Vélum og verkfærum, en fyrirtækið fagnaði hundrað ára starfsemi á síðasta ári og leggur áherslu á verkfæri, hurðabúnað og lykillausnir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Snjalllausnir við
opnun á heimilum
þar sem app í síma getur
opnað læsingar er það
sem hefur einna mest
aðdráttarafl í dag.
KYNNINGARBLAÐ 13 M Á N U DAG U R 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 BYGGINGARIÐNAÐURINN