Fréttablaðið - 10.02.2020, Qupperneq 44
Enginn þorði að
tala við mig í
nokkra daga, enda eina
konan á 200 manna
vinnustað. Það breyttist
þó þegar þeir sáu að ég
var bara iðnaðarmaður
eins og þeir.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Þeba Björt Karlsdóttir nýtur þess að hafa nóg fyrir stafni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
16 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 M Á N U DAG U RBYGGINGARIÐNAÐURINN
Ég segi alltaf að ég sé héðan og þaðan þegar ég er spurð hvaðan ég sé. En ég fæddist
sum sé í Reykjavík en er búin að
eiga heima í Danmörku, Blöndu-
ósi, í Álftafirði og núna bý ég í
Mosfellsbæ á veturna og í sveitinni
í Álftafirði á sumrin,“ segir Þeba.
„Ég er gift Guðmundi Skagalín
og saman eigum við fjögur börn,
Eystein Sölva 23 ára, Eyvind Stefni
og Eyvöru Stellu þrettán ára og
Eyrúnu Stínu átta ára.“
Fyrirtæki og gæludýrahald
Þeba segir fjölskylduna hafa eytt
miklum tíma í framkvæmdir
undanfarin ár. „Mest allur frítími
síðustu árin hafa farið í það að
gera upp húsið okkar í Mosfellsbæ
sem og bæinn okkar í Álfta-
firði. Mér finnst mjög gaman að
smíða og ég fæ tækifæri til þess í
sveitinni þar sem ég hef verið að
byggja nokkra kofa fyrir gælu-
dýrin okkar, en þau eru víst orðin
fimmtán talsins.“
Þau hjónin eiga og reka fyrir-
tækið Straumbrot ásamt einum
öðrum aðila. „Ég rek mitt eigið
fyrirtæki, Straumbrot ehf. í sam-
starfi við Hróbjart Lúthersson sem
er verkefnastjóri í Reykjavík og
Guðmund, manninn minn, sem er
verkefnastjóri á Vopnafirði. Við
erum sem sagt með starfsstöðvar
bæði hérna í bænum og á Vopna-
firði. Við erum aðallega í fyrir-
tækjaiðnaði og þjónustum meðal
annars Brim, Rio Tinto, Mílu og
Rarik.“
Þeba var ekki lengi að næla sér
í fjölda réttinda og gráða. „Upp-
hafið að þessu öllu var þannig að
manninum mínum bauðst starf
hjá Símanum á Höfn en hann var
alveg viss um að þetta starf myndi
henta mér betur. Ég byrjaði á að
læra símsmiðinn og í framhaldi af
því tók ég rafvirkjann líka og var
í Meistaraskólanum með. Þannig
að ég er bæði símsmíða- og raf-
virkjameistari. Einnig er ég búin
með námskeið sem gefur mér rétt
til þess að vera byggingarstjóri.“
Iðnaðarmaður eins og þeir
Þegar Heba útskrifaðist árið 2003
hlaut hún hvorki meira né minna
en hæstu einkunn í öllum próf-
þáttum sveinsprófs í símsmíði. En
hvað felst í starfi símsmiðsins? „Ég
hef svo sem ekki unnið mikið sem
símsmiður undanfarin ár en þegar
ég var að vinna hjá Símanum og
þar á eftir Mílu þá fólst starfið mitt
aðallega í því að vera úti og gera
við og setja saman koparstrengi,
setja nýja strengi inn á símstöð og
svo framvegis. Ég var líka í því að
setja upp breiðbandið sem er nú
orðið úrelt. Í nýjustu hverfunum
var farið að setja ljósleiðara sem
við tengdum en núna er nánast ein-
göngu notast við ljósleiðara. Kopar-
inn er alveg að fara að detta út.“
Þegar Þeba er spurð að því hvort
hún muni eftir einhverjum eftir-
minnilegum atburðum úr störfum
sínum rifjar hún upp námsárin
þegar hún var ráðin í vinnu þar
sem hún var eina konan innan
um fjölda karlmanna. „Ég man
eftir einu frá því að ég var að læra
rafvirkjann. Þá átti ég að fara og
vinna í hóteli sem var verið að
gera upp. Þegar ég mæti á svæðið
þá þorði enginn að tala við mig í
nokkra daga enda eina konan á
200 manna vinnustað. Það breytt-
ist þó þegar þeir sáu að ég var bara
iðnaðarmaður eins og þeir.“
Þá segist Þeba oftast mæta
jákvæðu viðmóti sem kona í
karllægum geira. „Langoftast eru
viðbrögðin góð og hvetjandi en þó
eru til risaeðlur sem telja að konur
hafi ekkert með að vera í þessum
geira.“
Framkvæmdaglöð
og fjölhæf fagkona
Þeba Björt Karlsdóttir er símsmíða- og rafvirkjameistari
og einn eigenda fyrirtækisins Straumbrot. Utan vinnu
nýtur hún þess að gera upp húsið sitt ásamt því að
byggja kofa fyrir gæludýrin sem eru fimmtán talsins.
Símenntun í iðnaði
Hugaðu að þinni símenntun og kynntu þér fjölbreytta þjónustu og úrval námskeiða sem í boði eru.
www.idan.is
• Náms- og starfssráðgjöf
• Námssamningar og sveinspróf
• Tölvunámskeið
• Tölvustudd hönnun / Auto Cad
• Bygginga- og mannvirkjasvið
• Bílgreinasvið
• Matvæla- og vetingasvið
• Málm- og véltæknisvið
• Prent- og miðlunarsvið