Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 2
Veður Austan 15-23 m/s, hvassast suð- austanlands og snjókoma eða slydda á austanverðu landinu, en dálítil él vestan til. Dregur heldur úr frosti. SJÁ SÍÐU 16 Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800 Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina OPIÐLAUGARDAG 10-15 HUMARSÚPA STÓR HUMAR Önnur vika verkfalls EUROVISION „Við vorum búnir að afskrifa skiltið eftir þennan hræði- lega bruna. Það kom okkur því í opna skjöldu þegar vinir okkar hjá Hamri kláruðu verkið um leið og þeir voru búnir að koma starf- seminni aftur í gang,“ segir Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu. Mikið og gott vinasamband er milli hljómsveitarinnar og for- svarsmanna vélsmiðjunnar. „Það er eitthvað sem hefur þróast í gegnum árin. Við höfum haldið tvenna eftirminnilega tónleika hjá fyrirtækinu, einmitt í hús- næðinu sem varð eldinum að bráð. Samskiptin hafa í raun þróast út í vináttu,“ segir Stefán. Hamars- menn hafi hjálpað sveitinni með ýmislegt í gegnum tíðina. Meðal annars smíðað forláta stand undir hljóðnema Stefáns sem söngvarinn notar við hvert tækifæri. Í kjölfar þess að Dimma komst áfram á lokakvöldi Söngvakeppn- innar hafi komið upp hugmynd um að gera atriðið enn tilkomumeira. Þá hafi ekki annað komið til greina en að heyra í vinum hljómsveitar- innar í Hamri. „Þeir gripu þetta á lofti og tóku að sér alla hönnun og smíði skiltisins. Við höfum ekki nema óljósa hugmynd um hvern- ig þetta mun líta út en treystum þessum vinum okkar fyllilega,“ segir Stefán. Daginn áður en bruninn átti sér stað var unnið við að skera skiltið út og síðan átti að fínpússa verkið næstu daga. „Það var því mikið áfall að heyra um brunann hjá fyr- irtækinu og blessað skiltið skipti litlu máli í því samhengi. Hugur okkar var hjá þessum félögum okkar og maður vonaði að tjónið yrði sem allra minnst,“ segir Stefán. Það haf i því komið Dimmu- mönnum í opna skjöldu þegar þeir fréttu að skiltið hefði fundist í brunarústunum. „Við héldum að þeir hefðu um margt annað hugsa en að græja þetta fyrir okkur. En við fengum bara þau skilaboð að hjá Hamri væri forgangsröðunin á hreinu. Nokkrum dögum síðar var skiltið klárt og það í tæka tíð fyrir stóra daginn,“ segir Stefán fullur þakklætis. bjornth@frettabladid.is Forláta skilti Dimmu fannst í brunarústum Nýtt skilti hljómsveitarinnar Dimmu brann í eldsvoða í Vélsmiðjunni Hamri í síðustu viku. Meðlimir hljómsveitarinnar töldu að skiltið væri glatað en fyrir kraftaverk fannst gripurinn undir braki eftir að slökkvistarfi lauk. Við höfum haldið tvenna eftirminni- lega tónleika hjá fyrirtæk- inu, einmitt í húsnæðinu sem varð eldinum að bráð. Samskiptin hafa í raun þróast út í vináttu. Stefán Jakobsson, söngvari Dimmu KÓPAVOGUR Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að undirbúa átak gegn einelti og of beldi ungmenna. Tilefnið er nýleg frétt af hrottalegri árás gegn fjórtán ára pilti í bænum. „Óskað er eftir greiningu á því hvernig tekið er á eineltis- og of beldismálum meðal ungmenna, hvort til staðar sé samræmd áætlun milli skóla og hvernig málum er háttað þegar of beldi á sér stað utan skóla, með hugsanlegri endurskoð- un á viðbragðsáætlunum í huga,“ segir í tillögu bæjarfulltrúa Pírata. Vegna frétta af vinnubrögðum lögreglu í máli piltsins var óskað eftir því að fulltrúi lögreglunnar tæki þátt í umræðum í bæjarráð- inu um verklag varðandi of beldi og mismunun meðal ungmenna og komu tveir lögregluþjónar til fundarins. – gar Taka á ofbeldi meðal unglinga Dimma við skiltið sem mun njóta sín á lokakvöldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Verkfall sorphirðufólks hjá Reykjavíkurborg sem nú hefur staðið frá byrjun síðustu viku er farið að hafa mikil áhrif á heimilum höfuðborgarbúa. Einhverjir bregða nú á það ráð að fara sjálfir með rusl á gámastöðvar Sorpu en þessi mynd var tekin í Ánanaustum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI MENNING Hildur Guðna dóttir hlaut í gær Nor rænu tón listar verð launin, Nor dic Music Prize, en á samt Hildi voru Cell7 (Ragna Kjartans dóttir) og Coun tess Mala ise (Dýr finna Benita), til nefndar til verð launanna. Stofnað var til verð launanna fyrir tíu árum og eru þau undir hatti by:Larm-tón- listar há tíðarinnar í Ósló. „Stemningin var bara frá bær,“ segir Arnar Eggert Thor odd sen, að junkt við Há skóla Ís lands, en hann sat í dóm nefndinni fyrir hönd Ís lands. „Við hittumst hérna bak sviðs, ég, Hildur, Cell7 og Coun tess, og þetta var bara geð veik stemning hjá okkur Ís lendingunum. Þetta var bara eins og að vinna ein hvern hand bolta leik.“ Frá því að verð launin voru fyrst af hent 2010 höfðu Ís lendingar einu sinni áður unnið til verð launanna en það var Jónsi með plötuna Go sem hlaut verð launin í fyrsta skiptið. Alls voru tólf til nefndir í ár en það var tón list Hildar úr sjón varps þáttunum Cher n obyl sem hreppti að lokum verð launin. „Þetta er alveg sæmi lega stórt dæmi hérna á Norður löndunum og Hildur mætir, á samt Cell7 og Coun- tess Mala ise, og bara vinnur,“ segir Arnar en hann verður á fram á há- tíðinni í Ósló fram á laugar dag. „Ís- lendingar voru með þrjá til nefnda, Svíar voru bara með tvo. Svo voru þetta allt konur, þetta er bara geð- veikt „power“ og maður er bara svo rosa lega stoltur og hamingju samur út af þessu öllu saman.“ – fbl Sigurgangan heldur enn áfram hjá Hildi Ragna, Dýrfinna og Hildur baksviðs. MYND/ARNAR EGGERT THORODDSEN 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.