Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 25

Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 25
Guðmundur Jóhann Jónsson er forstjóri Varðar sem leitast við að eiga ábyrg og traust samskipti við hagaðila sem leggja áherslu á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð. MYND/ÁRNI SÆBERG Samfélagsábyrgð er sam-þætt stefnu og starfsháttum Varðar og í sinni einföldustu mynd snýst hún um ábyrga starfs- hætti. Grunnurinn er siðferðis- legur og forsenda góðra verka og faglegra ákvarðana. Tilgangurinn grundvallast á að starfa af heil- indum til hagsbóta fyrir alla hagaðila fyrirtækisins, eins og viðskiptavini, starfsfólk, eigendur og samfélagið í heild. Markmiðið með ábyrgum starfsháttum er að skapa sameiginlegt virði,“ útskýrir Guðmundur Jóhann Jónsson, forstjóri Varðar, þegar hann er inntur eftir samfélags- ábyrgð fyrirtækisins. Rætur Varðar má rekja til Eyjafjarðar, allt aftur til ársins 1926 þegar Vélbátasamtrygging Eyjafjarðar var stofnuð. Í dag er Vörður alhliða vátrygginga- félag með liðlega 60 þúsund viðskiptavini um land allt og um 100 manna öf lugan hóp starfs- fólks með fjölbreyttan bakgrunn, menntun, reynslu og hæfni. Félag- ið býður hagkvæmar trygginga- lausnir á samkeppnishæfu verði fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Guðmundur segir að Vörður einsetji sér í allri starfsemi sinni að hafa jákvæð áhrif á samfélags- lega þróun og umhverfið sem félagið starfi í. Meðal kjarna- þátta í samfélagsstefnu Varðar séu mannrækt, ábyrg trygginga- starfsemi, virk umhverfisstefna, ábyrgir stjórnar- og stjórnunar- hættir, framlög og styrkir til góð- gerðar- og félagssamtaka, rekstur og þjónusta byggð á siðrænum gildum, fræðsla, gagnsæi og virk upplýsingagjöf. Guðmundur segir jafnframt að í áætlun samfélagsstefnunnar sé reynt að setja skýr og fram- fylgjanleg markmið sem unnin eru í samstarfi við hagaðila og samræmist heildarstefnunni. Markmiðin séu fjölmörg og fjalli fyrst og fremst um að stunda ábyrga tryggingastarfsemi og að starfa náið og á ábyrgan hátt með samfélaginu og umhverfinu. „Fyrirtæki eiga að axla ábyrgð á öllum sínum ákvörðunum og athöfnum, líkt og góðir og gildir þjóðfélagsþegnar gera. Samfélags- ábyrgð snýst ekki eingöngu um að fara að lögum og reglum heldur einnig að bera virðingu fyrir samborgurunum, umhverfinu og samfélaginu öllu. Við viljum leggja okkar af mörkum til að ef la komandi kynslóðir og stuðla að framförum í samfélaginu með því að gera meira en lög og reglugerðir krefjast.“ Tryggingar á mannamáli Í samfélagsstefnu Varðar segir að virðiskeðja félagsins sé byggð á siðrænum og samfélagslega ábyrgum gildum. Vörður leitist þannig við að eiga ábyrg og traust samskipti við hagaðila sína þar sem áhersla er lögð á að auka sjálf- bærni og skapa verðmæti fyrir samfélagið og umhverfið. „Vörður kýs að starfa með birgjum sem starfa eftir sömu gildum og brýnir þá að huga að sjálf bærni. Lögð er áhersla á að vörur Varðar séu samfélagslega ábyrgar og að þjónustan sé byggð á siðferðislegum gildum. Þá er lögð áhersla á að viðskiptavinir séu vel upplýstir um hvað vörur félagsins standa fyrir og þar með vel meðvitaðir um ákvarðanir sínar við val á þeim,“ segir Guð- mundur. Hann nefnir sem dæmi að undanfarið misseri hafi félagið unnið að umfangsmiklu verkefni sem starfsfólk kalli „tryggingar á mannamáli“ en það snýr að skýru og skiljanlegu málfari í trygg- ingum. Markmiðið sé að koma til móts við þarfir neytenda, auka skilning þeirra á tryggingum og einfalda framsetningu f lókins tryggingamáls. „Segja má að besta tryggingin hjá Verði sé sú trygging sem félag- ið og viðskiptavinurinn hafa sam- eiginlegan skilning á. Hér viljum við sýna ákveðið frumkvæði og viljum meina að aðgengilegar upplýsingar séu gagnsæi. Gagnsæi eykur þekkingu á Verði sem fyrir- tæki, vörum þess og þjónustu. Það má með sanni segja að einfaldara tungumál skapi betri skilning á eiginleikum vara og þjónustu Varðar og þar með gæðum á öllum stigum,“ útskýrir Guðmundur og bæti við að með betri samskiptum komi snerpan og skilvirknin. „Skiljanlegt og einfalt málfar minnkar tortryggni sem eðlilega getur skapast vegna f lókins tungu- máls. Skýrt mál er því okkar mál.“ Umhverfið varðar okkur öll Guðmundur segir Vörð hafa um langt skeið verið umhugað um umhverfismál og að félagið leitist við að vinna með aðilum sem hafa sett sér stefnu í umhverfismálum og samfélagslegri ábyrgð. Hann segir að unnið sé markvisst að því að auka umhverfisvæna þætti í allri starfseminni og draga úr nei- kvæðum áhrifum á umhverfið. „Árið 2010 setti Vörður umhverf- ismál inn í stefnu sína og hefur síðan þá þróað málaf lokkinn yfir í heildstæða stefnu um sam- félagslega ábyrgð. Vörður er til dæmis aðili að Festu og eitt af 104 fyrirtækjum sem undirrituðu loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar árið 2016 þar sem fyrirtækin skuldbinda sig til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda, minnka myndun úrgangs og mæla árangurinn,“ segir Guðmundur. Frá árinu 2017 hefur Vörður gefið árlega út viðamikla sjálf- bærniskýrslu þar sem góða mynd er að fá á aðgerðir félagsins í sam- félagsmálum. Í henni kemur fram að Vörður vinnur með heims- markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálf bæra þróun. „Á síðasta ári skiptum við til dæmis út bensín- og dísilbílum okkar fyrir rafmagnsbíla til að minnka losun og kolefnisjöfn- uðum reksturinn í samvinnu við Kolvið. Þá höfum við f lokkað úrgang hjá okkur frá 2011 og markvisst stefnum við að aukinni og betri f lokkun. Samfélagsleg ábyrgð og umhverfisvæn hegðun er til hagsbóta fyrir alla aðila, bæði fyrirtækin sjálf, viðskipta- vini og starfsfólk,“ upplýsir Guð- mundur. Starfsfólk dýrmætasta auðlindin Að hlúa vel að starfsfólki er hluti af samfélagsstefnu Varðar. Áhersla er lögð á velferð og vellíðan og starfs- fólk hvatt til heilbrigðis lífernis og hreyfingar. Félagið greinir reglulega þætti í vinnuumhverfinu sem geta haft áhrif á líðan, heilsu og öryggi starfsfólks og vinnur að úrbótum sé þess þörf. Guðmundur nefnir að innan félagsins starfi heilsunefnd sem skipuleggi ýmsa heilsutengda viðburði og velferðarnefnd sem vinni að málum eins og jafnrétti, vinnurétt, einelti og áreitni og öðru sem snúi að velferð starfsfólks. „Vörður veitir starfsfólki styrki til þátttöku í heilsueflandi athöfnum og tómstundum og býður því að gangast undir mat á heilsufari og líðan. Við matið er notast við heild- ræna nálgun og horft til fleiri þátta en líkamlegra, svosem geðheilsu, persónulegrar heilsu, félagslegrar heilsu og faglegrar heilsu. Með slíkri nálgun næst meiri árangur við mat á heilsu og vellíðan starfs- fólks,“ segir Guðmundur og bendir jafnframt á að jafnréttismálin séu ekki síður mikilvæg starfsfólki en velferð og vellíðan. „Segja má að jafnrétti sé greipt inn í menningu Varðar. Við erum sérlega stolt af því að árið 2014 hlaut Vörður, fyrst fjármálafyrir- tækja, jafnlaunavottun og höfum við starfað eftir því kerfi allar götur síðan. Þá höfum við mjög skýra jafnréttisstefnu sem er ætlað að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfs- fólks af báðum kynjum.“ Byggt á siðferðislegum gildum Vörður einsetur sér í allri starfsemi sinni að hafa jákvæð áhrif á samfélagslega þróun og umhverf- ið sem félagið starfar í. Þá er lögð rík áhersla á jafnréttismál, velferð og vellíðan starfsfólks. Skiljanlegt og einfalt málfar minnkar tortryggni sem getur skapast vegna flókins tungumáls. Skýrt mál er því okkar mál. KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 SAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.