Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 36
Rannsóknir hafa sýnt að því fyrr sem einstaklingar reyna endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys, því líklegra er að þeir komist aftur út á vinnu- markaðinn. Þorsteinn, Hel- ena og Jónína hjá VIRK segja brýnt að tengja saman starfs- endurhæfingu og atvinnulíf. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Jónína Waagfjörð starfar sem sviðsstjóri atvinnutengingar hjá VIRK og þau Helena Kon- ráðsdóttir og Þorsteinn Gísli Hilmarsson starfa sem atvinnulífs- tenglar. Stuðningur við atvinnuleit Jónína segir einstaklingana í starfsendurhæfingu hjá VIRK koma úr ýmsum áttum. „Á hverju ári útskrifast um 1.400 manns úr starfsendurhæfingu VIRK en aðeins hluti þessa hóps fer í atvinnutenginguna sem er sér- tæk þjónusta. Þeir einstaklingar sem koma í atvinnutengingu hjá VIRK hyggja flestir á endurkomu á vinnumarkaðinn í hlutastörf til að byrja með. Þar sem lítið er um auglýst hlutastörf þá var ákveðið að bjóða upp stuðning við leit að slíkum störfum en einstakling- arnir sem koma í atvinnutengingu eru með fjölbreyttan bakgrunn bæði hvað varðar menntun og starfsreynslu,“ skýrir Jónína frá. „Markmiðið með atvinnu- tengingunni er í raun tvíþætt, annars vegar, eins og fyrr segir, að auðvelda fólki sem er að ljúka starfsendurhæfingu að finna starf við hæfi. Hins vegar snýst það um að gefa fyrirtækjum kost á að finna hæfan einstakling til starfa og fá um leið fræðslu og stuðning sem miðar að því að tryggja ein- staklingum með skerta starfsgetu farsæla endurkomu til vinnu.“ Helena segir starf atvinnulífs- tengla meðal annars felast í stuðn- ing við atvinnuleit. „Starf atvinnu- lífstengla snýst um að tengja einstaklinga með skerta starfsgetu markvisst við vinnumarkaðinn áður en starfsendurhæfingu þeirra líkur en rannsóknir hafa sýnt að því fyrr sem einstaklingar reyna endurkomu til vinnu eftir veikindi eða slys, því líklegra er að þeir komist aftur út á vinnumarkaðinn. Atvinnulífstengill veitir stuðning við undirbúning fyrir atvinnuleit og stuðning í gegnum ferlið þar til einstaklingar eru komnir í vinnu. Þannig er aðlögun inn á vinnu- markaðinn tvinnuð markvisst inn í starfsendurhæfingu einstaklings- ins og lögð er áhersla á að tengja saman einstakling sem er með viðeigandi reynslu og þekkingu á því starfi sem í boði er.“ Einstaklingsmiðuð nálgun Einstaklingum í starfsendur- hæfingu hjá VIRK standa til boða ýmsar leiðir inn í atvinnulífið að nýju og er leitast við að mæta hverjum og einum út frá þeirra tilteknu aðstæðum og bakgrunni. „Aðlögun inn á vinnumarkaðinn getur átt sér ýmsar birtingar- myndir, t.d. í formi vinnuprófana og aðlögun á vinnustað áður en til ráðningar kemur, stigvaxandi endurkomu til vinnu hvað varðar starfshlutfall eða aðstoð við ein- staklinga sem vilja og þurfa að skipta um starfsvettvang vegna aðstæðna sinna. Stuðningur við aðlögun inn á vinnumarkað er allt- af einstaklingsbundinn en getur til dæmis verið með námskeiðum eða fræðslu,“ útskýrir Helena. Þá segir Þorsteinn að starfið feli einnig í sér umtalsverð samskipti við hugsanlega vinnuveitendur. „Í starfi atvinnulífstengla felst að vera í virkum samskiptum við stofnanir og fyrirtæki og vinna markvisst að því að koma á sam- starfi við þau með ráðningar í huga vegna einstaklinga sem hafa horfið af vinnumarkaði vegna veikinda eða slysa og eru þess vegna með skerta starfsgetu. Eitt af hlutverkum atvinnulífs- tengla er að fara í heimsóknir til fyrirtækja og fræða þau bæði um starfsemi VIRK og um mikilvægi þess að bjóða upp á hlutastörf sem auka möguleika einstaklinga með skerta starfsgetu á ráðningu í starf. Ef um ráðningu er að ræða þá fylgir atvinnulífstengill VIRK ein- staklingnum eftir og styður hann og vinnustaðinn eftir þörfum og aðstoðar við úrlausn hindrana. VIRK leggur áherslu á að fyrirtæki skrifi undir samstarfssamning sem er án skuldbindinga en þar er komið á sérstöku sambandi við ákveðinn tengilið hjá fyrirtækinu eða stofnuninni sem auðveldar allt samstarf í framtíðinni.“ Fyrirtæki orðin meðvitaðri Jónína segir aðkomu fjölda fyrirtækja og stofnana í atvinnu- tengingunni meðal annars til Til vinnu á ný VIRK Atvinnutenging hefur undanfarin þrjú ár aðstoðað einstaklinga með bæði fjölbreytta menntun og starfs- reynslu við leit að starfi í lok starfsendurhæfingar. Atvinnulífstenglar hjá VIRK fara yfir málin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR marks um aukna vitund um samfélagsábyrgð. „Yfir 300 fyrir- tæki og stofnanir á Íslandi eru nú þegar í öflugu samstarfi við VIRK Atvinnutengingu en óhætt er að segja að margvíslegur hagur skap- ist af slíku samstarfi. Fyrir utan að fá til sín öfluga starfsmenn með dýrmæta reynslu og þekkingu í farteskinu þá fær einstaklingurinn tækifæri til að spreyta sig aftur á vinnumarkaði. Fyrirtækin axla að sama skapi samfélagslega ábyrgð og leggja sitt á vogarskálarnar við að framfylgja heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna um atvinnutækifæri fyrir alla. Sam- starfsfyrirtækin fá að auki ýmiss konar fræðslu og efni sem þau geta nýtt í eigin starfi til að efla eigin mannauð.“ Ótvíræður ávinningur Helena segir mikið í húfi fyrir sam- félagið í heild sinni hvað þennan málaflokk varðar. „Ávinningurinn er margvíslegur fyrir samfélagið, bæði fyrir einstaklingana og fyrirtækin. En með því að ljúka starfsendurhæfingu einstaklinga á farsælan hátt, útvega þeim áhugaverð störf og fyrirtækjum gott starfsfólk, höldum við uppi virkri atvinnuþátttöku á Íslandi og stuðlum að heilbrigðu samfélagi.“ Þorsteinn tekur undir og segir áhrifanna gæta víða. „Ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Trygg- ingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatt- tekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.“ Atvinnutengingin hefur reynst vel. „Árangurinn hefur verið stigvaxandi og verkefnið farið vel af stað og móttökur verið góðar. Árið 2019 fóru 172 einstaklingar í starf með aðstoð atvinnulífs- tengla VIRK. Sumir fóru í f leiri en eitt starf eða vinnuprófun þannig að árið 2019 voru skráð 190 störf eða vinnuprófanir hjá atvinnu- tengingu VIRK,“ segir Jónína. „Í dag hafa yfir 300 fyrirtæki skrifað undir samstarfssamning við VIRK Atvinnutengingu. Verið er að skipuleggja stutta fræðslu- morgna fyrir þessi samstarfsfyrir- tæki þar sem fjallað verður um ýmis málefni sem tengjast því að bæta vinnuumhverfið bæði fyrir þá sem eru í vinnunni og einnig þá sem eru að snúa aftur til vinnu eftir langtíma veikindi. Stefnt er að því að fyrsti slíki fræðslu- morguninn verði núna seinni- partinn í mars næstkomandi en tilkynningar um hann munu fara út til samstarfsfyrirtækja í byrjun mars.“ 20 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.