Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Væntingar um skjóta efnahags- lega við- spyrnu, byggðar á misráðinni bjartsýni um að útbreiðsla veirunnar væri í rénun, eru ekki að ganga eftir. Það verður aldrei tekið til baka ef hingað berst mengað kjöt eða pestir. Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. Hún var afgerandi skoðanakönnunin sem MMR gerði á dögunum „Hversu andvíg(ur) eða fylgjandi ertu innflutningi til Íslands á hráu ófrosnu kjöti?“ Niðurstaðan kom ekki á óvart. Frekar og mjög andvíg innflutningi voru 56% aðspurðra en mjög og frekar fylgjandi 27% þeirra sem afstöðu tóku. Konur reyndust vera andvígari innflutningi en karlar og ungt fólk á aldrinum 18-29 ára sá hópur sem kemur kannski mest á óvart og þó ekki en 54% þeirra voru mjög andvíg eða fremur andvíg. En aðeins 9% mjög fylgjandi. Þessi könnun er sú fyrsta sem gerð er eftir að stjórnvöld gáfust upp fyrir ESB og opnuðu fyrir inn- flutningi á hráu kjöti í veröld vondra frétta um sjúk- dóma í dýrum og pensilínnotkun bæði í dýr og fóður dýranna. Og ekki síður þar sem faraldrar sjúkdóma halda áfram að herja á landbúnað eins og til dæmis hin afríska svínapest núna. Allir landsmenn eru meðvitaðir um að íslenskur landbúnaður er einstaklega heilbrigður og hér eru uppi strangari kröfur en í nokkru öðru landi um notkun lyfja og um að farga hjörðum sem smitast hafa af salm- onellu- eða kampýlóbakter-smiti. Nú er mikilvægt að eftirlitsaðilar standi vörð um að skilyrðum sé fylgt og að innflytjendur vandi sín vinnubrögð. Það verður aldrei tekið til baka ef hingað berst mengað kjöt eða pestir. Þetta er ekki bara spurning um að rétt skjöl fylgi kjötinu heldur hitt að það sé rannsakað út frá okkar kröfum. Prufur teknar og settar í rannsókn hér. Hitt er svo jafn- mikilvægt og fyrr að stjórnvöld styðji við landbúnað í öllum greinum landbúnaðarins. Best væri að setja sér 5-10 ára áætlun um að íslenskir bændur framleiði allt kjöt, allar mjólkurvörur og allt grænmeti sem Íslend- ingar og gestir þeirra ferðamennirnir neyta á Íslandi. Til þess þarf að skapa velvilja hjá stjórnmála- mönnunum. Hann er hjá þjóðinni samkvæmt þessari skoðanakönnun. Sá stjórnmálaflokkur sem þorir að setja þessa stefnu á oddinn er á framtíðarvegi. Áfram íslenskir bændur, þið skarið framúr með heilnæmar landbúnaðarvörur. Íslendingar vilja sitt kjöt frá sínum bændum Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra Spurningin er ekki lengur hvort heldur hve mikil áhrif kórónaveirufaraldursins verða á heims-hagkerfið. Eftir að hafa fyrst stórlega vanmetið þau hafa viðbrögð fjárfesta á fjármálamörk-uðum beggja vegna Atlantshafs verið harkaleg í vikunni. Hlutabréfavísitölur hafa fallið eins og steinn og fjármagnið leitar nú í skjól öruggari eigna á borð við bandarísk ríkisskuldabréf og gull. Íslenski markaðurinn, sem óttast að veiran sé að breiðast út um Evrópu með tilheyrandi höggi á ferðaþjónustuna, hefur ekki farið varhluta af þessari þróun – og sumpart hafa viðbrögðin verið enn ýktari en á erlendum mörkuðum. Úrvals- vísitalan hefur lækkað um níu prósent á aðeins fjórum dögum. Hlutabréfaverð Icelandair hefur tekið langmestu dýfuna, eða um nærri 30 prósent, og markaðsvirði flug- félagsins því skroppið saman um 14 milljarða. Fyrri smitfaraldrar virðast hafa lítið forspárgildi um þróun mála. Staðfest smit af völdum kórónaveirunnar á heimsvísu, en tilfellum utan Kína fjölgar nú ört, eru orðin fleiri en 80 þúsund talsins og dauðsföll nálgast þrjú þúsund. Til samanburðar greindust um átta þúsund manns með SARS-veiruna, sem átti einnig upptök sín í Kína og olli dauða um 800 manns, á árunum 2002 til 2003. SARS-veiran dró þá niður hagvöxt í Kína um eitt prósentustig en áhrifin í öðrum helstu hagkerfum heimsins voru hverfandi. Nú er staðan allt önnur. Kín- verska hagkerfið stendur undir um 17 prósentum heims- framleiðslunnar, borið saman við aðeins fjögur prósent 2003, og er miðpunkturinn í helstu framleiðslukeðjum alþjóðlegra fyrirtækja. Ef það hriktir í þeim hefur það alvarleg og keðjuverkandi áhrif um allan heim. Fyrir íslenska þjóðarbúið, sem er í miðri niðursveiflu, kemur útbreiðsla veirunnar á óheppilegum tíma. Sem lítið opið hagkerfi er Ísland afar háð alþjóðaviðskiptum og því munum við finna vel fyrir því ef það fer að hægjast á vexti í okkar helstu viðskiptalöndum. Tíma- bundið hökt í utanríkisviðskiptum, eins og fram kom í umfjöllun Markaðarins í vikunni, verður hins vegar smáræði miðað við samdráttinn í eftirspurn sem raun- gerist þegar fólk fer að halda að sér höndum í neyslu og ferðalögum samtímis því sem veiran breiðist út til fleiri landa. Bjartsýni neytenda mun dragast saman og þá um leið fjárfestingar fyrirtækja. Væntingar um skjóta efna- hagslega viðspyrnu, byggðar á misráðinni bjartsýni um að útbreiðsla veirunnar væri í rénun, eru ekki að ganga eftir og peningamálayfirvöld, einkum í Evrópu þar sem vextirnir eru við núllið, eru í afar aðþrengdri stöðu. Aðeins er talið tímaspursmál hvenær veiran berst hingað til lands. Við það munu efnahagslegu áhrifin verða meiri og beinni, eins og við höfum séð í öðrum löndum. Helstu áhyggjurnar lúta að ferðaþjónustunni, sem stendur undir um 40 prósentum af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins, þar sem hætta er á að afbókunum taki að fjölga og ferðamönnum fækki eftir því sem veiran breiðist út. Flest ferðaþjónustufyrirtæki, sem hafa þurft að takast á við hvert áfallið á fætur öðru, eru að há varnarbaráttu og mega því illa við frekari skakkaföllum. Jákvæðu fréttirnar eru að stjórnvöld ráða yfir fjölmörg- um vopnum í vopnabúri sínu, meðal annars lækkun vaxta ásamt öðrum aðgerðum til að örva hagkerfið, til að bregðast við þessari dökku stöðu sem er að teiknast upp. Það er ekki lengur spurning um val heldur nauðsyn. Uggur og ótti Óupplýstir leiðtogar Yfirvöld hafa sætt gagnrýni úr nokkrum áttum fyrir viðbrögð sín við kórónafaraldrinum sem nú skekur heimsbyggðina. Óupplýstir leiðtogar hafa blaðrað um að loka landinu og loka þá sem eru í áhættu- hópi saman í sóttkví í stórum rýmum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir jarðaði þær hugmyndir með vísindaþekk- ingu sína að vopni og var það vel. Svona upphrópanir eru kannski eðlilegar í ljósi þess að margir eru skelkaðir vegna faraldursins. Það veldur þó vonbrigðum að áhrifafólk haldi ekki ró sinni og enn sárari væru vonbrigðin ef popúlískir stjórnmálamenn ætluðu að nýta sér ótta almenn- ings til atkvæðaveiða. Núna er hvorki stund né staður til að sá fræjum efasemda um hvernig yfirvöld takast á við vandann. Slíkt skilar einfaldlega engu nema meiri ótta og það mun bara gera verkefnið erfiðara. Treystum sérfræðingum Það er einfaldlega engin ástæða til þess að vantreysta mati sér- fræðinganna á stöðunni. Fyrsta smitið mun brátt greinast hér á landi og við verðum einfaldlega að treysta því að mat heilbrigðis- yfirvalda sé rétt. Að íslenska heilbrigðiskerfið sé í stakk búið til þess að takast á við verkefnið. Mikilvægast er að hver og einn horfi í eigin barm og fari eftir til- mælum heilbrigðisyfirvalda. bjornth@frettabladid.is 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.