Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 11
Í DAG Þórlindur Kjartansson BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Bílasala Reykjaness Reykjanesbæ www.bilasalareykjaness.is 419 1881 Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced. Nýr Nissan JUKE er einn tæknilegasti bíll sem Nissan hefur kynnt, öll ljós á ytra byrði eru LED og á aðalljósum er að auki sjálfvirk birtustýring á háum og lágum geisla. Neyðarhemlun og tengingar við Apple CarPlay og Android Auto eru staðalbúnaður og nýtt ProPilot akstursöryggiskerfi fylgist með akstri ökumanns og stýrir ef þörf krefur, dregur úr eða eykur hraðann þegar á þarf að halda. NISSAN JUKE ACENTA, bensín, sjálfskiptur Verð frá: 3.790.000 kr. NÝR NISSAN JUKE SKARTAR ÖLLU ÞVÍ NÝJASTA E N N E M M / S ÍA / N M 9 8 1 0 6 N is s a n J u k e 5 x 2 0 f e b Það er erfitt að gera sér almennilega grein fyrir því hversu hræddur maður á að vera við COVID-19 veiruna. Örugg leið til þess að fara fullkomlega yfirum af áhyggjum er að liggja yfir netfréttum, einkum eftir því sem fjær dregur því sem kallast mættu ábyrgir fjölmiðlar. Alls kyns kenningar og misvísandi tölfræði er á reiki og þegar óttinn byrjar að hreiðra um sig virðist gjarnan nær- tækast að trúa helst því sem felur í sér mesta voðann. Það er því skiljanlegt að þessa vikuna séu allir að tala um COVID- 19 veiruna. Í síðustu viku voru hins vegar allir að tala um persónuleika- próf Íslenskrar erfðagreiningar og við fyrstu sýn virðist þetta ekkert tengjast. En persónuleikaprófið gæti veitt óvænta innsýn því í gegnum það tókst mörgum að læra sitthvað um sjálfa sig sem hugsan- lega hefur áhrif á hversu miklar áhyggjur þeir ættu að hafa af veirum á borð við COVID-19. Vonandi þarf ekki að taka fram að þessar glannalegu kenningar hér ber því ekki að taka alvarlega, ólíkt leiðbeiningum sóttvarnalæknis sem allir ættu auðvitað að hlýða. Þröngsýnir og ófélagslyndir sleppa vel Reyndar má hafa ýmsar athuga- semdir við framsetninguna á prófinu og einkum þýðingarnar á persónueiginleikunum sem gerð var tilraun til að mæla. Það kann til dæmis að virðast mjög eftirsóknar- vert í prófinu að vera „víðsýnn“ enda er andstaða þess líklega sú að teljast þröngsýnn—sem verður seint talið til aðlaðandi persónu- kosta. En það sem raunverulega var verið að mæla í þeim hluta könnunarinnar kallast á ensku „openness“ og hefur meira að gera með það hversu mikinn áhuga fólk hefur á að prófa nýja hluti. Líklegt er að þeir sem hafa komist að því í prófinu að þeir séu „lágir í víðsýni“ séu ólíklegri til þess að fá smitsjúk- dóma heldur en þeir sem stöðugt vilja vera að prófa eitthvað nýtt, kynnast nýjum hlutum og komast í tæri við nýtt og framandi fólk. Annar angi persónuleikans sem gæti haft áhrif á smithættuna er það sem kallað var „úthverfa“ í prófinu og er þýðing á enska hug- takinu „extroversion“. Sá þáttur mælir í raun einna helst hversu vel fólki líður í fjölmenni. Í svona prófum gefur framsetningin gjarnan í skyn að eftirsóknar- verðara sé að mælast félagslyndur en hlédrægur þótt augljóst sé að heimurinn þurfi á alls konar týpum af halda. Veröldin væri ekk- ert endilega betri ef allir væru eins hressir og Gísli Marteinn, eða ef allir væru eins hlédrægir og Megas. Best að hafa mátulega mikið af hvorri týpunni fyrir sig. En þegar kemur að smitsjúkdómum þá má líklega slá því föstu að „úthverfan“ geti komið mönnum í koll. Þeir sem enda einir úti í horni í öllum partíum geta líklega huggað sig við að það er ólíklegra að þeir fái COVID-19 veiruna heldur en stuð- pinnarnir sem allir vilja heilsa upp á og hósta yfir. Persónuleikaprófið sem tug- þúsundir einstaklinga féllust á að taka, og margir birtu niðurstöður á netinu, lagði líka mælistiku á það hvort þátttakendur teldust vera samvinnuþýðir eða ekki. Reyndar má leiða líkur að því að þýðið kunni að vera skakkt, því ólík- legt er að allra ósamvinnuþýðasta fólkið láti sér detta í hug að taka prófið. Forstjórinn sjálfur, Kári Stefánsson, sagðist til dæmis sjálfur ekki hafa tekið prófið, enda líklegt að ósamvinnuþýði hans félli utan allra hefðbundinna skala. Í mæl- ingu á þessum þætti má líka velta vöngum yfir framsetningunni, þar sem prófið gefur til kynna að það sé eftirsóknarverðara að vera samvinnuþýður heldur en ekki. Spurningarnar virtust nefnilega alveg eins geta gefið tilefni til þess að flokka fólk eftir því hvort það sé sjálfstætt í hugsun eða leiðitamt. Og það er ekki víst að eins margir hefðu gumað sig af góðri niður- stöðu í prófinu ef skilgreiningarnar hefðu verið þannig. Fjórða persónuleikaeinkennið sem var mælt snerist um samvisku- semi. Niðurstaðan virðist fyrst og fremst snúast um það hvort fólk standi við það sem það annars vegar segist ætla að gera og hins vegar það sem það ætlar sér. Þeir sem starfa í mikilli óvissu, glíma við verkkvíða—eða eiga það til að skrópa og skila ekki verkefnum—fá skráða lélega einkunn í gagna- grunni Íslenskrar erfðagreiningar fyrir samviskusemi. Þegar kemur að hættunni á því að smitast af COVID-19 þá er líklegt að þeir sem neita að hlusta á fyrir- mæli og ráðleggingar séu líklegri til að fá veiruna heldur en þeir sem hlýða ráðleggingum sérfræðinga; og eins hljóta þeir samviskusömu, að standa betur að vígi heldur en þeir sem eiga það til að gleyma að þvo sér um hendurnar. Taugaveiklaðir líka? Þegar maður hugsar út í persónu- einkennin myndu eflaust flestir komast að þeirri niðurstöðu að hægt sé að finna kosti og galla við að vera hvar sem er á öllum sköl- um. Við þurfum bæði fylgjendur og leiðtoga, hlédrægt fólk og félags- málatröll, kærulausa sveimhuga og samviskusamt nákvæmnisfólk; og líka varkára íhaldsmenn og ævin- týragjarnt byltingarfólk. En ein persónugerðin virðist þó við fyrstu sýn einungis fela í sér ókosti. Í prófi ÍE var það kallað „jafnaðargeð“ sem á ensku er nefnt „neuroticism“—og gæti líklega útlagst sem taugaveiklun. Það mun til dæmis vera algengt að listafólk mælist með mikla taugaveiklun, sem gæti gefið til kynna bæði frjótt ímyndunarafl og mikla með- líðan—en almennt séð þvælist það frekar fyrir fólki ef það hefur ekki sæmilegt jafnaðargeð til þess að takast á við það sem lífið lætur að höndum bera. Þegar kemur að smitsjúkdómum gæti hins vegar verið undantekning á þessu. Sá sem af tilefnislítilli ofsahræðslu setur sjálfan sig í sóttkví er auðvitað mjög líklegur til þess að komast hjá því að smitast af veiru sem yfirvegaðra fólk er berskjaldað fyrir. Út frá persónuleikaprófi Íslenskr- ar erfðagreiningar finnst mér líklegt að þeir sem eiga minnsta hættu á að smitast séu þeir sem flokkuðust sem ómannblendnir (lágir í úthverfu) af því að þeir hitta sjaldan annað fólk; taugaveiklaðir (lágir í jafnaðargeði) því þeir fara enn var- legar en þörf er á; íhaldssamir (lágir í víðsýni) því þeir vilja sjaldan prófa nýja hluti og umgangast framandi fólk; og svo þeir sem eru bæði sam- viskusamir og samvinnuþýðir, því þeir hlýða óbrigðult fyrirmælum um handþvott, ferðalög og hvað- eina annað sem sóttvarnayfirvöld mæla fyrir um. Ef COVID-19 veiran er ekki komin nú þegar til landsins þá er það líklega bara tímaspursmál hvenær hún greinist eða kemur. Eftir því sem meiri tími líður, þeim mun líklegra er að vísindafólk og læknar nái að finna leiðir til þess að fyrirbyggja og lækna veikindin sem veiran veldur. Vonandi bless- ast það sem best. En fram að því er vitaskuld best að fylgja þeim fyrirmælum sem gefin eru út; þvo hendur, vera heima ef maður er veikur og hósta frekar inn í oln- bogann en í lúkurnar, og það ætti meira að segja ósamvinnuþýðasta fólk að láta sig hafa. Persónuleiki og smitsjúkdómar S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 11F Ö S T U D A G U R 2 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.