Fréttablaðið - 28.02.2020, Page 17
Ég er stundum spurð hvaða viðskiptatækifæri felist í því fyrir fyrirtæki að stuðla að
sjálf bærni og samfélagsábyrð.
Svar mitt er einfalt: Ég myndi vilja
heyra rökin fyrir viðskiptatæki-
færum sem stuðla ekki að sjálf-
bærni og samfélagsábyrgð,“ segir
Hrund Gunnsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Festu – miðstöðvar
um samfélagsábyrgð.
Hrund segir rannsóknir og
dæmin sýna að samfélagsleg
ábyrgð dragi úr áhættu í fjár-
festingum, skili betri afkomu,
ánægðara starfsfólki og nái til
stækkandi hóps neytenda sem
velja slíkar vörur og þjónustu.
„Enda hvers vegna ættum við að
fjárfesta eða stofna til reksturs sem
er hvorki sjálf bær né samfélags-
lega ábyrgur? Hlutverk fyrirtækja
hefur breyst síðastliðin 50 ár, frá
því að Nóbelsverðlaunahafinn
Milton Friedman talaði fyrir því
að hagsmunir hluthafanna ættu
að tróna efst. Þá annaðhvort gerðu
fyrirtæki sér ekki grein fyrir
áhrifum sínum á náttúru og sam-
félög, eða voru of lítil til að hafa
áhrif á félagslegt og efnahagslegt
jafnvægi. Þetta var meðal annars
þema á ársfundi Alþjóðaefna-
hagsráðsins (e. World Economic
Forum) í Sviss í byrjun árs, en þar
eiga aðild stærstu fyrirtæki heims.
Í ljósi hnattvæðingar, loftslags-
breytinga, tækniþróunar og örrar
þróunar í atvinnulífi nútímans
er ljóst að ábyrgð atvinnulífsins
er mikil. Það skiptir máli að huga
að sjálf bærni og samfélagsábyrgð
á grunnstigum. Að horfa til þess
hvernig verðmæti eru búin til, ekki
bara hvernig þeim er varið.“
Mikil ógn af loftslagsvá
Hrund tók við starfi framkvæmda-
stjóra hjá Festu fyrir um ári. Festa
var stofnuð árið 2011 af fyrirtækj-
unum Símanum, Rio Tinto, Lands-
bankanum, Össuri, Landsvirkjun
og Íslandsbanka.
„Leiðtogar þessara sex fyrir-
tækja höfðu þá framtíðarsýn að
mikilvægt væri að innleiða sam-
félagsábyrgð í fyrirtækjarekstur á
Íslandi. Síðan hefur það gerst hér
á Íslandi og alþjóðlega að þessi
málaflokkur hefur tekið risa-
stökk. Þar kemur aðallega tvennt
til; loftslagsbreytingar sem okkur
Hvers vegna
ættum við að
fjárfesta í eða stofna til
reksturs sem er hvorki
sjálf bær né samfélags-
lega ábyrgur?
F Ö S T U DAG U R 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0
Samfélagsábyrgð
fyrirtækja
Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, segir tilefni til bjartsýni þegar litið er til framtíðar og að mannkynið þurfi á hugviti og hugrekki að halda til að bæta heiminn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þurfum skýran ásetning
með gleði og festu í hjarta
Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð, segir
bæði gefandi og gaman að vinna með fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum þegar
kemur að sjálfbærni og samfélagsábyrgð fyrir samfélagið, afkomu fólks og vistkerfi jarðar.
Framhald af síðu ➛2
Kynningar: Festa, Landsbankinn,
ÁTVR, Nettó, Grænvangur,
Isavia, Arion banki, Vörður,
Verkís, KPMG, Bónus, Samskip,
Vodafone, Ölgerðin, Terra,
Hótel Fljótshlíð, VIRK, Eimskip
KYNNINGARBLAÐ