Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 28.02.2020, Qupperneq 22
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Grænvangur er hýstur hjá Íslandsstofu. Frá vinstri: Birta Kristín Helgadóttir, verkefnastjóri greininga, Kamma Thord­ arson, verkefnastjóri kynninga og Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Íslenskt atvinnulíf vill gera vel í loftslagsmálum og stuðla að sjálf bærri þróun,“ segir Kamma Thordarson, verkefnis- stjóri kynninga hjá Grænvangi hjá Íslandsstofu. „Grænvangur leggur áherslu á aðkomu atvinnulífs að metn- aðarfullu markmiði um Kolefnis- hlutlaust Ísland 2040,“ upplýsir Kamma. „Um þessar mundir eru Grænvangur og Nýsköpunarmið- stöð Íslands, í samstarfi við Festu og atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytið að skipuleggja Lofts- lagsmót 2020, þar sem fyrirtæki geta fundið aðila til að vinna með til að draga úr sinni losun.“ Gífurlegur áhugi er fyrir Lofts- lagsmótinu og þegar hafa 90 fyrir- tæki skráð sig og sínar lausnir. „Loftslagsmót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir eða bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Hér er átt við hvers kyns lausnir sem styðja við umhverfisvænni rekstur. Markmið viðburðarins eru: Að hvetja fyrirtæki til að kynna sér þær grænu lausnir sem eru í boði, að bjóða fyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu, og að stuðla að jákvæðum aðgerðum í rekstri fyrirtækja í þágu loftslagsmála,” segir Birta Kristín Helgadóttir, verkefnastjóri greininga, um Loftslagsmótið 2020 sem haldið verður 3. mars á Grand Hóteli en þess má geta að skráning er nauð- synleg. Stóra verkefni ársins, Hreinn, 2 og 3! snýr að því að f lýta orku- skiptum í samgöngum með því Grænvangur setur loftslagsmál í forgang Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og hefur það hlutverk að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að koma í veg fyrir frekari loftslagsbreytingar af mannavöldum. að fyrirtæki skuldbindi sig til að hætta nýskráningu fólksbíla sem keyra á bensíni og dísil frá og með árinu 2023 og skipti þá yfir í hrein orkubíla. „Við völdum orkuskipti í samgöngum sem okkar fyrsta verkefni því þar er bæði mest í húfi og lausnirnar skýrastar,“ segir Eggert Benedikt, forstöðu- maður Grænvangs. „Íslendingar hafa nú þegar náð þeim árangri að nýta endurnýjanlega orkugjafa fyrir bæði rafmagnsframleiðslu og húshitun en losun frá vega- samgöngum nemur um 975.000 tonnum koltvísýringsígilda á ári og þar má vel gera betur.“ Erlendis snýst starfsemi Græn- vangs um að kynna íslenskar grænar lausnir sem henta til útf lutnings og draga úr losun á heimsvísu. Teymið vinnur nú að því að kortleggja þær lausnir sem í boði eru og verða þær kynntar undir formerkjum Green by Iceland þegar fram líða stundir. Meira um Grænvang á graen- vangur.is Við völdum orku- skipti í samgöng- um sem okkar fyrsta verkefni því þar er bæði mest í húfi og lausnirnar skýrastar. Eggert Benedikt Guðmundson Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir segir þátttöku í Global Compact sáttmál­ anum geta verið mikils virði. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, verkefnastjóri á samkeppnis-hæfnissviði Samtaka atvinnu- lífsins, heldur utan um verkefnið hér á landi. „Hjá SA held ég meðal annars utan um verkefni tengd samfélagsábyrgð, þar á meðal Global Compact verkefnið en ég er einnig að vinna að verkefnum sem tengjast mennta- og jafnréttis- málum, góðum stjórnarháttum og fleiru. Allt verkefni sem skipta miklu máli fyrir íslenskt atvinnu- líf og samfélagið allt sem gerir starfið sérstaklega áhugavert og krefjandi.“ Verkefnin eru af ýmsum toga. „Auðvitað er það svo að starfsemi SA hverfist að miklum hluta um kjarasamninga og kjarasamninga- gerð en ýmiss konar greiningar- vinna og önnur efnahagslega og samfélagslega mikilvæg mál eru líka fyrirferðarmikil í okkar starfi enda spilar þetta allt saman í stóra samhenginu. Atvinnulífið er ekki eyland í samfélaginu.“ Víðtækt og veigamikið verkefni Ingibjörg segir Global Compact verkefnið bæði sögulegt og umfangsmikið. „Global Compact er stærsti vettvangur sinnar tegundar á heimsvísu. Vettvangurinn er merkilegur fyrir margra hluta sakir, meðal annars vegna þess að hann á uppruna sinn árið 1999 í samtali Sameinuðu þjóðanna við áhrifafólk á sviðum viðskipta og stjórnmála á heimsviðskiptaráð- stefnunni í Davos. Þar lagði Kofi Annan til að þessir aðilar stæðu saman að því að leiða til þess að atvinnulífið tæki ákveðna forystu og ábyrgð varðandi það að leiða Samfélagsábyrgð er ekki einkamál Tæp tuttugu ár eru frá stofnun Global Compact, alþjóðlegrar yfirlýsingar sem snýr að aukinni samfélagsábyrgð fyrirtækja og stofnana. Sáttmálinn er sá stærsti sinnar tegundar í heiminum. samfélagsþróun og viðskiptahætti í átt að bættum lífsgæðum fyrir alla,“ útskýrir hún. „Um er að ræða varanlegan vett- vang sem byggir á 10 stoðum eða markmiðum um ábyrga, mann- væna, afstöðu til umhverfis og samfélags. Global Compact talar vel við önnur verkefni sem taka á sömu viðfangsefnum. Þar er kannski fyrst að nefna Heimsmark- miðin sem taka í raun á mörgu af því sama en eru skilgreind með öðrum hætti og eðli málsins samkvæmt eru þau tímasett með skýran endapunkt og mælikvarða. Global Compact verkefnið er vel til þess fallið að vinna með Heims- markmiðin enda styðja þau grunn- hugmyndir vettvangsins.“ Mun hafa áhrif á árangur fyrirtækja Ingibjörg segir að velgengni fyrir- tækja muni á komandi árum að mörgu leyti ráðast af því hvernig þau nálgast þetta mikilvæga við- fangsefni. „Samfélagsábyrgð í verki er áskorun sem bíður atvinnulífs- ins um heim allan að takast á við. Margir eru komnir af stað og sinna málaflokknum afar vel. Aðrir eru að leita leiða og átta sig á því hvern- ig hægt er að nálgast verkefnið. Samfélagsábyrgð er ekki einkamál nokkurra fyrirtækja og er heldur ekki gæluverkefni eða einföld leið til markaðssetningar. Þetta er í raun efnahagsmál. Frammistaða og árangur fyrirtækja og jafnvel sam- félaga mun í framtíðinni ráðast af því hvernig aðilar halda á þessum málum og grundvallar á margan hátt þróun samkeppnishæfni.“ Ingibjörg segir smæð Íslands fela í sér bæði kosti og galla. „Þróunin er hröð og margar leiðir bjóðast í þessum efnum. Það veldur okkur nokkrum áhyggjum hversu hátt flækjustigið er orðið og hversu erfitt getur orðið fyrir þá sem vilja taka markviss skref að finna út þær leiðir sem þjóna best viðkomandi aðila. Þarna erum við í nokkurri sérstöðu í íslensku atvinnulífi þar sem mjög hátt hlutfall fyrirtækja eru lítil eða meðalstór og það getur reynst þeim erfitt að ná yfir þá sér- fræðiþekkingu sem nauðsynleg er til að koma málunum í formlegan farveg. Á móti kemur sérstaða okkar varðandi samfélagið sem við búum í. Mörg af markmiðum Glo- bal Compact og Heimsmarkmiðum eru til dæmis afar aðgengileg fyrir íslensk fyrirtæki vegna þess hve góð lífskjör og aðstæður við búum við.“ Mikilvægt að vinna saman Viðtökurnar hafa verið góðar hér á landi. „Hér á landi eru 24 fyrirtæki sem eru aðilar að vettvanginum og við finnum fyrir miklum áhuga hjá mörgum í kringum okkur. Global Compact er afar hentugur vettvangur sem fyrsta skref hjá fyrirtækjum sem stefna á mark- vissar aðgerðir. Þröskuldurinn er lágur og litlar kvaðir og kostnaður. Í rauninni veitir vettvangurinn fullkomið aðhald á fyrstu skrefum þessarar mikilvægu vegferðar og það er svo fyrirtækjanna að finna hvaða leiðir þjóna best hags- munum hvers fyrirtækis fyrir sig, allt veltur það á eðli starf- seminnar, umfangi, mörkuðum og aðstæðum.“ Þátttaka Íslands í verkefni af þessari stærðargráðu geti haft í för með sér ótal kosti. „Global Compact er þekkt á alþjóðavísu og sem gefur verkefninu mikinn styrk, bæði vegna tengslanna sem hægt er að byggja upp í gegnum netið en líka vegna þeirrar alþjóðlegu viður- kenningar sem aðild felur í sér. Slíkt er mikils virði fyrir land sem treystir á útflutning í eins miklum mæli og við gerum.“ Þá er nóg fram undan. „Nú er í undirbúningi að stofna form- legt net eða vettvang íslensku fyrirtækjanna sem eru aðilar að Global Compact. Með því neti viljum við styrkja frekara samtal fyrirtækja hér heima sem eru að vinna að verkefnum á sviði sam- félagsábyrgðar. Eins mun slíkur vettvangur eiga í góðu samtali við önnur samtök og hagsmunaaðila sem vinna að slíkum málefnum,“ segir Ingibjörg. „Það er mikilvægt að allir sem að þessum verkefnum koma leggist saman á árarnar varðandi það að einfalda og skýra eins og kostur er þennan frumskóg sem mark- mið, staðlar, regluverk, vottanir og kerfi samfélagsábyrgðar eru í dag. Það verður ekki hjá því komist að fyrirtæki taki afstöðu til þess hvernig þau vilja vinna að verk- efnum á sviði samfélagsábyrgðar á næstu misserum og SA mun með stuðningi við Global Compact og eftir öðrum leiðum styðja fyrirtæki á þeirri vegferð eins og kostur er.“ 6 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.