Fréttablaðið - 28.02.2020, Síða 26
Ragnar Ómarsson er byggingafræðingur hjá Verkís verkfræðistofu. Hann segir að aukin áhersla á sjálfbærni mann-
virkja sé mikilvægt næsta skref þegar kemur að baráttunni við loftslagsbreytingar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þetta segir Ragnar Ómarsson, byggingafræðingur á bygg-ingasviði Verkís. Hann segir
brýnt að huga betur að kolefnisfót-
sporinu sem þegar er bundið í eldri
mannvirkjum með því að nýta
byggingarefnin í mannvirkjunum
betur.
Kolefnislosun mannvirkja
heldur áfram eftir að
byggingu þeirra er lokið
„Byggingariðnaðurinn er ábyrgur
fyrir um 39 prósent af allri kol-
efnislosun mannsins á heimsvísu.
Losunin er tvíþætt, annars vegar
kolefnislosun sem er bundin
í mannvirkinu sjálfu á bygg-
ingartíma þess og hins vegar losun
vegna reksturs mannvirkisins á
líftíma þess. Innbyggða losunin er
það kolefni sem er losað við öflun
hráefna og meðhöndlun og fram-
leiðslu byggingarefna, f lutning
þeirra á byggingarstað, uppbygg-
ingu mannvirkisins, niðurrif þess
að loknum líftíma ásamt úrgangs-
meðhöndlun og endurvinnslu,“
upplýsir Ragnar en kolefnið
sem losnar við rekstur mann-
virkis á líftíma þess, er til dæmis
vegna loftræstingar, húshitunar,
rafmagnsnotkunar og viðhalds
mannvirkisins.
Í starfi sínu veitir Ragnar meðal
annars ráðgjöf vegna sjálf bærni
mannvirkja.
„Þar er horft til þriggja þátta:
Vistvænnar hönnunar til að
vega á móti umhverfisáhrifum
mannvirkisins á líftíma þess,
lífsferilsgreiningar til að draga úr
fjárhagslegri sóun og samfélags-
greiningar til að viðhalda öryggi
og þægindum notenda án þess að
það bitni á umhverfi og fjárhag.
Lífsferilsgreiningar snúast um
að skoða hver séu umhverfisleg,
fjárhagsleg og samfélagsleg áhrif
vegna undirbúnings, uppbygg-
ingar, afnota, viðhalds og niðurrifs
mannvirkis á öllum líftíma þess,“
útskýrir Ragnar.
„Lykilatriði í allri áætlanagerð
fyrir mannvirkjagerð er að áætla
fyrir allan líftíma mannvirkisins,
frá fyrstu hugmynd og þar til fyrir-
sjáanlegt sé að hætta þurfi notkun
mannvirkisins,“ segir Ragnar og
bendir á að það breyti allri hugsun
við ráðgjöf um mannvirki og
mannvirkjagerð. Mikilvægt sé að
horfa lengra en aðeins til bygg-
ingar mannvirkja, þau lifi áfram
og skoða þurfi áhrif þeirra fram í
tímann.
„Gera þarf skýlausa kröfu um að
byggingar endist í marga áratugi
eða árhundruð til þess að draga úr
hráefnavinnslu og minnka sóun á
verðmætum,“ segir Ragnar.
Gera má ráð fyrir að endurnýj-
unarþörf mannvirkja sé á bilinu
eitt til tvö prósent á hverjum tíma.
Það þýðir að um það bil 98 til 99
prósent af öllum mannvirkjum eru
gömul. Ragnar bendir á að stærsti
vandinn hvað varðar umhverfis-
þáttinn sé vegna þeirra mann-
virkja sem þegar hafa verið byggð,
þar sé kolefnisfótsporið stærst.
„Það er hin eiginlega áskorun sem
við stöndum frammi fyrir í dag.
Það er tiltölulega auðvelt að ætla
sér að gera ný hús betur úr garði en
við gerum í dag en það er erfiðara
að taka eldri húsin og breyta þeim
þannig að þau dragi úr orku-
notkun á notkunartíma þeirra.
Í mannvirkinu er síðan bundið
kolefni, kolefnisfótspor sem er fast
í byggingarefnunum og við getum
aldrei tekið til baka og því er það
eina sem við getum gert að nýta
gömlu byggingarefnin betur,“ segir
Ragnar.
Þegar hús er komið á þann stað
á lífsferlinum að það þjónar ekki
lengur tilgangi sínum þarf að finna
leiðir til þess að nýta mannvirkið á
annan hátt eða nýta byggingarefni
þess með öðrum hætti til að spara
það bundna kolefni sem þegar er
til staðar í húsinu.
„Þetta er það sem við þurfum að
takast á við í æ ríkari mæli í okkar
ráðgjöf hjá Verkís. Við verðum að
beina sjónum okkar að því hvernig
hægt sé að endurnota mannvirki
og byggingarefni. Í f lestum til-
fellum er umhverfisvænna að við-
halda því sem til staðar er frekar
en að taka það í sundur og nota
byggingarefnin annars staðar eins
og gert hefur verið til dæmis í land-
fyllingum,“ segir Ragnar.
Við þurfum ekki að sækja
nýtt hráefni út í náttúruna
Að sögn Ragnars er einstaklingur-
inn fastur í fegurðarímynd sem
bundin er við tæknilega full-
komnun þegar kemur að bygg-
ingum og innanstokksmunum
þeirra sem veldur því að í dag sé of
miklu af nýtanlegu byggingarefni
hent. Fólk muni þurfa að tileinka
sér annað hugarfar um fegurð og
notagildi innanstokksmuna.
„Við viljum hafa borðplötur
sléttar en þurfum kannski að
sætta okkur við að þær verði ekki
þannig í framtíðinni. Við þurfum
að taka byggingarefni sem hefur
verið notað í eitthvað annað og
breyta því í borð. Við megum
varla sjá rispu á einhverju og þá
teljum við að það sé ónýtt. En það
er það ekki, það er hægt að nota
hlutina miklu meira og betur en
við gerum,“ bendir Ragnar á.
Tvöfalt gler er einnota í þeim
skilningi að þegar komin er móða
á milli glerja hefur þéttingin á
milli þeirra opnast og glerið er
ekki einangrandi lengur.
„Hvað gerum við þá? Við fáum
okkur bara nýtt tvöfalt gler,
vegna þess að það gamla er ónýtt,
segjum við. En það er ekkert
ónýtt, þetta eru bara tvær skífur
af gleri. Þetta getur jafnvel verið
þykkt og efnismikið gler. Og slíkt
gler er hægt að nota í meira en
bara að bræða það upp og nota
aftur sem gler,“ segir Ragnar.
Hann sér fyrir sér að með því að
skera glerið til sé hægt sé að nota
það í klæðningar eða jafnvel til að
setja ofan á borðplötur til að gera
þær sléttar á ný og draga þannig
úr þörfinni fyrir að sækja stöðugt
nýtt hráefni út í náttúruna.
Ragnar segir að aukin áhersla á
sjálf bærni mannvirkja sé mikil-
vægt næsta skref í baráttunni við
loftslagsbreytingar og telur að þar
verði gífurleg hugarfarsbreyting á
næstu áratugum.
„Ég sé fyrir mér að eftir ein-
hverja áratugi verði nýtni talin
eðlileg en stöðug endurnýjun
verði litin hornauga – að henda
gömlu og fá sér nýtt bara af því
að það er orðið gamalt er úrelt
afstaða.“
Við þurfum að endurskoða
hugmyndir okkar um fegurð
Sífellt fleiri leitast við að endurnýta skó og fatnað í stað þess að kaupa nýjan og henda þeim
gamla. Það er jákvæð þróun en ljóst er að eigi markmið Parísarsáttmálans að nást þarf mann-
kynið að gera róttækari breytingar á hugsunarhætti sínum, venjum og neyslumunstri.
Stærsti vandinn hvað varðar umhverfisþáttinn er vegna mannvirkja sem þegar hafa verið byggð. Þar er kolefnisfótsporið stærst.Ragnar sér fyrir sér að hægt sé að nýta gler á marga vegu.
10 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA