Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 28
Bónus er fyrsta
matvörukeðja
landsins til að kolefnis-
jafna rekstur verslana
sinna.
Baldur
segir að það
séu spennandi
og umhverfis-
vænir tímar
fram undan hjá
Bónus og að
samfélagsleg
ábyrgð hafi
sjaldan verið
mikilvægari
en einmitt nú.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Hjá Bónus er boðið upp á sama verð um land allt, rekstur verslana er kolefnis-
jafnaður, sorp er f lokkað vandlega
og plastnotkun hefur minnkað
gríðarlega. Bónus hefur lagt sitt
af mörkum hvað varðar lýðheilsu
landsmanna með því að hafa aldr-
ei selt tóbak í verslunum sínum og
vinnur gegn matarsóun með því
að selja mat á síðasta snúningi með
afslætti.
„Það er hægt að sýna fram á
samfélagslega ábyrgð á svo marga
vegu og má því segja að stærsta
samfélagsverkefni Bónuss sé ef til
vill okkar ábyrga verðstefna. Í 31
ár höfum við boðið upp á sama
verð í öllum verslunum okkar um
allt land og á sama tíma lægra verð
en gengur og gerist,“ segir Baldur
Ólafsson, markaðsstjóri Bónuss.
„Þetta hefur margoft verið staðfest
í verðlagskönnunum ASÍ.“
Skiptir neytendur máli
„Við vitum að rekstur stórrar versl-
anakeðju hefur vitaskuld áhrif
á umhverfið og við viljum gera
allt sem við getum til að stuðla að
verndun umhverfis og náttúru,
enda er loftslagsváin eitt stærsta
verkefnið sem samfélagið stendur
frammi fyrir sem heild,“ segir
Baldur. „Það eru margar áskoranir,
en við teljum okkur vera að fara í
rétta átt og vera í takt við það sem
neytendur vilja sjá í sinni mat-
vöruverslun. Góð umhverfisstefna
og árangursríkar aðgerðir stórra
fyrirtækja skipta neytendur sífellt
meira máli og okkur líka.
Eitt af því sem er gott við að
hafa góða og virka umhverfis-
stefnu, fyrir utan að huga betur
að umhverfinu okkar, er að þessar
aðgerðir eru fjárhagslega hag-
kvæmar,“ segir Baldur.
Fyrsta matvörukeðjan
til að kolefnisjafna
„Bónus er fyrsta matvörukeðja
landsins til að kolefnisjafna
rekstur verslana sinna. Í samstarfi
við Kolvið gróðursettum við 6.670
tré til að dekka kolefnisfótspor
reksturs ársins 2018 á tveggja
hektara svæði við Úlfljótsvatn, en
verslanir okkar eru í dag 31 talsins,
nítján á höfuðborgarsvæðinu
og tólf á landsbyggðinni,“ segir
Baldur. „Klappir grænar lausnir
hf. býður upp á umhverfisstjórn-
unarhugbúnað sem hjálpar fyrir-
tækjum og stofnunum að reikna út
sitt eiginlega kolefnisfótspor út frá
öllum viðeigandi þáttum, svo sem
úrgangi, hita, rafmagns- og vatns-
notkun og fleira. Hugbúnaðurinn
hefur nú verið innleiddur í verklag
Bónuss, sem hefur hjálpað og mun
halda áfram að hjálpa okkur að
ná enn betri árangri í umhverfis-
málum.“
Niðurstöður úr mælingu á kol-
efnisfótspori Bónusverslana fyrir
árið 2019 munu detta í hús á næstu
dögum,“ segir Baldur. „Í sumar
verður svo farið í hinar eigin-
legu mótvægisaðgerðir fyrir árið
2019 þar sem vissum fjölda trjáa
verður plantað í þennan sama
skóg á Úlfljótsvatni og bætast þá
við þau 6.670 tré sem þar eru fyrir.
Skógurinn verður því brátt hinn
myndarlegasti.“
Einnig leitast Bónus við að versla
eins mikið við innlenda fram-
leiðendur og hægt er til að minnka
innflutning og þar með minnka
kolefnisfótsporið.
Minnka sífellt plastnotkun
„Flokkun sorps skiptir miklu máli
hjá Bónus. Við flokkum úrgang og
erum alltaf að bæta okkur á hverju
ári, en eins og gefur að skilja fylgir
mikið sorp rekstri eins og okkar,“
segir Baldur. „Samkvæmt tölum
frá Terra mældist urðun sorps 14%
minni árið 2019 en árið áður og að
sama skapi var hægt að endur-
vinna 4% meira árið 2019 en 2018.
Þessar tölur sýna að við erum á
réttri braut hvað varðar flokkun
og magn úrgangs.
Við leggjum líka mikla áherslu á
að minnka plastnotkun okkar og
notum mun minna plast en áður
og það er alltaf að minnka. Við
erum sífellt að skora á okkar birgja
að gera slíkt hið sama og ef þeir
standa sig vel verður þetta mun
auðveldara fyrir okkur. Til dæmis
fóru Bónus súpurnar úr plast-
fötum yfir í pappaumbúðir og nú
er allt nýbakaða bakkelsið að fara
úr pokum og bökkum úr plasti í
pappaöskjur. Við þessar aðgerðir
mun plastnotkun í þessum vöru-
Bónus hefur sýnt
gott fordæmi í 31 ár
Frá stofnun hefur eitt stærsta samfélagsverkefni Bónuss
verið að bjóða sama lága verðið um land allt, en auk þess
hugar keðjan vel að umhverfisvernd og takmarkar sóun.
Bónus hvetur viðskiptavini sína til að nota fjölnota burðarpoka og net og
hefur gefið viðskiptavinum um 100 þúsund fjölnota poka. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
f lokki minnka um allt að 90%.
Umbúðir utan um ferskt nauta-
hakk og hamborgara frá Íslands-
nauti eru nú komnar í 100% endur-
vinnanlegar umbúðir og er notast
við 70% minna plast en áður.
Bónus var fyrsta matvöru-
verslunin á landinu til að hætta
með plastburðarpoka og bjóða í
staðinn upp á lífniðurbrjótanlega
poka,“ segir Baldur. „Þessir pokar
brotna 100% niður á nokkrum
mánuðum, eiga að flokkast með
lífrænum úrgangi og geta á end-
anum orðið að moltu.
Fyrst og fremst hvetjum við við-
skiptavini okkar til að nota fjöl-
nota burðarpoka og til að mynda
gaf Bónus viðskiptavinum sínum
100 þúsund fjölnota poka til að
reyna að ýta undir notkun þeirra
á sama tíma og Bónus skipti út
plastburðarpokum,“ segir Baldur.
„Fólk þarf bara að temja sér að
taka þá með, þeir vilja oft gleymast
heima. En við bjóðum þó enn upp
á líf niðurbrjótanlega poka ef sá
fjölnota gleymist.“
Tóbakslaus í 30 ár
„Bónus hefur verið án tóbaks í öll
sín 30 ár og aldrei selt sígarettur
12 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA