Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 32
Kolefnisspor
Ölgerðarinnar
hefur minnkað um 54
prósent frá 2016. Það er
mikið gleðiefni og við
vitum ekki af öðru
fyrirtæki sem hefur nú
þegar náð því markmiði.
Við erum þó hvergi
nærri hætt og ætlum að
setja okkur enn metn-
aðarfyllri markmið á
næstu árum.
„Við vinnum að samfélagsábyrgð af alvöru og tökum þann þátt inn í allar ákvarðanir, stórar sem smáar, í starfsemi okkar og við viljum vinna að henni af heilum hug,“ segir Málfríður Guðný Kol-
beinsdóttir, sérfræðingur í umbótastjórnun og sjálfbærni hjá Ölgerðinni. Þar er unnið með umbætur fyrir umhverfismál á hverjum degi og tekin mörg ný skref í rétta átt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það skiptir rótgróið fyrirtæki eins og Ölgerðina miklu máli að sinna samfélagslegri
ábyrgð, segir Málfríður Guðný
Kolbeinsdóttir, sérfræðingur í
umbótastjórnun og sjálf bærni hjá
Ölgerðinni. Þannig nái fyrirtækið
samkeppnisforskoti og styðji við
þá framtíðarsýn fyrirtækisins að
vera fyrsta val viðskiptavinarins
og neytenda. „Við vinnum að sam-
félagsábyrgð af alvöru og tökum
þann þátt inn í allar ákvarðanir,
stórar sem smáar, í starfsemi okkar
og við viljum vinna að henni af
heilum hug.“
Á 100 ára afmæli Ölgerðarinnar
árið 2013 hófst vinna að samfélags-
ábyrgð fyrir alvöru að hennar
sögn en sama ár birti fyrirtækið
fyrstu skýrslu sína um samfélags-
ábyrgð. „Nú eru liðin sjö ár og við
höfum komist langt á þessum tíma
í átt að sjálf bærara fyrirtæki. Við
erum þó hvergi nærri hætt enda er
samfélagsábyrgð stöðugt ferðalag
og stöðugar umbætur frá degi til
dags.“
Allt að 600%
umhverfisvænna
Meðal stærri verkefna á sviði sam-
félagslegrar ábyrgðar sem Ölgerðin
vinnur að má nefna að allar
plastflöskur eru úr 50% endur-
unnu plasti, kolefnisspor
fyrirtækisins hefur minnkað
um 54% á fjórum árum og
sífellt er unnið að því að
gera fyrirtækið umhverfis-
vænna. Auk þess minnir
Málfríður á að það sé
allt að 600% umhverfis-
vænna að velja íslenska
drykkjarvöru. „Við fengum
EFLU verkfræðistofu til að
reikna út kolefnisspor mis-
munandi tegunda umbúða
hjá okkur og sýna helstu
niðurstöður, út frá umhverf-
islegum sjónarmiðum, að
ekki er ákjósanlegt að tappa
á drykki erlendis og flytja inn
fullar umbúðir. Greiningin
tók mið af framleiðslu og
flutningi umbúða og var allt
að 600% umhverfisvænna að
velja íslenska drykkjarvöru.“
Plastflöskur úr 50%
endurunnu plasti
Í skýrslunni sem EFLA vann
kom í ljós að hlutfall endurunn-
inna efna í framleiðslu umbúða
skiptir verulegu máli hvað
kolefnissporið varðar. „Á þessu
ári munu allar plastflöskur okkar
vera úr 50% endurunnu plasti auk
þess sem við munum létta allar 0,5
lítra plastflöskur um 1,5 grömm.
Umhverfisvænna
að framleiða heima
Á 100 ára afmæli Ölgerðarinnar árið 2013 hófst þar vinna
að samfélagsábyrgð fyrir alvöru. Á sjö árum hefur margt
breyst en starfsmenn eru þó hvergi nærri hættir.
Kristall er íslensk framleiðsluvara
en mun umhverfisvænna er að
framleiða drykkjarvörur hér heima
en að flytja þær inn.
Þannig verða flöskurnar 5,5
grömmum léttari en árið 2008.“
Samkvæmt skýrslu EFLU verður
50% endurunnið plast sú umbúða-
gerð sem er með minnstu kolefnis-
losunina af þeim umbúðum sem
eru í boði. „Með því að skipta
úr 0% í 50% endurunnið plast
minnkar kolefnisspor umbúðanna
um 17% og verður kolefnisspor
þess minna en áldósanna og gler-
flaskna.“
54% minna kolefnisspor
Árið 2015 setti Ölgerðin fram
yfirlýsingu, ásamt 103 öðrum
fyrirtækjum, um að minnka kol-
efnissporið sitt um 40% til ársins
2030 og ná þannig sameiginlegum
loftslagsmarkmiðum Íslands með
ríkjum ESB og Noregi. Hún segir
að frá árinu 2016 hafi kolefnisspor
Ölgerðarinnar minnkað um 54%
og markmiðinu fyrir 2030 sé því
náð. „Þetta er mikið gleðiefni og
við vitum ekki af öðru fyrirtæki
sem hefur nú þegar náð þessu
markmiði. Við erum þó hvergi
nærri hætt og ætlum að setja
okkur enn metnaðarfyllri mark-
mið á næstu árum.“
Hún segir markvissar aðgerðir
hjá Ölgerðinni í umhverfis-
málum hafa skilað þessum
árangri. Ölgerðin hóf að raf-
magnsvæða bílaflota sinn og
eru nú allir áfyllingarbílar
fyrirtækisins rafmagnsbílar.
Einnig hefur verið markviss
vinna í því að setja í forgang
endurnýjanlega orku umfram
aðra óumhverfis vænni orku.
„Þetta auk margra annarra
þátta hefur skilað sér í því að
við náðum markmiðunum
okkar. Við viljum vera til
fyrirmyndar og á meðan við
vinnum í því að ná þessari
losun niður erum við að kolefnis-
jafna allan okkar rekstur.“
Umhverfisvænt brugghús
Í brugghúsi Ölgerðarinnar var
jafnframt hugað að umhverfis-
málum, að sögn Málfríðar. „Varmi
sem til verður á kælikerfum í
brugghúsinu er nýttur til að bræða
snjó á bílastæðinu. Allt hrat, svo
sem korn og humlar, sem fellur til
við bjórframleiðslu er nýtt í svína-
fóður af fyrirtækinu Stjörnugrís
en bara á síðasta ári voru það um
620 tonn. Þriðjungur af öllu geri
sem fellur til í framleiðslu er nýtt
í bjórsjampó sem er samstarfs-
verkefni með Verandi. Fjárfest
hefur verið í nýjum búnaði sem
hefur sparað vatnsnotkun töluvert
og fleiri verkefni eru í gangi með
umhverfissjónarmið að leiðar-
ljósi.“
Starfsmenn Ölgerðarinnar
munu halda áfram að vinna að því
að minnka kolefnislosunina og
gera starfsemina umhverfisvænni
frá degi til dags, segir Málfríður.
„Stóru verkefnin fyrir þetta ár
er að létta allar plastumbúðir
fyrir drykkina okkar og gera þær
umhverfisvænni með því að nota
endurunnið hráefni. Einnig mun
halda áfram vinna við að koma
öllum fólksbílaflota okkar yfir í
rafmagnsbíla. Auk þessara verk-
efna vinnum við með stöðugar
umbætur á hverjum degi fyrir
umhverfismálin okkar og tökum
þannig mörg skref í rétta átt.“
16 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSAMFÉLAGSÁBYRGÐ FYRIRTÆKJA