Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 39

Fréttablaðið - 28.02.2020, Side 39
Stór og samfélagslega mikilvæg fyrirtæki eins og Eimskip hafa sérstakar skyldur í umhverfismálum, sem við öxlum með festu og gleði. Það eru 29 ár síðan við settum okkur umhverfisstefnu, eitt af fyrstu íslensku fyrirtækjunum sem það gerðu. Þessi stefnufesta birtist í allri okkar starfsemi, hefur skilað árangri og mun halda því áfram. Við komum góðu til leiðar Margt smátt skilar árangri Við erum leiðandi í þróun rafrænna skipadagbóka og notum umhverfis- væna botnmálningu á skipin okkar. Við endurvinnum plast innanlands í samstarfi við Pure North. Staumur, nýi gámakraninn okkar er að fullu rafknúinn. Vottanir og samstarf varða leiðina Við erum þátttakendur í UN Global Compact og byggjum samfélagsábyrgðarstefnuna á UFS leiðbeiningum frá Kauphöllinni. Við erum aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og vinnum að rafvæðingu gagna með Klöppum grænum lausnum. Kre andi markmið halda okkur við efnið Við ætlum að minnka kolefnisspor okkar um 40% á næstu tíu árum, en við höfum minnkað sporið um 14,2% á síðustu 5 árum, sem er árangur sem við erum stolt af. Ný skip í smíðum eru búin sérstökum búnaði til að draga úr umhverfisáhrifum. Við stefnum að pappírsleysi og rafvæðingu skjala og nýjar höfuðstöðvar fela í sér margvíslega möguleika til að nýta betur vatn og rafmagn. Leiðandi á sviði umhverfismála í 29 ár

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.