Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞJÓÐLÖGIN ERU
OKKAR ALLRA OG
HVER OG EINN GETUR NÁLGAST
ÞAU Í GEGNUM SÍNA EIGIN RÖDD,
BÆÐI UNGIR SEM ALDNIR.Nemendur Mennta-skól a í t ón l i st klæða íslensk þjóð-lög í nýjan búning á þjóðlagatónleikum skólans, Heyri ég
hljóm . Á tónleikunum munu gaml-
ar þjóðlagaperlur hljóma í f lutningi
fjórtán söngvara og fimm manna
hljómsveitar. Flytjendurnir eru
allir í rythmísku námi en eru mis-
langt komnir, sumir munu útskrif-
ast í vor en aðrir eru á fyrsta ári og
allt þar á milli.
Gífurleg þekking
„Lögin eru valin af Ragnheiði
Gröndal og Ásgeiri Ásgeirs en þau
hafa bæði unnið mikið með þjóð-
lagatónlist á sínum ferli og verða
nokkrar af útsetningum Ásgeirs,
af plötunni Two sides of Europe
sem kom út 2017, f luttar á tónleik-
unum,“ segir Salóme Magnúsdóttir
söngkona.
Fólk getur átt von á að heyra
þjóðlagaperlur á borð við Ljósið
kemur langt og mjótt, Hættu að
gráta hringaná og Góða veislu gjöra
skal ásamt fleiri klassískum lögum.
„Það er brennandi áhugi meðal
okkar nemenda á þjóðlögum og
þekking þeirra Ásgeirs og Röggu á
efninu drífur okkur áfram og veitir
okkur innblástur. Í gegnum tón-
leikana fá nemendurnir að kynn-
ast þessari hefð og arf leifð sem er
svo mikilvæg og sterk í okkur,“ segir
hún.
Fara aftur til fortíðar
Heiti tónleikanna er eins og áður
kom fram Heyri ég hljóm, sem er
þekkt þjóðlag. Lagið verður þó ekki
f lutt á tónleikunum.
„Við völdum nafnið vegna þess
hve sterkur kveðskapur þess er og
vegna þess að tónleikar og tónlist
snúast í raun um að heyra hljóm.
Þema tónleikanna sprettur í
kringum forvitni og löngun til þess
að halda tónlistararf leifð okkar á
lofti í rythmísku söng- og hljóð-
færanámi,“ segir Salóme.
Hún segir þjóðlögin grunninn að
íslensku tónlistarlífi á sinn hátt.
„Fólk var að yrkja vísur og syngja
í fimmundum löngu áður en fyrsta
orgelið kom til landsins. Það er því
mikilvægt að fara aftur til fortíðar
og læra um það hvernig þetta byrj-
aði allt saman. Þjóðlögin okkar eiga
upptök sín í röddinni, þar vaknaði
lagasmíðin.“
Finna sína rödd
Á þessum tónleikum, segir Salóme,
var því ákveðið að leggja áherslu á
að láta röddina leiða úrvinnslu
margra laga. Með röddunum
hljóma víóla, fiðla, bassi, slagverk,
gítar og píanó auk þess sem áheyr-
endur geta búist við sellói í einu
lagi.
„Í rythmísku námi er
athygli nemenda
oft beint út fyrir
l a n d s t e i n a n a
þar sem fyrir-
myndirnar eru
söngvarar á borð
við Ellu Fitzgerald,
Sarah Vaughn og
Kurt Elling. Með þeim
kemur ákveðinn rammi
fyrir röddina sem við erum
að stíga út fyrir á þessum
tónleikum. Við reynd-
um að gera rými fyrir
söngvarana til þess að
finna sína eigin rödd
í gegnum þjóðlögin
en það er mjög verð-
mætt að nemendur
í rythmísku námi
kynnist þjóðlögum
og þjóðlagahefð,“
segir Salóme.
Í æfingaferlinu voru nemendur
hvattir til að nálgast lögin út frá
eigin tilfinningum, því þannig sé
eðli þjóðlaga.
„Þau eru okkar allra og hver og
einn getur nálgast þau í gegnum
sína eigin rödd, bæði ungir sem
aldnir. Ásamt því að syngja og
spila á hljóðfæri koma allir að sýn-
ingunni á mismunandi vegu, til að
mynda með því að sjá um umgjörð
sýningarinnar, sviðsmynd, hljóð-
heim og f leira,“ segir hún.
Tónleikarnir eru ekki einungis
til að gleðja eyru því þeim er einnig
ætlað að koma áheyrendum í tengsl
við liðna tíma og menningu í gegn-
um bæði hljóð og mynd. Þeir fara
fram á sunnudaginn klukkan 17.00
í hátíðarsal FÍH að Rauðagerði 27.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur og
miðasalan við innganginn og Sal-
óme segir alla vel-
komna á meðan
húsrúm leyf ir.
s t e i n g e r d u r @
frettabladid.is
Góða veislu gjöra skal
Þjóðlög eru nemum Menntaskóla í tónlist hugleikin þessa dagana.
Á sunnudaginn eru tónleikar þar sem nemendurnir flytja þjóðlög
ásamt kennurum sínum, Ragnheiði Gröndal og Ásgeiri Ásgeirs.
Stefanía, Hildur, Ragnheiður og Salóme koma allar fram á tónleikunum á sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
– MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
*Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019.
Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019
Auglýsingaefnið lendir á
eldhúsborðinu þegar blaðið er
opnað!
Íslendingar lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali.*
Kannaðu dreiileiðir og verð í
síma 550 5050
eða sendu tölvupóst á
orn@frettabladid.is.
Útvegum einnig hagstæð
verð í prentun.
93.000
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
Söng-
konan
Salóme Katrín er
nemandi í MÍT og
kemur fram á tón-
leikunum. MYND/
KATA JÓHANN-
ESS
2 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð