Fréttablaðið - 28.02.2020, Blaðsíða 56
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Þórarins
Þórarinssonar
BAKÞANKAR
NOCCO
330 ML
299
KR/STK
laugardalsvelli · opið kl. 10-21 öll kvöld
Ljúfar
lestrarstundirGóðar
gjafabækur
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
magnifique
york
ligne
classico magnifique
york
ligne
classico
magnifique
york
ligne
lassico magnifique
york
ligne
classi o
5 STJÖRNU HÓTELRÚMIN frá Serta eru framleidd til að fullnægja
ýtrustu kröfum. Fjaðrandi botn gefur 5 svæða heilsudýnunni óvið
jafnanlega fjöðrun og stuðning, lúxus yfirdýnan lagast að þér og
þér líður eins og þú svífir. Velkomin í þitt 5 stjörnu heilsurúm,
heima hjá þér – allar nætur – alltaf.
CLASSICO, YORK OG LIGNE eru með Serta Splendid Royal heilsu
dýnu frá Serta. Hún er fimm svæðaskipt pokagormadýna með
góðum stuðningi við bak en mýkra gormakerfi á axla- og mjaðma-
svæði. Hægt er að velja um tvo stífleika á dýnunni eftir því hvað
hentar hverjum og einum. Yfirdýnan er millistíf, úr kaldpressuðum
svampi og vinnur vel á móti fjöðruninni í botni og dýnu.
MAGNIFIQUE rúmið er með Serta Royalty Superior heilsudýnu
sem sker sig frá Splendid Royal m.a. með því að vera með tvískiptu
gorma kerfi og aukinni kantstyrkingu.
Áklæðið á rúmunum er slitsterkt bómullaráklæði, ofnæmisfrítt og
andar einstaklega vel. Það er fáanlegt í nokkrum litum sem eru
mismunandi eftir rúmgerðum. Hægt er að velja mismunandi fætur
og einnig eru fáanleg náttborð í stíl.
FIMM STJÖRNU LÚXUS HÓTELRÚM
– HEIM TIL ÞÍN –
Fimm stjörnu Hótel -rúmalínan frá Serta er nú á kynningarverði í Betra Baki auk þess að
nótt á Reykjavik Nordica ásamt morgunverði fyrir tvo og aðgangi að Hilton Reykjavik Spa fylgir
kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi í febrúar – mánuði elskenda.
Kynningarverð: 296.650 kr
Verð frá: Classico 160 x 200 cm (botn, fætur, dýna, yfirdýna og gafl)
Fullt verð: 349.000 kr. (með Hilton Reykjavik Nordica kaupauka 385.000 kr.)
Í FEBRÚAR
fylgir nótt fyrir tvo á Hilton Reykjavik Nordica,
ásamt morgunverði og aðgangi að Hilton Reykjavik
Spa, kaupum á Serta fimm stjörnu hótelrúmi.
Verðmæti: 36.000 kr.
FEBRÚAR – MÁNUÐUR ELSKENDA
SERTA ER OPINBER SAMSTARFSAÐILI
HILTON WORLDWIDE HÓTELKEÐJUNNAR
Allt sem ég veit um lífið og tilveruna hef ég úr kvik-myndum og leita frekar í
þann viskubrunn heldur en rök-
lausar skyndilausnir pólitíkusa
þegar þessi árans smitvá býr í lofti
og ferðast hratt milli landa.
Sennilega þess vegna hefur atriði
úr Tucker: The Man and His Dream
eftir Francis Ford Coppola sótt
á mig síðustu daga. Þar segir frá
Preston Tucker, stórhuga uppfinn-
ingamanni, sem reyndi skömmu
eftir seinna stríð að markaðssetja
snilldarhugmynd sína um krútt-
legan þriggja hjóla bíl.
Hann fór lóðbeint á hausinn
með Tuckerinn sinn. Aldraður
endurskoðandi Tuckers deildi
vonbrigðunum með honum og
reyndi að sleikja sárin með upp-
rifjun á gömlum varnaðarorðum
mömmu sinnar. Hún hafði bannað
honum að fara of nálægt fólki
vegna þess að hann gæti fengið af
því sýkla. Misheyrn þar sem enska
orðið „germs“ varð „dreams“ varð
til þess að upp frá því forðaðist
hann fólk sem gæti smitað hann af
draumum sínum. Ekki algalið þar
sem draumar, hugmyndir, langanir
og jafnvel hættulegar stjórnmála-
skoðanir eru jafn bráðsmitandi og
kvef, ælupestir og kórónaveikin.
Hugmyndir um að loka landinu
og breyta Egilshöll í smitfanga-
búðir með bíósal og keilubrautum
eru því vitaskuld þvættingur sem
gerir ekkert annað en magna upp
ótta sem skilar sér mögulega í pró-
sentubrotum þeirra allra hrædd-
ustu í skoðanakönnunum.
Lífið sjálft er smitsjúkdómur
sem virðir engin landamæri,
hvorki náttúruleg né manngerð.
Ég meina, fólk mun meira að segja
halda áfram að kyssast, faðmast,
ríða og haldast í hendur þótt varað
sé við því og mælt með sprittun.
Þetta er það sem það er og kemur
hvort sem okkur líkar betur eða
verr og í hversu sturlaða vörn við
pökkum.
Höldum ró okkar og höldum
áfram.
Smit