Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.01.2020, Qupperneq 5

Fréttablaðið - 02.01.2020, Qupperneq 5
 Á frettabladid.is finnur þú Fréttablaðið í dag og safn eldri blaða. Lestu Fréttablaðið þegar þér hentar á frettabladid.is FORSETAKJÖR Í nýársávarpi sínu í gær tilkynnti Guðni Th. Jóhannes­ son, forseti Íslands, að hann hefði tekið þá ákvörðun að bjóða sig fram á ný þegar fyrsta kjörtímabili hans lýkur. „Senn líður að lokum þessa kjörtímabils míns í embætti for­ seta Íslands. Rúmlega þrjú ár eru að baki, viðburðarík og minnisstæð. Hvað tekur við? Því ræður auðna en segja má tímabært og tilhlýði­ legt að lýsa því nú yfir að ég hyggst gefa kost á mér til frekari setu hér á Bessastöðum,“ sagði Guðni í ávarp­ inu. Í lögum um framboð og kjör for­ seta segir að forsetakjör skuli fara fram síðasta laugardag í júnímánuði fjórða hvert ár. Að þessu sinni ber þann dag upp á 27. júní. Í lögunum segir jafnframt að framboðsfrestur renni út eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag. Sé tekið mið af því rennur fresturinn því út 23. maí. Berist ekki önnur framboð er for­ seti sjálfkjörinn. Nýtt kjörtímabil forseta hefst 1. ágúst. Sitjandi forseti hefur verið sjálfkjörinn nokkrum sinnum, eða í sex skipti. Síðast árið 2008 þegar ekki barst mótframboð gegn Ólafi Ragnari Grímssyni. – jþ Guðni Th. Jóhannesson tilkynnir um framboð sitt til endurkjörs Þótt flugeldar lýstu upp himininn héldu afbrotin áfram á jörðu niðri. FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL LÖGREGLA Alls voru skráð 122 mál hjá lögreglunni á höfuðborgar­ svæðinu milli klukkan sautján á gamlársdag fram til klukkan fimm á nýársnótt. „Alls voru vistaðir tíu manns á lögreglustöðinni við Hverfisgötu á umræddu tímabili vegna ýmissa mála,“ segir í tilkynningu frá lög­ reglunni. Meðal þess sem þar er nefnt er mál manns sem tekinn var rétt fyrir klukkan níu á gamlárs­ kvöld akandi í hverfi 104 án þess að hafa nokkurn tíma fengið bílpróf. Hélt sá för sinni áfram fótgangandi. Nokkrum mínútum síðar var annar maður handtekinn í Vestur­ bænum grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og vera með óút­ skýrðar pillur í fórum sínum. Rétt fyrir tíu á gamlárskvöld barst síðan tilkynning um alvar­ lega líkamsárás í hver f i 108. Fórnarlambið var f lutt á spítala og meintur gerandi handtekinn. Laust eftir hálftólf var maður handtek­ inn í 101, grunaður um líkamsárás. Um hálftvö var svo annar maður handtekinn vegna líkamsárásar í Bakkahverfinu í Breiðholti. Laust fyrir klukkan tvö á nýárs­ nótt var konan tekin höndum í Hafnarf irði vegna gruns um líkamsárás. Rúmri klukkustund síðar handtók lögreglan mann í Kópavogi vegna líkamsárásarmáls. Annar maður var handtekinn í Kópavogi þegar klukkan var þret­ tán mínútur gengin í fjögur. Er sá grunaður um ölvunarakstur og að hafa valdið umferðaróhappi með því aka yfir á rauðu ljósi. Þá kemur fram að lögreglu­ menn hafi sinnt alls þrettán til­ kynningum um lausan eld eftir notkun skotelda) á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu á nýárs­ nótt og að í f lestum tilvikum hafi slökkviliðsmenn einnig mætt á staðinn. – gar Tíu á lögreglustöðinni um áramótin Sé tekið mið af því rennur fresturinn því út 23. maí. Berist ekki önnur framboð er forseti sjálf kjörinn. ÁRAMÓT Um miðjan dag í gær voru loftgæði víða með besta móti. Þá mældust þau í lagi á nær öllum stöðum á höfuðborgarsvæðinu sem og um land allt. Í heild var loftmengun vegna flug­ elda mun minni en í fyrra. Hún var þó komin yfir heilsu verndar mörk í Reykja vík um klukkan ellefu í fyrra kvöld og mældist svo lang mest um klukkan eitt á nýársnótt. Svif­ ryk mældist mest um sex falt það sem heilsu verndar mörk miða við. Þetta er mun minna svif ryk en mældist um ára mót í fyrra þegar það var um 21 sinni meira en það sem heilsu verndar mörk miða við. Þá var mengunin komin yfir mörk­ in fyrir klukkan tíu á gamlárskvöld en nú var hún að eins rétt komin yfir mörk fyrir klukkan ellefu á einum stað, við mæli Um hverfis stofnunar á Grens ás vegi. Heilsuverndarmörkin eru skil­ greind við 50 mí krógrömm af svif­ ryki á rúm metra. Mest mældust 317 mí krógrömm á rúm metra við Grens ás veg klukkan eitt í fyrrinótt. Í fyrra mældust 1.367 mí krógrömm á rúm metra þar á sama tíma. Vindur og rigning á gamlársdag og nýársnótt ollu því að loft gæðin urðu ekki verri nú, en í fyrra voru veður skil yrðin mun lakari hvað þetta varðar; þá var hæð yfir land­ inu og sem olli köldu og stilltu veðri. Svifryksmengunin hélst innan heilsu verndar marka í Mos fells bæ og Hafnar firði í alla nótt en hún fór vel yfir mörkin við Dal smára í Kópa vogi. Mengunin fór þá lítil lega yfir mörk á Akur eyri um klukkan tvö en fór f ljótt aftur niður fyrir þau. – ókp, jþ Loftgæði með besta móti Kjósa skal forseta síðasta laugardag í júni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þetta er mun minna svifryk en mældist um áramót í fyrra þegar það var um 21 sinni meira heilsu- verndarmörk miða við. Veðurhamurinn varð leitarmönnum loks um megn kvöldið fyrir gamlársdag. MYND/LANDSBJÖRG LÖGREGLUMÁL „Þetta er óvenjulegt vegna þess að það liggur svo lítið fyrir,“ segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, um leit að manni sem talið er að hafi ætlað í fjallgöngu á Snæfellsnesi. Leit hófst á Heydalsvæðinu á mánudag eftir að mannlaus bíll fannst þar. Maður sem leitað er að er eigandi bílsins. Hlé var gert á leitinni á gamlársdag vegna veðurs og leitin lá niðri í gær. „Það var leitað mjög vel á svæðinu þar sem bílinn fannst þar til veðrið stoppaði það um nóttina. Þau verk­ efni voru kláruð á gamlársdag og aftur var leitað með sporhundi og í hellum,“ segir Davíð. Leitað hafi verið úr þyrlu frá Landhelgis­ gæslunni með hitamyndavél. Ekki hafi viðrað til að f ljúga drónum á staðnum á mánudag. Lögreglan ákvað að gera hlé á leit­ inni til að afla gagna, að sögn Davíðs. „Það sem við vitum er að hann er búsettur á Íslandi. Samkvæmt upp­ lýsingum sem gefnar voru fyrst er hann vanur að fara út í náttúruna,“ segir hann. Engar upplýsingar séu til um hvernig hann var búinn. Og hann vísar á lögregluna með frekari upplýsingar varðandi frekari deili á manninum. Ekki náðist samband við lögregluna á Vesturlandi í gær og þaðan hafa engar tilkynningar borist varðandi málið. Davíð segir að leitað hafi verið við Kolbeinsfjall, í Haffjarðarárdal og dölum út frá honum. Áðurnefndir hellar, sem eru í Gullborgarhrauni, séu þekktir áningarstaðir, voru kannaðir á gamlársdag. Aðspurður segir Davíð að talið sé að bílinn hafi verið í örfáa daga á þeim stað þar sem hann fannst mannlaus. Sem fyrr segir er lögreglan nú í rannsóknarvinnu og hún er hugsuð til að geta gert áætlun um framhald leitarinnar. Davíð segir að þráðurinn verði tekinn aftur upp í dag. „Við hreyfum okkur ekkert nema að ósk lögreglunnar,“ útskýrir hann. Mikill fjöldi tók þátt í leitinni í upphafi. Davíð segir að á mánudags­ kvöld hafi björgunarsveitarmenn drifið víða að en á gamlarsdag hafi það fyrst og fremst verið mann­ skapur af Vesturlandi sem leitað hafi áfram. „Það voru margir í húsi að græja fyrir f lugeldasöluna og þeir voru klárir til að hlaupa út. Á um klukku­ tíma voru tvö hundruð manns komnir á staðinn eða á leiðinni þangað,“ segir upplýsingafulltrúi Landsbjargar. gar@frettabladid.is Leitað áfram að eiganda bíls sem var yfirgefinn í Heydal Lögregla ákvað að gera hlé á leit að manni sem er eigandi bíls sem fannst mannlaus á Snæfellsnesi. Veður setti strik í reikninginn aðfaranótt gamlársdags og ekkert var leitað í gær. Hugsanlegt er að maðurinn hafi ætlað í fjallgöngu. Hann er sagður vanur að fara út í náttúruna en ekki er vitað hvernig hann var búinn. Það sem við vitum er að hann er búsettur á Íslandi. Davíð Már Bjarnason, upplýsinga- fulltrúi Landsbjargar +PLÚS 2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.