Fréttablaðið - 02.01.2020, Síða 38
Íslenskt afreksfólk mun ræða leið sína að árangri, ásamt fagfólki í jafnvægislistinni um líf ið á fyrirlestradegi í Hörpu sunnudaginn 12.
janúar.
Landsmenn sem hafa belgt sig út
af salti og sykri ætla að setja sér ný
markmið fyrir komandi ár, sérstak-
lega hvað heilsuna varðar.
Á fyrirlestrinum Hamingja og
árangur verður lögð áhersla á það
að ná árangri í sínum markmiðum
án þess að missa sjónar af því sem
veitir manni hamingju. Sífellt f leiri
falla í gryfju of þreytu og kulnunar
í leik og starfi vegna of mikils álags
og sjálfskrafna um meiri og betri
árangur.
Fagfólk hefur í sífellt meiri mæli
bent á þetta og þeir sem f lytja
erindi á þessum degi munu leitast
eftir því að styrkja jafnvægið á
milli árangurs og hamingju.
Afreksfólk landsins
deilir reynslu sinni
Margt fremsta afreksfólk Íslands deilir reynslu sinni á fyrirlestra-
degi í Hörpu þann 12. janúar sem ber heitið Hamingja og árangur.
Guðni Gunnarson, eigandi Rope Yoga setursins
Guðni hefur mikla reynslu af hug- og heilsurækt eftir að
hafa starfað sem lífsráðgjafi í rúmlega 20 ár. Guðni er
einstaklega kraftmikill lífsspekingur sem hefur mikil áhrif
á þá sem hann umgengst. Fyrir jólin gaf hann út bókina
Máttur hjartans.
Elísabet Margeirsdóttir ofuríþróttakona
Elísabet mun tala um utanvegahlaup, en síðustu ár hefur
hún verið ein fremsta utanvega hlaupakona í heim-
inum. Hún lauk, fyrst kvenna í heiminum, 400 kílómetra
hlaupinu í Góbí-eyðimörkinni í Kína. Alls hófu 60 manns
hlaupið, þar af sjö konur. Hún er jafnframt fyrsta konan
í heiminum sem klárar þetta hlaup á undir 100 klukku-
stundum. Afrek hennar á þessu sviði eru enn þá fleiri en
saga hennar um árangur og umgengni við slík ofurverk-
efni er mjög áhugaverð.
Stutt ávörp og kveðjur
Þá munu gestir Hamingju og árangurs fá stutt ávörp og kveðjur af vettvangi frá nokkrum Íslendingum í gegnum mynd-
band. Þar á meðal John Snorra Sigurjónssyni, sem sendir stutta hugvekju frá grunnbúðum K2 í Pakistan sem er næst-
hæsta fjall í heimi. Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður og markvörður danska úrvalsdeildarliðsins Skjern,
mun einnig senda hugvekju. Nýlega kom út bókina Án filters þar sem hann greindi frá andlegum áskorunum sínum.
Margrét Lára Viðarsdóttir,
sálfræðingur og knattspyrnukona
Ekki bara margfaldur Íslandsmeistari í knattspyrnu og
fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins heldur er hún
íþróttafræðingur auk þess að vera með cand. psych. gráðu
í sálfræði og ætlar hún að gera andlegan styrk að umræðu-
efninu sínu og hvernig hreyfing getur stuðlað honum.
Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður
Sölvi gaf út bókina Á eigin skinni í fyrra, en þar lýsir hann
því hvernig hann vann sig út úr kvíða og vanlíðan sökum
ofkeyrslu. Sölvi hefur síðustu átta ár unnið sig markvisst
til baka í átt að betra lífi. Saga hans er mjög áhugaverð og
einlæg.
Vilborg Arna Gissurardóttir fjallagarpur
Vilborg er landsmönnum kunn sem ævintýrakona og pólfari. Vil-
borg gekk ein síns liðs á suðurpólinn árið 2013. Þá náði hún á hátind
Evrestfjalls árið 2017 fyrst íslenskra kvenna og lauk þar með sjö tinda
verkefni sínu.
2 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ