Fréttablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 2
Þegar öllu er á
botninn hvolft
snýst þetta blessaða líf um
það að gefa af sér
Gunnleifur
Gunnleifsson,
markvörður
Breiðabliks
Veður
Suðvestan hvassviðri eða stormur
og talsverður éljagangur í dag, en
hægari og bjart veður um landið
austanvert. Frost 0 til 7 stig.
SJÁ SÍÐU 22
SAMFÉLAG „Í fyrra fylltum við
nánast stúkuna og fólk hefur tekið
ótrúlega vel í þetta,“ segir Gunn
leifur Gunnleifsson, markvörður
í Breiðabliki og fyrrverandi leik
maður HK. Hann, ásamt liðsfélög
um, mun á laugardaginn, 11. janúar,
spila góðgerðarleik í knattspyrnu
til að heiðra minningu Bjarka Más
Sigvaldasonar sem lést langt fyrir
aldur fram á síðasta ári eftir harða
baráttu við krabbamein.
„Leikurinn er á milli Breiðabliks
og HK en Bjarki var alinn upp í HK
og var ótrúlega öf lugur fótbolta
maður,“ segir Gunnleifur. „Hug
myndin er sú að styrkja eitt góð
gerðarfélag á hverju ári og í ár varð
Ljónshjarta fyrir valinu,“ bætir
hann við.
„Valið stóð á milli margra góðra
félaga en í samráði við Ástrós, eig
inkonu Bjarka, völdum við Ljóns
hjarta en félagið vinnur ótrúlega
f lott starf fyrir ungt fólk sem hefur
misst maka og börnin þeirra,“ segir
Gunnleifur.
„Það hafa allir tekið ótrúlega vel
í verkefnið, bæði leikmennirnir,
Kópavogsbúar og aðstandendur
mótsins sem tóku því fagnandi að
þessi leikur yrði kallaður Bjarka
leikur og að safnað yrði fyrir góðu
málefni,“ segir Gunnleifur.
Aðspurður að því hvort sam
vinna mótherjanna HK og Breiða
bliks hafi gengið vel, þrátt fyrir að
liðin séu keppinautar inni á vell
inum, segir Gunnleifur að svo sé.
„Íþróttafélög eru svo miklu meira
en bara keppinautar, innan þeirra
fer fram uppeldisstarf og samstarf
ið á milli félaganna verður betra
með hverju árinu. Nú fáum við
tækifæri til þess að vinna saman og
hjálpa fólki í leiðinni,“ segir hann.
„Við höfum gert þetta áður og
það gekk ótrúlega vel, svo stefnum
við að því að gera þetta einu sinni á
ári. Það er auðvelt fyrir íþróttafélög
á Íslandi að gefa af sér til samfélags
ins með þessum hætti og þegar
öllu er á botninn hvolft snýst þetta
blessaða líf um það að gefa af sér,“
segir Gunnleifur.
„Það er bara frábært fyrir okkur
að fá þetta tækifæri, vinna saman
en fara svo í keppnisgírinn í níu
tíu mínútur og Breiðablik ætlar að
sjálfsögðu að vinna,“ segir Gunn
leifur brosandi.
birnadrofn@frettabladid.is
Safna fyrir Ljónshjarta
í minningu látins vinar
Á laugardaginn spila íþróttafélögin HK og Breiðablik svokallaðan Bjarkaleik.
Leikurinn er góðgerðarleikur til að heiðra minningu Bjarka Sigvaldasonar
sem lést úr krabbameini á síðasta ári. Allur ágóðinn rennur til Ljónshjarta.
Frá leiknum í fyrra, á laugardaginn munu liðin leika í minningu Bjarka Más.
Prjónað fyrir Ástralíu
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN
ER HAFIN
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Fjöldi manns kom saman á Kex Hosteli í Reykjavík í gærkvöldi til að prjóna poka fyrir pokadýr sem hafa slasast í skógareldunum í Ástralíu. Meira
en 500 milljónir dýra hafa drepist í eldunum og kalla dýraverndarsamtök eftir pokunum. Hjónin Viktor Þór og Anna Kristín frá Grindavík gerðu
sér sérstaklega ferð til þess að prjóna poka. Vinirnir Erin Jade Turner og Pétur Oddbergur Heimisson stóðu að viðburðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SKIPULAGSMÁL Breytingar sem
Garðbæingar hyggjast gera á
skipulagi í Vífilsstaðalandi vekja
upp margar spurningar hjá íbúum
í Kópavogi.
„Bæjaryfirvöldum í Kópavogi
hefur borist mikill fjöldi athuga
semda og ábendinga frá íbúum
við Þorrasali, Þrymsali og Þrúðsali
vegna kynntrar tillögu að breyt
ingum á skipulagi Vífilsstaðalands,
einkum Hnoðraholts í Garðabæ,“
segir skipulagsráð Kópavogs sem
vill fund með skipulagsyfirvöldum
í Garðabæ ásamt fulltrúum íbúa við
áðurnefndar götur.
Um er að ræða þrjár deiliskipu
lagsáætlanir sem lúta að blandaðri
byggð í Vetrarmýri, fyrirhugaðri
íbúðabyggð ásamt verslun og þjón
ustu í norðurhluta Hnoðraholts og
að Rjúpnadal þar sem gert er ráð
fyrir kirkjugarði og meðferðar
stofnun. – gar
Margt að athuga
við breytingar
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VEÐUR Enn einn stormurinn gengur
yfir landið í dag og hefur verið gefin
út gul við vörun á höfuð borgar
svæðinu og öllu Vestur landi og
appel sínu gul við vörun á Vest
fjörðum og í Breiða firði.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð
urstofunni mun mikill éljagangur
og skafrenningur fylgja hríðinni.
Má búast við víð tækum sam göngu
truflunum og lokunum á vegum.
Gul viðvörun er í gildi á höfuð
borgarsvæðinu til klukkan 17 í dag.
Spáð er suð vestan 15 til 23 metrum
á sekúndu með élja gangi. Skyggni
verður lé legt í éljum og má búast við
slæmum aksturs skil yrðum, einkum
í efri byggðum. Svipað er uppi á ten
ingnum á Suðurlandi.
Appel sínu gul við vörun er í gildi
til klukkan 18 á á Vest fjörðum og í
Breiða firði. Má búast við suð vestan
hríð með vind hraða á bilinu 20 til
28 metrum á sekúndu.
Þegar blaðið fór í prentun var
engin viðvörun í gildi á Norður
landi eystra, Austurlandi og Suð
austurlandi. – ókp
Slæmt veður
fram eftir degi
Appelsínugul viðvörun
er í gildi á Vestfjörðum og í
Breiðafirði fram eftir degi.
Íslenska karlalandsliðið í
handbolta flaug til Kaup-
mannahafnar í nótt til
að taka þátt í EM í hand-
bolta. Fyrsti leikurinn fer
fram í Malmö í Svíþjóð á
laugardaginn, þá mætir
Ísland Ólympíumeist-
urum Danmerkur.
9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð