Fréttablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 15
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is,
MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Bandaríkin
eru mikilvæg
vinaþjóð
okkar og
þeim sam-
skiptum þarf
að sinna.
Staðan hefur
aldrei verið
jafn alvarleg
að mati
þeirra sem
reyna að
tryggja
öryggi
sjúklinga á
bráðamót-
töku.
Allt frá upphafi forsetatíðar Donalds Trump hafa duttlungar og ofsafengnar tilfinningar stjórnað gjörðum hans. Fólk sem hann valdi til samstarfs við sig hrökklaðist fljótlega hvert á fætur öðru úr Hvíta húsinu. Skynsemi og yfirvegun
viku fyrir ringulreið og upplausn. Þannig var staðan
strax í byrjun og þannig er hún enn. Það sem helst
virðist sýna hvernig vindar blása dag hvern í Hvíta
húsinu eru æði skringilegar og ofsafengnar Twitter-
færslur forsetans. Ekki verður sagt að þær endurspegli
eftirsóknarverða sálarró. Þvert á móti bera þær vott um
hvatvísi, móðgunargirni og heiftarhug. Þegar þessar til-
finningar grassera innra með einum valdamesta manni
heims þá er ekki von á góðu.
Heimurinn er svo sannarlega fullur af hættum en er
nú orðinn enn hættulegri en áður eftir morðið á íranska
hershöfðingjanum Qasem Soleimani, sem Trump
fyrirskipaði. Soleimani, sem mun ekki hafa verið
friðarhöfðingi, varð samstundis að píslarvotti í hugum
Írana og morðið á honum gæti kallað hefndaröldur yfir
Bandaríkin. Trump er þó vitanlega hvergi banginn og
hótaði eyðileggingu menningarverðmæta Írana yrði
hefnt fyrir morðið. Einhverjum virðist hafa tekist að
útskýra fyrir honum að slíkt flokkast sem stríðsglæpur
því nýlega dró hann nokkuð í land, en greinilegt var af
orðum hans og fasi að honum þætti stórfurðulegt að
slík aðgerð væri talin glæpsamleg. Þetta minnir á orð
sem hann viðhafði eitt sinn um Genfarsáttmálann sem
hann sagði vera vandamál, því hann fæli í sér alls kyns
reglur og reglugerðir sem gerðu að verkum að hermenn
væru smeykir við að berjast almennilega.
Það er með ólíkindum að maður eins og Trump
skuli hafa orðið forseti Bandaríkjanna og þar með
einn valdamesti maður heims. Það er með enn meiri
ólíkindum að hann skuli, eftir skelfilega stjórnartíð,
eiga möguleika á endurkjöri. Hugmyndaheimur hans
er afar sérkennilegur. Í hans huga eru konur leikföng,
innflytjendur hugsanlegir glæpamenn og múslimar
alveg örugglega hryðjuverkamenn.
Það er nokkur raun fyrir friðsamar þjóðir heims að
þurfa að eiga samskipti við Donald Trump. Víst er að
langstærsti hluti íslensku þjóðarinnar hefur á honum
litlar mætur. Það breytir þó engu um það að Bandaríkin
eru mikilvæg vinaþjóð okkar og þeim samskiptum
þarf að sinna. Um leið þarf að gæta að því að leggja
ekki blessun sína yfir gjörðir Bandaríkjaforseta, sem er
tilbúinn að leggja mannkyn í stórhættu til þess eins að
þjóna duttlungum sínum.
Þingmaður Samfylkingar hafði orð á því á dögunum
að Ísland ætti jafnvel að íhuga úrsögn úr NATO meðan
Bandaríkjamenn væru þar svo fyrirferðarmiklir. Ekki
er ástæða til að taka undir þau orð. Slíkt væri alls ekki
gæfuspor fyrir Ísland. Einangrunarhyggja dugar ekki.
Ljóst er að flestum NATO-þjóðum hugnast ekki nýjasta
útspil Bandaríkjaforseta og vilja halda aftur af honum,
en um leið er ljóst að það verður ærið verk. Íslendingar
eiga ekki að flýja þann félagsskap heldur taka þátt í því
að standa vaktina og sýna ábyrgð.
Stjórnlaus
Ástandið í heilbrigðiskerfinu verður ekki leyst á einum degi enda hefur heilbrigðiskerfið, líkt og aðrir innviðir landsins, verið vanrækt árum
saman. Það er rándýr pólitísk ákvörðun sem verður
að breyta en til þess þarf hugrekki og framtíðarsýn.
En nú stöndum við frammi fyrir hættuástandi á
bráðamóttöku Landspítala og um það vitnar starfsfólk
spítalans. Hjúkrunarfræðingar hafa gefið út yfirlýs-
ingu sem og læknaráð. Ástandið snýst hvorki um fyrir-
sagnir í fjölmiðlum né hvar í flokki kjörnir fulltrúar
standa. Þetta snýst um almannaheill og þar verðum
við öll að snúa vörn í sókn, hætta að einblína á það sem
mögulega hefur verið gert áður og hugsa hvað getum
við gert núna til að bregðast við áður en verr fer.
Staðan hefur aldrei verið jafn alvarleg að mati
þeirra sem reyna að tryggja öryggi sjúklinga á
bráðamóttöku. Bráðamóttakan er yfirfull á hverjum
einasta degi. Deildir sjúkrahússins eru undirmann-
aðar og vaktaplan næsta mánaðar sýnir starfsfólki
að það verður að hlaupa meira og hraðar en áður.
Undirmannaðar vaktir leiða til mistaka, pláss sem þó
eru til á spítalanum eru ekki nýtt því ekki fæst starfs-
fólk til að hlaupa sífellt hraðar og hraðar. Það leitar í
önnur störf.
Nú standa yfir samningaviðræður ríkisins við
heilbrigðisstarfsfólk. Ein leið til að láta starfsfólk
Landspítala vita að á það sé hlustað og eygja von
um að laða fleiri að spítalanum er að stjórnvöld
lýsi yfir vilja til að meta vaktavinnu þessara stétta í
komandi kjarasamningum. Það er alveg ljóst að fólk
sem gengur vaktir allan sólarhringinn getur ekki
sinnt 100% starfi. Ef stjórnvöld senda skýr skilaboð
til þessara stétta um að í komandi kjarasamningum
verði tekið tillit til þessa munu vonandi einhverjir
skila sér til baka til starfa þannig að hægt verði að
manna spítalann. Það þarf að blása heilbrigðisstarfs-
fólki von í brjóst. Það er hlutverk stjórnvalda. Boltinn
er hjá þeim.
Boltinn er hjá
stjórnvöldum
Helga Vala
Helgadóttir
þingmaður Sam-
fylkingarinnar
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
Krúnudjásnið
Það eru stöðugar hræringar á
íslenskum fjölmiðlamarkaði.
Ein slík hræring hefur ekki farið
hátt, en það er sú að útvarpsstöð
in Bylgjan hefur misst toppsætið
sem stöðin með mestu hlustun
ina. Bylgjan hefur iðulega getað
skákað ríkisstöðvunum tveimur,
þessari sem gamla fólkið hlustar
á og þessari sem miðaldra fólkið
hlustar á. Því lauk hins vegar í
desember. Bylgjan er eitt helsta
krúnudjásn Vodafoneveldisins.
Munu heyrast harmakvein af
Suðurlandsbraut ef ríkið heldur
áfram að taka fram úr þeim.
Ekki benda á mig
Ábyrgðarleysið í kringum
ráðningu þjóðgarðsvarðar og
þær bætur sem ríkið skapaði sér
vegna vanhæfni er hreint út sagt
hlægilegt. Ari Trausti nefndarfor
maður ber fyrir sig að hafa ekki
staðið í opinberum ráðningum
áður og algerlega hlýtt ráðninga
fyrirtækinu Capacent. Vaknar þá
óneitanlega sú spurning af hverju
maðurinn sé þarna yfir höfuð.
Nefndarmenn hafa sagt að Capa
cent skuldi ríkinu pening út af
þessu klúðri, sem nefndin stimpl
aði. Þá stígur framkvæmdastjóri
Capacent fram, móðgaður, og
segir það hafa legið fyrir að hlut
verk fyrirtækisins væri að gefa
ráðgjöf en ekki taka ákvörðun.
Þessi ráðgjöf reyndist hins vegar
býsna dýr.
arib@frettabladid.is
kristinnhaukur@frettabladid.is
9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN