Fréttablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 5
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
• Vegna fjölda jeppabreytingaverkefna vantar okkur aðila sem er vanur jeppabreytingum.
Við erum að breyta RAM pallbílum, Jeep Grand Cherokee og Wrangler og svo eru
fleiri Jeep breytingaverkefni í þróun. Við leitum að einstaklingi með reynslu og áhuga á
jeppabreytingum. Verkefnin henta vel bifreiðasmið.
• Við leitum af bifreiðasmið til að vinna að breytingum, úrklippum o.fl.
• Við erum að vaxa og okkur vantar fleiri bifvélavirkja í hópinn. Starfið felst í almennum
viðgerðum á öllum gerðum bifreiða.
LEITAR AÐ STARFSMÖNNUM Í JEPPABREYTINGAR,
BIFREIÐASMIÐ OG ALMENNAR VIÐGERÐIR
ÍSLENSK-BANDARÍSKA • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 534 4433 • WWW.ISBAND.IS
ÍSBAND er umboðsaðili fyrir FCA og flytur inn og þjónustar bíla frá Alfa Romeo, Chrysler, Fiat,
Dodge, Jeep og RAM. Verkstæðið þjónustar flestar tegundir bifreiða. Varahlutaverslunin flytur
inn original varahluti og aukahluti frá Mopar og breytingafyrirtækjunum, AEV og Teraflex, Falcon
dempara, ARE pallhús og palllok og Bakflip palllok. Starfsstöðvar ÍSBAND eru tvær, Smiðshöfða 5
þar sem verkstæði og varahlutaverslun eru til húsa og Þverholti 6 í Mosfellsbæ þar sem söludeild
nýrra bíla er.
Upplýsingar um störfin gefur johannes@isband.is
UMHVERFISMÁL Tilraunaverkefni
um söfnun lítilla raftækja í versl-
unum hefur verið hleypt af stokk-
unum. Sérstökum söfnunarkössum
hefur verið komið fyrir í sjö versl-
unum þar sem hægt verður að skila
ónýtum raftækjum, rafhlöðum og
ljósaperum.
Verslanirnar sem um ræðir eru
Krónan í Lindum, Nettó í Búðakór í
Kópavogi, Nettó í Grindavík, Bónus
og Nettó á Egilsstöðum og Bónus og
Krónan í Vestmannaeyjum.
Það eru Úrvinnslusjóður og
Umhverfisstofnun sem standa að
verkefninu en í tilkynningu segir
að vonandi geti verkefnið orðið
fyrirmynd fyrir viðlíka söfnun í
framtíðinni.
Áætlað er að um 7.200 tonn af raf-
tækjaúrgangi falli til á Íslandi á ári
en einungis 37 prósent skiluðu sér
til endurvinnslu árið 2018. Söfn-
unarkössunum er ætlað að auka það
hlutfall með því að færa söfnunina
nær almenningi.
Á síðasta ári lauk tilraunverkefni
Reykjavíkurborgar, Sorpu og Efna-
móttökunnar um spillivagninn sem
ferðaðist milli hverfa borgarinnar
og tók á móti spilliefnum og raf-
tækjum frá heimilum.
Samkvæmt upplýsingum frá
umhver f is- og sk ipulagssviði
borgarinnar hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvort framhald verði
á verkefninu. Fara þurfi yfir árang-
ur og kostnað áður en það verði
ákveðið. – sar
Söfnunarkassar fyrir raftæki í verslanir
GRENIVÍK Sveitarstjórn Grýtu-
bakkahrepps kveðst taka heilshug-
ar undir bókun stjórnar Atvinnu-
þróunarfélags Eyjafjarðar vegna
aðstæðna sem sköpuðust í óveðrinu
í desember.
Í bókun AFE segir að opinberir
innviðir samfélagsins hafi brugðist
í veðrinu og að það ætti ekki að hafa
komið á óvart. „Í yfir áratug hefur
verið bent á nauðsyn þess að styrkja
flutningskerfi raforku. Öryggi íbúa,
hvar svo sem þeir búa, þarf að vera
forgangsmál þjóðarinnar,“ segir í
bókuninni.
Sveitarstjórn Grýtabakkahrepps
skorar af þessu tilefni „á stjórn-
völd að f lytja höfuðstöðvar Rarik
inn á starfssvæði Rarik, til dæmis
á Norðurland, enda er það í fullu
samræmi við stefnu stjórnvalda að
flytja opinber störf út á land“. – gar
Flytji Rarik út
á starfssvæðið
1 Neita að tjá sig um ferðina upp á Langjökul Forsvars-
menn Mountaineers of Iceland
segjast ætla að rannsaka sjálfir
hvað varð til þess að fjörutíu
manna hópur var sendur í vél-
sleðaferð á Langjökul.
2 Fólkið á Langjökli kalið á fingrum Ferðalangar voru
misvel á sig komnir eftir margra
klukkutíma dvöl á Langjökli.
3 Íbúar segjast hafa fengið sig fullsadda af ólykt og óhrein-
indum í Kjarvalsverslun Íbúar á
Kirkjubæjarklaustri segja ástand
verslunarinnar vera til skammar.
Viðgerðir í Eyjafirði í desember.
Söfnunarkassinn sem um ræðir.
DÓMSMÁL „Þetta er svona mál sem
ég mynda reka ókeypis, bara upp
á von og óvon um að fá dæmdan
málskostnað þegar þetta fyrirtæki
yrði sakfellt,“ segir Ómar Valdi-
marsson lögmaður um mál ferða-
mannanna sem lentu í hrakningum
í fyrrakvöld í vélsleðaferð á Lang-
jökul með Mountaineers of Iceland.
Björgunarsveitir þurftu að sel-
f lytja vélsleðahópinn af Lang-
jökli niður að Gullfossi og síðan til
Reykjavíkur í gær. Margir voru mjög
kaldir og höfðu óttast um líf sitt og
sinna í þessari svaðilför.
„Það er ótrúlegt að þessu fyrir-
tæki skuli detta það í hug að þvæl-
ast með allan þennan hóp af fólki
upp á jökul þegar það er búið að
spá meiriháttar vestanhvelli,“ segir
Ómar. Það hafi alls ekki verið eins
og veður hefðu skipast skjótt í lofti
heldur hafi hver spáin á fætur ann-
arri bent í sömu átt.
„Í einhverri græðgi þá drattast
þeir með fullt af fólki þarna upp
og geta þakkað fyrir að hafa ekki
drepið það. Ég held að það sé klár
miskabótaskylda hjá þessu fyrir-
tæki,“ segir Ómar og bendir á að
ekki séu nema þrjú ár síðan sama
fyrirtæki var dæmt til að greiða
hjónum miskabætur eftir sambæri-
lega ævintýraferð.
„Ástæðan fyrir því að þeir fara
upp á jökul hlýtur að vera sú eina
að þeir vilja ekki aflýsa ferðinni og
tapa þeim peningum sem er þarna
um að ræða,“ segir Ómar sem kveðst
telja að yfirvöld þurfi tæki til að
geta stemmt stigu við slíku athæfi.
„Það ætti að vera sektarheimild
hjá yfirvöldum sem gerir það að
verkum að þegar það er augljós-
lega verið að fara með fólk upp á
jökul þegar spáin er slæm sé hægt
að hirða af þeim allan ágóða ferðar-
innar, til þess að núlla út gróðavon-
ina,“ segir Ómar.
For ráða menn fyrirtækisins vildu
ekki tjá sig við Fréttablaðið fyrri-
partinn í gær. Var blaðamanni sagt
að „grjót halda kjafti“ þegar óskað
var eftir upplýsingum. Haukur
Herbertsson, rekstrarstjóri fyrir-
tækisins, sagði svo í kvöldfréttum
RÚV að allir hjá fyrirtækinu væru
miður sín vegna málsins.
Nokkrir ferðamannanna hafa
leitað til Lilju Margrétar Olsen,
lögmanns hjá Kötlu lögmönnum,
vegna málsins. Sagði hún í kvöld-
fréttum Stöðvar 2 í gær að þeir sem
hefðu leitað til hennar myndu gera
kröfu á Mountaineers of Iceland.
gar@frettabladid.is
Kveður ljóst að bótaskylda sé
í vélsleðamálinu á Langjökli
Lögmaður segir ljóst að bótaskylda sé í máli fólksins sem lenti í ógöngum í vélsleðaferð á Langjökli á
þriðjudagskvöldið. Kveðst hann reiðubúinn að veita fólkinu ókeypis aðstoð. Nokkrir ferðamenn hafa
þegar leitað til lögmanns hjá Kötlu lögmönnum, munu þeir gera kröfu á Mountaineers of Iceland.
Í einhverri græðgi
þá drattast þeir
með fullt af fólki þarna upp
og geta þakkað fyrir að hafa
ekki drepið
það.
Ómar
Valdimarsson,
lögmaður
Aðstæður voru mjög erfiðar á Langjökli á þriðjudagskvöldið. Var skyggnið varla meira en nokkrir metrar.
9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð