Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.01.2020, Qupperneq 7

Fréttablaðið - 09.01.2020, Qupperneq 7
VIÐSKIPTI Hönnunar- og fata- versluninni Jónu Maríu í Bæjarlind verður lokað á næstunni, fyrirtækið framleiðir eigin vörur hér á landi. Alls koma tólf manns til með að missa vinnuna. Jóna María Norð- dahl, klæðskeri og eigandi fyrir- tækisins, segir marga þætti spila inn í. „Það eru breyttir verslunarhættir ásamt breytingum í markaðssetn- ingu. Svo eru það launin, þau eru alltaf að hækka, líka leigan,“ segir Jóna María. „Við framleiðum allar okkar vörur á Íslandi og hefðum ekki viljað breyta því þannig að þegar við horfðum til framtíðar mátum við stöðuna þannig að við gætum ekki hækkað vöruverðið í takt við hækkun kostnaðar og því var bara eitt í stöðunni, að rifa segl- in núna á meðan við enn þá ráðum ferðinni.“ Verslunin var opnuð í Kópavogi fyrir fimm árum og hefur einbeitt sér að kvenfatnaði en býður einnig upp á skart. „Þetta var bara draumur sem rættist. Við gátum haldið þetta út í fimm ár,“ segir Jóna María. Hún segir að hún hafi hannað, framleitt og selt yfir 11.000 flíkur á ári þann- ig að víða í fataskápum íslenskra kvenna leynast f líkur frá henni. Jóna María segir að eftir hrun hafi mikill áhugi verið á íslenskri hönnun og innlendri framleiðslu. „Það er að draga úr því núna. Hlut- irnir eru að breytast, við höfum séð íslensku fatamerkin hverfa eitt af öðru sem er mjög sorglegt en allt er breytingum háð. Fólk er að ferðast miklu meira til útlanda nú en áður og kaupir mikið þar. Fyrir utan allt það sem hægt er að kaupa á netinu.“ Einnig er aukin samkeppni frá erlendum fatakeðjum sem hafa opnað verslanir hér á landi á síð- ustu árum. „Það er virkilega sárt að loka, ég viðurkenni það. Eitt erf- iðasta sem ég hef gengið í gegnum. En maður verður að trúa að allar breytingar leiði að einhverju góðu. Ég geng frá borði alveg gríðarlega þakklát öllum þeim yndislegu konum sem hafa keypt og gengið í fötunum frá mér í gegnum árin og líka öllu því frábæra starfsfólki sem staðið hefur vaktina með mér.“ Jóna María fór fyrst út í rekstur árið 2005 með framleiðslu á fylgi- hlutum og handgerðu skarti fyrir erlenda ferðamenn. Sú framleiðsla kemur til með að halda áfram. Það var svo fyrir tilviljun að á árunum eftir hrun fór Jóna María út í fata- framleiðslu sem leiddi til þess að hún opnaði verslunina. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt en líka virkilega erfitt og gríðar- lega mikil vinna. Ég er búin að læra mikið á þessum tíma,“ segir Jóna María. Versluninni verður lokað þegar útsölunni lýkur, líklega eftir rúmar tvær vikur. Fyrir utan skartgrip- ina segir hún framtíðina í óvissu. „Kannski fer ég bara að gera eitt- hvað allt annað.“ arib@frettabladid.is Kvenfataframleiðandi í Kópavogi skellir í lás Hönnunar- og kvenfataversluninni Jónu Maríu verður lokað á næstunni. Fyrirtækið framleiðir föt og skartgripi hér á landi. Tólf missa vinnuna. Eig- andinn segir breytt verslunarmynstur og háan launakostnað spila stóran þátt. Jóna María segir virkilega sárt að loka versluninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við höfum séð íslensku fatamerkin hverfa eitt af öðru sem er mjög sorglegt en allt er breytingum háð. Jóna María Norðdahl, klæðskeri VERÐ FRÁ 99.900 KR. Á MANN M.V. TVO FULLORÐNA & 2 BÖRN TENERIFE 1. - 8. FEBRÚAR NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS GARA SUITES 4* MATSUI ÞVOTTAVÉL M612WM17E PS4 SHADOW OF THE TOMB RAIDER PS4SHADOWOTTR KENWOOD ÖRBYLGJUOFN K20MSS10E GOOGLE HOME MINI GOOGLEHMINIS GOOGLEHMINIH SAMSUNG GALAXY A50 SMA505BLA -PIN -WHI 9.795 áður: 14.990 29.995 áður: 39.995 5.995 áður: 7.995 39.995 áður: 49.990 1.995 áður: 4.994 -34% -25% -25% -20% -60% útsala AÐEINS 40 STK. AÐEINS 30 STK. AÐEINS 50 STK. SAMSUNG GALAXY S10+ SMG975128WHI 119.995 áður: 139.995 20.000 kr. afsláttur HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umöllun um málefni líðandi stundar. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook BANDARÍKIN Donald Trump Banda- ríkjaforseti boðaði hertar við- skiptaþvinganir á Írani í kjölfar loftskeytaárásar þeirra á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak. Á blaða- mannafundi í gær sagði Trump að enginn hefði fallið í árásinni, en á annarri herstöðinni voru 70 her- menn frá Noregi. Árás Írana var gerð í hefndar- skyni fyrir víg Bandaríkjamanna á hershöfðingjanum Qasem Soleim- ani. Var útlit fyrir á tímabili að það stefndi í stríð á milli þjóðanna. Bæði embættismenn í Íran og Trump Bandaríkjaforseti hafa gefið til kynna að slíkt sé ekki í kortunum. „Íran virðist vera að halda sér til hlés, sem er gott fyrir alla sem eiga í hlut og mjög gott fyrir heiminn allan,“ sagði Trump. Hann hafði áður gefið til kynna að ef Íranir myndu hefna sín væru Bandaríkja- menn búin að finna 52 skotmörk í landinu sem yrði eytt hratt. Trump eyddi miklu púðri á blaðamannafundinum í að ræða Soleimani, sem hann sagði vera hryðjuverkamann sem hefði verið að skipuleggja árásir á Bandaríkja- menn. Víg hans væru skilaboð til annarra hryðjuverkamanna. „Ef þið viljið halda lífi, þá skulu þið ekki ógna lífi okkar.“ Hét Trump því að Íranir myndu aldrei verða sér úti um kjarnorkuvopn. Beindi Trump svo spjótum sínum að ríkisstjórn forvera síns Baracks Obama, sem hefði í raun fjármagn- að árásir Írana með kjarnorku- samningunum árið 2015 þar sem Bandaríkin gerðu upp gamla skuld. Trump ræddi í gær við Jens Stolt- enberg, framkvæmdastjóra Atlants- hafsbandalagsins, um stöðuna. Lagði Trump áherslu á að bandalag- ið myndi leggja meira af mörkum í Miðausturlöndum. – ab Auknar viðskiptaþvinganir á Írani Trump hét því að Íranir myndu aldrei eignast kjarnavopn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Enginn féll í loftskeyta- árás Írana á herstöðvar Bandaríkjamanna í Írak. Rúmlega 70 norskir her- menn voru á annarri her- stöðinni. 9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.