Fréttablaðið - 09.01.2020, Síða 11
Í samræmi við lög VR óskar uppstillinga
nefnd eftir frambjóðendum til að skipa
lista stjórnar og trúnaðarráðs vegna
listakosningar um trúnaðarráð í félaginu.
Uppstillinganefnd stillir upp lista til
trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið
eins og mögulegt er hvað varðar aldur,
kyn og störf félagsmanna. Einnig verður
litið til félagsaðildar og starfa
fyrir félagið.
Hlutverk trúnaðarráðs VR er að
vera stjórn félagsins ráðgefandi
varðandi ýmis stærri málefni sem
upp koma í starfsemi félagsins,
svo sem við gerð kjarasamninga
og stærri framkvæmdir.
Uppstillinganefnd VR
VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is
Viltu leggja þitt af
mörkum í starfi VR?
Uppstillinganefnd VR óskar eftir
frambjóðendum til trúnaðarráðs VR.
Áhugasamir geta gefið kost á sér
með því að senda erindi á netfangið
uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12.00
á hádegi þann 17. janúar næstkomandi.
Eiríkur Steingrímsson, prófessor í sameindalíffræði.
VÍSINDI Hópur vísindamanna við
Lífvísindasetur Háskóla Íslands og
EMBL-stofnunina í Hamborg hefur
með rannsóknum sínum varpað
skýrara ljósi á stjórnprótínið MITF
en það gegnir lykilhlutverki við
myndun sortuæxla.
Frá þessu er greint á vef Háskóla
Íslands en niðurstöður rannsóknar-
innar birtust nýlega í vísindaritinu
Nucleic Acids Research.
Er um að ræða nýjan áfanga í
baráttunni við sortuæxli sem er
hættulegasta tegund húðkrabba-
meina. Með aukinni þekkingu á
hegðun MITF aukist möguleikar á
því að lækning finnist.
Eiríkur Steingrímsson, prófess-
or í sameindalíffræði við Háskóla
Íslands, stýrði rannsóknarhópi Líf-
vísindaseturs.
„R annsók narstofa mín v ið
Háskóla Íslands hefur lengi unnið
að því að greina hlutverk og starf-
semi MITF-prótínsins. Mikilvægur
liður í slíkum rannsóknum er að
geta greint byggingu prótína þar
sem stöðu allra atóma þess í rúmi er
lýst og tengingum þeirra innbyrðis,“
er haft eftir Eiríki.
Hann segir samstarf við aðila
eins og EMBL mjög mikilvægt fyrir
fámennt vísindamannasamfélag
eins og á Íslandi. Í rúman áratug
hefur Eiríkur starfað náið með
Matthias Wilmanns, stjórnanda
EMBL, og Margréti Helgu Örnólfs-
dóttur, dósent við læknadeild HÍ.
Um áramótin tók Eiríkur við sem
formaður stjórnar EMBL en 27 Evr-
ópulönd eiga aðild að stofnuninni.
– sar
Rannsókn sem eykur
skilning á sortuæxlum
Rannsóknarstofa
mín við Háskóla
Íslands hefur lengi unnið að
því að greina hlutverk og
starfsemi MITF-prótínsins.
Eiríkur Steingrímsson, prófessor
Teitur Guðmundsson
læknir
Það þarf ekki að vefjast fyrir neinum að hollt mataræði og reglubundin hreyfing eru megin-
stoðirnar í því að lifa heilbrigðu lífi. Það
mætti bæta við andlegri vellíðan til að
kóróna það sem þarf til að vera með allt
á hreinu. Allt eru þetta atriði sem skipta
verulegu máli og virka svo einföld og
sjálfsögð, en þeir sem eru eldri en tvæ-
vetur vita að það er alls ekki raunin. Það
er stöðugt verið að segja okkur hvað er
hollt og hvað ekki, sérstaklega er verið
að ginna fólk með skyndilausnum og
sannfæra það um að með þessum eða
hinum matarkúrnum eða æfingakerf-
inu muni allt breytast til hins betra.
Þá má ekki gleyma því að þeir hinir
sömu og hafa lifað tímana tvenna hafa
heyrt slíkar ráðleggingar breytast
í tímans rás. Einu sinni mátti ekki
borða fitu, núna eiga allir að neyta
smjörs, feitmetis og rjóma. Sykur er
hið alræmda hvíta eitur auk þess að
allar hveitivörur eru komnar á bann-
lista. Ekki má borða nema ákveðnar
tegundir af ávöxtum samkvæmt
sumum, þá helst ekki drekka
ávaxtasafa nema í hófi og allra
síst mjólk. Allt eru þetta
ákveðnar öfgar þó vissu-
lega sé það vel þekkt að
ákveðnir einstaklingar
geti verið með óþol
eða jafnvel ofnæmi
fyrir ákveðnum
tegundum fæðu,
þá liggur það í
augum uppi að
ekki er hægt að
ætlast til þess
að allir séu eins og
geti nýtt sér sömu leið-
beiningar.
Hið sama gildir um hreyfinguna, þar
höfum við fengið ýmis ráð í gegnum
tíðina, sum byggja á rannsóknum,
önnur meira á sölumennsku og hefur
fólki verið talin trú um að nýjasta æðið
hverju sinni sé hið eina sanna. Á að
þjálfa í hámarkspúls eða bara 80% af
honum? Er best að brenna eingöngu,
á að leggja áherslu á vöðvaþjálfun eða
teygjur? Er skynsamlegt að þjálfa jafn-
vægið eða eitthvað annað og þannig
mætti telja áfram. Eru einhver tæki
betri en önnur, þarf ég einkaþjálfara
og líkamsræktarstöð eða get ég gert
þetta sjálf/ur? Svarið við öllum þessum
spurningum er einfalt, sitt lítið af
hverju!
Þegar maður, í öllu stressinu sem
daglegt líf f lestra samanstendur af, er
farinn að ofhugsa hlutina og taka um
of mark á þeim ráðleggingum sem eru
þarna úti auk þeirrar staðalímyndar
sem allir verða að passa inn í þá er það
ávísun á vandræði. Kvíði og spenna
getur magnast upp, mikil samkeppni
ríkir um það að líta sem best út og helst
vera með sem flest járn í eldinum í
einu. Það skilar sér oft í áhyggjum og
svefnleysi sem svo eykur álagið á ein-
staklinginn, fylgikvillarnir eru fyrst og
fremst vanlíðan sem er í raun andstæð-
an við það sem flestir eru að leita að.
Að þessu sögðu er það engu að síður
staðreynd að við erum það sem við
borðum og ef við hreyfum okkur ekki
reglubundið þá er líklegt að líkami
okkar refsi okkur fyrir það á ein-
hverjum tímapunkti. Þá kemur að því
að spyrja sig: Hvað er skynsamlegast
að gera?
Ég er talsmaður jafnvægis og tel það
í raun vera grundvallaratriði í öllum
þeim þáttum sem að ofan eru taldir.
Við getum ekki haft hugann stöðugt
við það sem við erum að láta ofan
í okkur, enginn endist á kúr. Það er
því nauðsynlegt að þróa með okkur
vanann að borða „rétt“ og þar liggur
hundurinn grafinn. Það er líklega í lagi
að borða sitt lítið af hverju ef maður
passar skammtastærðir. Gott er að
forðast það sem augljóslega fer illa í
mann, en til þess að finna slíkt út er
gott að halda matardagbók. Það má
borða fitu og líka sykur, hvorugt er
eitur nema í miklu magni, en saman
getur það haft afdrifaríkar afleiðingar
og í raun myndað ákveðna fíkn. Hið
sama gildir um hreyfingu, hún verður
að henta hverjum og einum og skapa
ánægju, það er eina leiðin til að endast
og að hún verði reglubundin. Streitu-
losun og tímastjórnun auk samveru við
fjölskyldu og vini mun skila mestum
árangri og skila andlegri vellíðan í sam-
hengi við mataræðið og hreyfinguna.
Þess utan er skynsamlegt að láta
fylgjast með áhættuþáttum sínum
miðað við aldur og kyn.
Þá er ég mjög áhugasamur um þá
framþróun sem er að verða í læknis-
fræði þar sem klæðskerasniðin meðferð
að hverjum og einum er að þróast
til að minnka aukaverkanir og bæta
árangur meðferðar. Þetta módel er það
sem koma skal í tengslum við ráðgjöf
um heilsu og lífsstíl í framtíðinni, við
verðum að geta áttað okkur á einstakl-
ingnum betur en nú er hægt til að gefa
honum einstaklingsmiðaða nálgun,
því á þann veg nær hann frekar árangri
og verður reiðubúnari að fylgja þeim
ráðum sem henni eða honum eru gefin.
Ég er sannfærður um að í þeirri ráðgjöf
verður jafnvægið einnig lykilatriði.
Góðar stundir!
Í upphafi skal endinn skoða
9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð