Fréttablaðið - 09.01.2020, Side 17

Fréttablaðið - 09.01.2020, Side 17
Hegðun Ragnars á meðan á dvöl hans hjá félaginu stóð var til algjörrar fyrirmyndar og algerlega í samræmi við íþróttamann í hæsta gæða- flokki. 9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð FÓTBOLTI Fyrrverandi félag Ragn- ars Sigurðssonar, Rostov, brást við fréttaflutningi þarlendra fjölmiðla um að ástæða þess að hann hefði farið frá liðinu hefði verið áfengis- vandamál. Í frétt Championat, sem virðist vera uppspretta fréttanna, sagði að samkvæmt heimildum síðunnar hefði Ragnar beðið félaga sína í liðinu, þjálfara og starfsfólk afsökunar á hegðun sinni en engu að síður hefði það ekki dugað. Samningnum hefði verið rift. Þetta segir Rostov vera uppspuna frá rótum í yfirlýsingu sem félagið birti. „Fjölmiðlar birtu upplýsingar sem vega að æru Ragnars Sigurðs- sonar, fyrrverandi fyrirliða félags- ins. Það sem fram kemur þar er lygi en þar er því haldið fram að Ragnar glími við áfengisvandamál og það sé ástæða þess að leiðir hafa skilið hjá honum og félaginu. Hegðun Ragnars á meðan á dvöl hans hjá félaginu stóð var til algjörrar fyrir- myndar og algerlega í samræmi við íþróttamann í hæsta gæðaflokki,“ segir í yfirlýsingu félagsins. „Hann er leikmaður sem ávallt er hægt að treysta á bæði á erfiðum tímum og þegar vel gengur. Af þeim sökum var honum falið að vera fyrirliði liðsins. Ragnar óskaði eftir því að vera leystur undan samningi hjá félaginu og við urðum við beiðni hans. Ragnar stóð sig vel á þeim tíma sem hann spilaði fyrir okkur og gaf sig allan bæði í æfingar og leiki liðsins. Við förum fram á það við fjölmiðla að þeir láti af því að fjalla um málefni sem þeir hafa ekki hundsvit á,“ segir enn fremur. – bb SPORT Rostov segir áfengisvandamál ekki ástæðu fyrir brottför Ragnars Ragnar í baráttunni í rússnesku deildinni. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Dómaraparið Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson eru fulltrúar Íslands í dómarastétt Evrópumótsins sem hefst í dag með viðureign Hvíta-Rússlands og Serb- íu annars vegar og Þjóðverja og Hol- lendinga hins vegar. Fyrsti leikur þeirra félaga verður á morgun þegar þeir f lauta á viðureign Austurríkis og Tékklands í Vínarborg en 10 þús- und manns, f lestir á bandi heima- manna, munu troðfylla höllina. Þeir félagar mættu til Austurríkis á sunnudaginn og voru nýbúnir að taka góða æfingu þegar Frétta- blaðið sló á þráðinn til þeirra. „Við fengum að vita á þriðjudag hvar við myndum dæma og hvaða leik. Það er komin niðurröðun á alla leiki í fyrstu umferð. En meira er ekki vitað. Það getur vel verið að við munum f lakka á milli og færa okkur til Graz, sem er í tveggja klukkutíma fjarlægð,“ segja þér félagar. Jónas segir að þeir séu komnir í gott form, ekki aðeins líkamlegt heldur séu þeir tilbúnir fyrir áskor- unina einnig andlega. „Við erum búnir að fá efni frá dómaranefnd EHF til að skoða og svo höfum hist mikið og farið yfir málin sjálfir. Við erum búnir að æfa eins og hundar og erum í virkilega góðu formi. En við teljum líka mikilvægt að hafa hausinn í lagi og vera í andlegu góðu jafnvægi. Við höfum nýtt Jóhann Inga til að hjálpa okkur og farið inn á andlegu hliðina. Þess vegna teljum við okkur vera tilbúna bæði andlega og líkamlega.“ Anton bendir á að það geti tekið á að standa frammi fyrir 10 þúsund áhorfendum og taka erfiða ákvörð- un á augnabliki. „Það verður svaka- leg pressa og gott að hafa hausinn í lagi og fá þá aðstoð til að stilla sig inn á rétt spennustig. Ekki vera of spenntur og ekki of slakur. Finna þennan gullna meðalveg.“ Þeir segja að engar sérstakar áherslubreytingar verði á mótinu. Að ekkert nýtt sé undir sólinni að þessu sinni. Línan hafi verið sett fyrir nokkru og áherslan sé að halda henni. „Það er þetta sama. Barningur inni á línu og passa upp á hornamenn sem hefur verið í hartnær tvö ár að þeir séu ekki að taka löng skref og stíga inn í hornamenn. Það eru ekki neinar kúvendingar eins og stundum sést á HM þar sem er nánast nýtt mót. Dómaranefndin leggur áherslu að halda sömu línu, þegar er farið í andlit, hornamenn og línu. Ekki fara búa til nýjan leik þegar mótið hefst.“ Félagarnir hafa það fínt í Vín og segja að það hafi verið fínt að fá smá sól í kroppinn um leið og þeir lásu um óveðrið sem geisaði hér á Klakanum. „Við vorum að koma úr ræktinni og erum í fínum málum. Það kom sólarglenna en svolítið svalt. Ekkert eins og heima,“ segir Jónas. Anton segir að þeir séu spenntir að fá að blása í f lautuna og fara að byrja. Undirbúningur hafi verið strembinn og nú sé komið að stóru stundinni. „Við erum tilbúnir í þetta. Við lögðum mikið í undir- búninginn og viljum fara að byrja. Klæjar í puttana að fá aðeins að blása.“ benediktboas@frettabladid.is Tilbúnir bæði andlega og líkamlega Jónas Elíasson og Anton Gylfi Pálsson blása í flautuna á EM í handbolta sem hefst í dag. Þeir dæma fyrsta leik Austurríkis á mótinu þar sem 10 þúsund manns munu öskra og tralla í stúkunni. Þeir hafa undirbúið sig vel, eru búnir að æfa vel – bæði líkamlega og andlega. Andlega heilsan mikilvæg Jóhann Ingi Gunnarsson hefur ekki aðeins verið þeim Jónasi og Antoni innan handar í að- draganda EM því hann hefur einnig komið að því að halda fyrirlestra fyrir aðra dómara á mótinu. Í samtali við heimasíðu mótsins segir að Jóhann að þó engir dómarar séu eins sé það hans hlutverk að láta alla trúa á sjálfa sig. „Sjálfstraust er vöðvi sem hægt er að þjálfa. Ég segi að það sé vöðvi vegna þess að það er eitthvað sem þú getur þjálfað og þú getur þjálfað hugarheima. Ef dómarar koma með sjálfs- traust út á völl þá sést það úti á velli með jákvæðri líkamstján- ingu. Ef ekki þá skynja leikmenn og þjálfarar það og nota það gegn þeim. Það smitast til áhorfenda og þá höfum við vandamál,“ segir Jóhann meðal annars. Hann hefur verið í þessu hlutverki síðan 2012 og segir að andlega hliðin skipti sífellt meira máli. „Fyrir 30 árum fannst fólki sem vildi tala um tilfinningar sínar og það sem væri að gerast í þeirra hugsunum að eitthvað væri að þeim. Nú er andlegur undirbúningur jafn mikilvægur og líkamlegur undirbúningur. Norska kvennalandsliðið er með tvo sál- fræðinga ef þær þurfa að tala við einhvern sem dæmi.“ Anton og Jónas hafa verið besta dómarapar landsins lengi, hafa dæmt á HM, EM og Ólympíuleikum. 11 dómarapör dæma í riðlakeppninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.