Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 27
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurgeir Stefán Júlíusson
Hrísey,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri
laugardaginn 4. janúar síðastliðinn eftir
skammvinn veikindi. Útförin fer fram frá
Hríseyjarkirkju laugardaginn 18. janúar kl. 14.00.
Stefán Jón Heiðarsson Sigríður Gunnarsdóttir
Heimir Sigurgeirsson Gunnhildur Sigurjónsd.
Lovísa María Sigurgeirsdóttir Einar Arngrímsson
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir Sturla Þengilsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástvinur minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðjón Traustason
vélvirkjameistari,
frá Vestmannaeyjum,
andaðist 4. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju,
mánudaginn 13. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Ljósið.
Sigríður Sverrisdóttir
Sigríður H. Guðjónsdóttir Ágúst Ólason
Trausti Guðjónsson Lísa María Karlsdóttir
Erlendur R. Guðjónsson Guðfinna B. Sigvaldadóttir
Elsa Gunnarsdóttir Jakob Kristjánsson
afabörn og langafabörn.
Okkar ástkæri,
Jakob Unnar Bjarnason
lést 5. janúar sl. á Landspítalanum
Fossvogi. Útför hans fer fram
miðvikudaginn 15. janúar frá
Kópavogskirkju og hefst kl. 13.00.
F.h. ættingja og annarra vandamanna,
Bent Bjarnason Helga Helgadóttir
Anna Þórdís Bjarnadóttir Stefán R. Jónsson
Innilegar þakkir fyrir samúð
og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Jónasar Ragnars
Guðmundssonar
prentara,
Hraunteigi 11, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Mánateigs á Hrafnistu í
Reykjavík fyrir hlýhug og góða umönnun.
Margrét Jónsdóttir
Guðmundur Jónasson Hanna Ingibjörg Birgisdóttir
Martha Jónasdóttir Ástvaldur Óskarsson
Grétar Jónasson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Friðjón Jóhannsson
sjómaður,
lést á heimili sínu
fimmtudaginn 2. janúar.
Útför hans fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn
14. janúar kl. 13.00.
Davíð Friðjónsson Kolbrún Sif Marínósdóttir
Vala Rut Sjafnar-Friðjónsdóttir Ólafur Magnús Ólafsson
Aldís Ósk Davíðsdóttir
Jóhann Kári Davíðsson
Arney Sjöfn Davíðsdóttir
Davíð Leó Ólafsson
Hákon Valur ÓlafssonÁstkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Ágústa Jóna Jónsdóttir
sjúkraliði,
lést þann 3. janúar
á líknardeildinni í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju,
föstudaginn 10. janúar klukkan 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Áslaug Sara Hreiðarsdóttir Davíð Alexander Östergaard
Berglind Hreiðarsdóttir Hillevi Högström
Hermann Hreiðarsson Alexandra Fanney Jóhannsdóttir
Hjörleifur Jón Steinsson Karitas Þórisdóttir
Jónas Örn Hreiðarsson Elísabet Rut Sigmarsdóttir
Ólöf Hreiðarsdóttir Bjørkås Ketil Bjørkås
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Bjarney Sigurðardóttir
frá Seyðisfirði,
Hæðargarði 29, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi,
fimmtudaginn 19. desember sl.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 10. janúar
kl. 13.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks B4, LSH Fossvogi,
fyrir hlýhug og góða umönnun. Blóm og kransar
afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á
MS félagið.
Rannveig Jónína Ásbjörnsdóttir Stefán Carlsson
Björn Eyberg Ásbjörnsson Valgerður Sveinsdóttir
Fanney Björk Ásbjörnsdóttir Tómas Jóhannesson
Ester Ásbjörnsdóttir Einar Egilsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Áður auglýst útför
Tómasar B. Guðmundssonar
Lýsubergi 13,
Þorlákshöfn,
að Kotstrandarkirkju í Ölfusi, sem vera
átti fimmtudaginn 9. janúar, er frestað til
föstudagsins 10. janúar kl. 16.
Pálína I. Tómasdóttir Sigurjón Bergsson
Sigríður Tómasdóttir Árni I. Sigvaldason
Víðir Tómasson Elísabet Guðmundsdóttir
Guðmundur Smári
Tómasson Sigríður Ósk Zoëga Sigurðardóttir
Ragnheiður Tómasdóttir Brynjólfur Magnússon
J. Brynja Tómasdóttir Helgi Helgason
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðlaug Þórðardóttir
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu
Boðaþingi í Kópavogi þann 6. janúar.
Útförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi
mánudaginn 13. janúar kl. 13.00.
Ólöf Egilsdóttir Kare Blaaflat
Björn Þór Egilsson Hólmfríður Sigfúsdóttir
Magnús Egilsson Berglind Ármannsdóttir
Guðný Egilsdóttir Árni Þór Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Söguloftið í Landnámssetrinu er svipað og baðstofa, ég verð þar eins og gestur og segi fólki sögu,“ segir Magnús Ólafsson, fyrrverandi bóndi á Sveins-stöðum í Húnavatnssýslu. Hann
mun rifja upp síðustu aftöku Íslands-
sögunnar á Söguloftinu næsta sunnudag,
12. janúar, og hefja frásögnina klukkan
14. Þá verða liðin 190 ár, upp á mínútu,
frá því þau Agnes Magnúsdóttir og Frið-
rik Sigurðsson létu lífið á höggstokki í
Vatnsdalshólunum 12. janúar 1730. Þau
höfðu verið fundin sek um morð á Nat-
ani Ketilssyni, bónda á Illugastöðum,
og Pétri Jónssyni sem var gestkomandi
á bænum. Sögustundin nefnist Öxin –
Agnes og Friðrik.
„Það er mikið búið að skrifa um þenn-
an atburð og ég mun styðjast við máls-
skjöl og fleira. En margir vinklar eru á
sögunni,“ segir Magnús íbygginn um
nálgun sína að þessari örlagasögu sem
hann gjörþekkir.
Aftakan fór fram í landi Sveinsstaða,
þar sem Magnús ólst upp og bjó síðar.
„Ég hef átt margt sporið um þessar slóðir
enda gekk búfénaðurinn okkar þar sem
Þrístapar eru. Faðir minn og afi komu
báðir að því, árið 1934, að flytja líkams-
leifar sakafólksins í vígða mold og það
var mikið drama í kringum það.
Magnús hefur á undanförnum árum
farið með gesti í hestaferðir um sögu-
svið Illugastaðamorðanna og sagt sög-
una þar sem atburðirnir gerðust. „Að
standa á Þrístöpum með hópi fólks sem
hefur áhuga á þessari sögu er stórkost-
legt,“ segir hann. „Það er hægt að benda
á svo margt.“ gun@frettabladid.is
Baðstofumenningin lifir
Nákvæmlega 190 ár verða frá síðustu aftöku á Íslandi 12. janúar þegar Magnús Ólafsson
á Sveinsstöðum verður með sögustund um atburðinn í Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Ég hef átt margt sporið
um þessar slóðir enda
gekk búfénaðurinn okkar þar
sem Þrístapar eru.
„Það eru margir vinklar á sögunni,“ segir Magnús um síðustu aftökuna á Íslandi.
1793 Jean-Pierre Blanchard verður
fyrstur til að fljúga yfir Bandaríkin í loft-
belg.
1799 Básendaflóðið veldur stórtjóni
um öll Suðurnes. Básenda á Miðnesi
tekur af.
1857 Jarðskjálfti, sem talinn er vera 7,9
stig á Richter-kvarða, verður í Kaliforníu.
1863 Rekstur neðanjarðarlestakerfis Lundúna hefst.
1935 Lög um aldurshámark opinberra starfsmanna og
embættismanna eru sett.
1964 Tunnuverksmiðjan á Siglufirði eyðileggst í bruna og
40 manns verða atvinnulausir.
1972 Stærsta farþegaskip heims, Queen Elizabeth,
brennur og sekkur í höfninni í Hong Kong.
1979 Sænska hljómsveitin ABBA flytur lagið „Chiquitita“
á góðgerðartónleikunum Music for UNICEF í tilefni af ári
barnsins í New York-borg.
1982 Fyrsta uppfærsla
Íslensku óperunnar í Gamla
bíói, Sígaunabaróninn, er
frumsýnd.
1986 Hafliði Hallgrímsson
hlýtur tónskáldaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir verk
sitt Poemi.
Merkisatburðir
9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT