Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.01.2020, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 09.01.2020, Qupperneq 33
Bíó Paradís hefur nýtt ár þar sem fjölmargt bitastætt er að finna fyrir hina kvikmynda-g löðu . Blaðamaðu r hitti Hrönn Sveins- dóttur framkvæmdastjóra og Ásu Baldursdóttir dagskrárstjóra og forvitnaðist um það helsta sem er á dagskrá. Talið berst fyrst að hlutverki hússins. „Bíó Paradís er eina list- ræna kvikmyndahús landsins. Við erum að veita almenningi aðgang að kvikmyndamenningu og sýnum allt það sem hin kvikmyndahúsin eru ekki að sýna. Flestar kvik- myndir sem sýndar eru í kvik- myndahúsum á Íslandi koma frá Hollywood og þar af leiðandi er Bíó Paradís mikilvæg og stórkostleg viðbót við kvikmyndamenning- una,“ segir Hrönn, sem hóf störf sem framkvæmdastjóri í ársloks 2011. „Bíó Paradís hóf starfsemi árið 2010 og það gekk á ýmsu fyrstu árin. Við vorum til dæmis ekki með alvöru sýningarbúnað til að geta sýnt nýjustu kvikmyndirnar. Ása koma hingað sem dagskrárstjóri árið 2013 og við fórum að mæta á stærstu kvikmyndahátíðir heims og semja um kaup á myndum. Við leggjum mikla áherslu á að breikka hópinn sem kemur hingað og það hefur gengið vel.“ Þáttur í því að breikka hópinn eru sýningar á svokölluðum partí- myndum. „Við sýnum vinsælar eldri myndir sem höfða til fólks sem hefur ekki endilega áhuga á listrænum kvikmyndum,“ segir Ása. „Þetta eru myndir, oft frá níunda og tíunda áratugnum, sem fólk vill sjá í fullum sal af fólki sem hefur áhuga á því sama og það sjálft. Þarna má allt. Það má öskra ef Patrick Swayze rífur sig úr að ofan og það má syngja með í söngatriðum. Við erum með bar og það má fara með drykk inn í salinn. Þetta er upplifunarbíó.“ Sem dæmi um vinsælar myndir í þessum flokki nefnir Ása Mamma Mia sing along, Back to the Future, Rocky Horror Picture Show og Stella í orlofi. „Við erum einmitt að auglýsa eftir hugmyndum á Facebook þar sem fólk getur lagt inn sína tillögu að föstudagspartísýningum fyrir árið 2020,“ segir Ása. Pólsk félagsmiðstöð „Við erum með fastan dagskrár- lið, Svarta sunnudaga, þar sem við sýnum kvikmyndaperlur og klassík, allt niður í þöglar myndir og nostalgíumyndir sem eiga sinn sess í kvikmyndasögunni,“ segir Ása. „Pólskar myndir eru fyrirferð- armiklar á dagskránni. Það er rík kvikmyndahefð í Póllandi og hér á landi búa fjölmargir Pólverjar. Við frumsýnum nýjar pólskar myndir um leið og þær eru frumsýndar í Póllandi. Stundum er uppselt langt fram í tímann. Við erum eiginlega orðin pólsk félagsmiðstöð.“ Íslenskar myndir eru svo vitan- lega í stöðugum sýningum. „Þetta kvikmyndahús er sjálfseignarstofn- un í eigu kvikmyndagerðarfólks og hefur verið hugsað sem vettvangur fyrir íslenska kvikmyndagerð. Við sýnum ekki bara leiknar myndir heldur líka heimildarmyndir, stutt- myndir og listrænar sjálfstæðar myndir. Allar íslenskar myndir eru með enskum texta svo allir þeir sem búa á Íslandi en tala kannski ekki íslensku hafa tækifæri til að sjá þær. Gullregn eftir Ragnar Bragason verður frumsýnd 10. janúar með pólskum texta og enskum,“ segir Hrönn. Umdeildur Polanski Það er sannarlega margt áhugavert á dagskrá Bíó Paradísar þetta árið. Hæst hlýtur þó að bera franska kvikmyndahátíð sem er í fyrsta sinn haldin í húsinu. Hátíðin fagnar tuttugu ára afmæli sínu þetta árið. „Við sýnum þverskurð af því besta úr franska kvikmynda- heiminum,“ segir Ása. „Opnunar- myndin er La Belle Époque, Fagra veröld, sem sló í gegn í Cannes fyrr á árinu. Svo erum við með myndina sem allir eru að tala um og hefur unnið til fjölda verðlauna, Portrait of a Lady on Fire. Þar segir frá ungri listakonu sem er fengin til að mála mynd af ungri brúður sem hefur engan áhuga á mann- inum sem hún er að fara að giftast. Listakonan verður ástfangin af við- fangsefni sínu. Á samfélagsmiðlum báðum við fólk að segja okkur hvaða klass- ísku frönsku mynd það vildi sjá og fengum 300 tillögur. Ein varð ofan á og það er hin klassíska Amélie frá 2001.“ Nýleg verðlaunamy nd ef tir Roman Polanski, J’accuse, sem á ensku nefnist An Officer and a Spy og fjallar um Dreyfus-málið, verð- ur sýnd á hátíðinni. Nauðgunar- ákærur gegn Polanski gera að verk- um að allt sem hann kemur nálægt verður eldfimt og vekur deilur, og það á einnig við um þessa mynd. „Einhverjum á kannski eftir að misbjóða að við skulum sýna mynd eftir Polanski. Þetta er mynd sem vann Silfurljónið í Feneyjum og tilnefnd til Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna. Myndin verður á dagskrá af því að hún hefur fengið feikna góða dóma og unnið til verðlauna. Við höfum þegar fengið athugasemdir frá femínískum öf lum í samfélaginu vegna sýningar á myndinni en það er ekki hlutverk okkar að ritskoða menningu. Fólk getur ákveðið sjálft hvort það vill sjá hana eða ekki,“ segir Hrönn. Fræðsla fyrir grunnskóla „Við erum í frábæru samstarfi við Breska þjóðleikhúsið og sýnum reglulega vinsælustu sýningarnar þaðan. Næst á dagskrá núna í janú- ar er uppfærsla á Present Laughter í leikstjórn Matthew Warchus – þannig að við hvetjum alla til þess að koma á fremsta bekk og hlæja með okkur!“ segir Ása. Þýsk kvikmyndahátíð verður að venju, nú haldin í ellefta sinn. „Hún er vinsælasti viðburðurinn frá upp- hafi en þar sýnum við það besta úr þýskri kvikmyndamenningu. Við erum með fyrstu og einu Alþjóð- legu barnakvikmyndahátíðina á Íslandi. Rússneskir kvikmynda- dagar og Pólskir kvikmyndadagar verða haldnir og ekki má gleyma Stockfish-kvikmyndahátíðinni og RIFF,“ segir Ása. Að lokum minna þær stöllur á kvikmyndafræðslu fyrir grunn- skólastig. Við erum að ala upp kynslóð kvikmyndaunnenda sem njóta leiðsagnar Oddnýjar Sen,“ segir Ása. „Það er svo mikilvægt að kunna að lesa myndmál, ekki síður en ritmál,“ segir Hrönn. „Án þess að skilja myndmál og stílbrögð kvik- myndalistarinnar þá skilur maður ekki fjölmiðla.“ Mikilvæg og stórkostleg viðbót Partí-myndir, ódauðleg klassík og kvik- myndahátíðir á dagskrá Bíó Paradísar á nýju ári. Hrönn Sveinsdóttir fram- kvæmdastjóri og Ása Baldursdóttir dag- skrárstjóri hafa breikkað hóp gesta. Hrönn og Ása í upplifunargír í bíóinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Mynd Polanski um Dreyfus-málið verður sýnd á franskri kvikmyndahátíð. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.