Fréttablaðið - 09.01.2020, Síða 34
Tryggðu þér áskrift
Í KVÖLD
KL. 19:05
KAUPTU STAKAN LEIK:
Brynhildur Guðjóns-dóttir leikstýrir Vanja frænda eftir Tsjekhov, jóla- og afmælisleik-riti Borgarleikhússins, sem frumsýnt verður
11. janúar. Hún gefur sér tíma í við-
tal þó að nóg sé að gera við að hnýta
lausa enda í undirbúningnum. „Ég
hef áhuga á því hvað fer í leikskrána
og skipti mér af því,“ segir hún bros-
andi. „Í fyrra settum við ítarefni
með Ríkarði III, til dæmis ættartré,
því fjölskyldusagan var flókin – líka
grein um fallvalta lukku sem mið-
aldamaðurinn trúði á og við ættum
í raun að trúa á enn.“
Nú er það hið rússneska 120 ára
gamla verk Vanja frændi, sem allt
snýst um og lærdómurinn sem
það færir nútímanum. Brynhildur
segir magnað að þar sé meðal
annars fjallað um nákvæmlega
sömu hluti og umræðan snýst um
á okkar tímum. „Fólk horfir upp á
hnignandi skóga, þornandi tjarnir
og fækkun innan dýraríkisins.
Þarna er iðnbyltingin byrjuð og
þeir framsýnustu hafa áhyggjur af
náttúrunni.“
Leikritið gerist í rússneskri sveit,
að sögn Brynhildar. „Vanja frændi
sér um umsýslu stórs óðals, ásamt
systurdóttur sinni. Allt snýst um
að halda búinu gangandi til að geta
haldið uppi lífsstíl fyrrverandi mágs
hans sem hefur misst konuna en er
fínn prófessor og býr í borginni.
Þegar leikritið hefst hefur Vanja
frændi áttað sig á því að sjálfur á
hann enga ást, engin börn og öllum
er sama um hann. Hann leikur bara
aukahlutverk í eigin lífi og upplifir
hörmulega krísu.“
Brynhildur segir orð á kærleiks-
kúlu Ragnars Kjartanssonar lista-
manns – Það er fallegt en sorglegt
að vera manneskja – eiga við þetta
verk. „Þetta eru orð sem Tsjekhov
mælti einhvern tíma og fékk að
láni frá Somerset Maugham. Þau
lýsa þessum grátbroslega rússibana
sem lífið er, stundum er það upp og
stundum niður og til að geta upplif-
að mikla gleði verður manneskjan
að hafa mátað sig við sorgina.“
Við sögu kemur meðal annars
heillandi einfari, Astrow læknir, að
sögn Brynhildar. „Astrow er annt
um landið, hann hefur áhyggjur af
vélvæðingunni sem eyði skógunum,
ferðast um sveitir og talar fyrir
náttúruvernd. Þau element óma í
gegnum verkið og með meðulum
leikhússins leggjum við áherslu á að
ná þeim nútíma hugsunarhætti út
úr þessum gamla texta. Við þurfum
ákveðinn galsa til að dramatíski
undirtónninn lifi af og þarna er
einstigi að feta en mikil stoð hefur
verið í Hafliða Arngrímssyni, marg-
fróðum dramatúrg leikhússins. Það
er táknrænt að ein persónan, Jelena,
dansar einmitt hálfgerðan línu-
dans. Hún er Helena fagra innan
gæsalappa, hin nýja eiginkona
prófessorsins, kornung, gullfalleg
og f luggáfuð. Vanja elskar Jelenu,
Jelena girnist lækninn, Sonja elskar
hann líka – allt er í kross.“
Glæný þýðing Gunnars Þorra
Péturssonar (Gunnarssonar rithöf-
undar) á verkinu, beint úr frum-
málinu, er glæsileg, að mati Bryn-
hildar. „Við eigum nýja kynslóð
leikritaþýðenda, það er mikil gjöf,
því í Vanja frænda er orðið svolítið
upphafið. Ekki svo að skilja að við
séum að búa til einfaldað nútíma-
mál, Gunnar Þorri er síst á þeim
buxunum, fræðimaðurinn sem
hann er, en það er eitthvað brak-
andi og skýrt við tungumálið hans
og þá er auðveldara fyrir leikarana
að samsama sig því og senda það til
áhorfenda.“
Brynhildur segir um stórskotalið
að ræða á sviðinu. „Valur Freyr Ein-
arsson leikur Vanja frænda. Aðrir
leikarar eru Unnur Ösp Stefánsdótt-
ir, Hilmir Snær Guðnason, Jóhann
Sigurðarson, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Margrét Helga Jóhannsdótt-
ir, Katrín Halldóra Sigurðardóttir,
Arnar Dan Kristjánsson og Halldór
Gylfason. Þetta er kastið okkar,
dásamlegt kast. Sýningin er fyrst
og fremst gríðarlega flókin leikara-
vinna sem allt veltur á. Leikararnir
taka flugið og listrænir stjórnendur
eru líka snillingar: Börkur Jónsson
hannar leikmyndina og Filippía
Kristjánsdóttir búninga, Björn
Bergsteinn lýsir, Þórður Gunnar
gerir hljóðmyndina og Bjarni Frí-
mann semur tónlistina.“
Grátbroslegur rússibani eins og lífið er
Leikritið Vanja frændi verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu á laugardag. Það er frá
árinu 1899 en fjallar þó um nútímaleg mál – áhyggjur af náttúrunni og ástarflækjur.
Brynhildur leikstjóri er afar ánægð með leikmynd Barkar Jónssonar í Borgarleikhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Unnur Ösp, Valur Freyr og Hilmir Snær í hlutverkum. MYND/GRÍMUR BJARNASON
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
9. JANÚAR 2020
Myndlist
Hvað? Ritlist og myndlist
Hvenær? 14.00-17.00
Hvar? Grafíksalurinn, Tryggvagötu
Helga Arnalds opnar sýningu þar
sem hún vinnur með djúpþrykk,
háþrykk, teikningar, akrílmyndir
og þrívíð veggverk, ávallt með
bókina sem uppsprettu.
Tónlist
Hvað? Teenage Songbook of Love
and Sex
Hvenær? 21.00
Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu
Teenage Choir of Love and Sex er
kór fólks á aldrinum 15-19 ára.
Hann syngur lög sem hann hefur
samið sjálfur um eigin reynslu
af rómantískum samböndum og
kynlífi. Verkið var sýnt við góðar
viðtökur á Reykjavík Dance Festi-
val síðastliðið haust.
Hvað? Jazz, jazz
Hvenær? 21.00-23.00
Hvar? Petersen svítan
Söngkonan Stína Ágústsdóttir og
gítarleikarinn Andrés Þór leika i
Petersen svítunni í Gamla Bíói. Á
efniskránni verða lög úr ýmsum
áttum í útsetningum dúettsins.
Aðrir viðburðir
Hvað? Tónlist, högglist, skart
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Super Natsuki Tamura mun reiða
fram ýmsa veraldlega og óverald-
lega hluti og bjóða vinum sínum
og samstarfsmönnum á svið.
Meðal þeirra sem fram koma eru
Kaori Asahiro, Satoru Kita, Amon
Bey og Sævar Helgi Jóhannsson.
Miðaverð 2.000 kr.
Stína Ágústsdóttir syngur í Petersen
svítunni í Gamla Bíói.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25F I M M T U D A G U R 9 . J A N Ú A R 2 0 2 0