Fréttablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 37
Þótt vetrarkuldinn ríki enn og vafalaust séu nok k r ir mánuðir í að það fara að hlýna, sakar ekki að velta fyrir sér hvað verður heitt í fatatískunni í vor. Maður getur jafnvel verið hagsýnn og tveimur skrefum á undan með því að þræða útsölurnar og sjá hvort ekki finnist eitthvað af vortískunni á rekkunum. Neon-litir voru til dæmis vin- sælir á síðasta ári og verður lítil breyting þar á samkvæmt erlendum tískuspekúlöntum, því er kjörið að nýta tækifærið og fjárfesta í þeim á hagstæð- ara verði sé áhuginn fyrir hendi. steingerdur@frettabladid.is Tískan í vor Gervileður Frábær þróun. Leður hefur fest sig í sessi í fatastískunni síðustu aldir og mun því líklega ekki hverfa af sjónarsviðinu á næstunni. Það er samt frábær þróun að notkun þess sé á undanhaldi og gervileður sé að verða vinsælla og vinsælla. Betra fyrir umhverfið, dýrin og okkur. Svo er það einfaldlega flottara og ódýrara. Millisíð pils Mjög hentugt fyrir íslenska veðráttu þar sem styttri pils get oft verið smá áhætta vegna veðurs og vinda. Svo eru þau oft í svo fallegu og praktísku sniði. Aðsniðnu „pencil“-pilsin í sömu sídd halda svo áfram að vera vinsæl. Svo er auðvelt að klæða pils í þessari sídd upp eða niður. Hlý peysa brett ofan í pilsið fyrir hversdagslegt útlit, falleg skyrta við pilsið fyrir vinnuna og í aðsniðnum hlýrabol virkar þetta saman eins og glæsilegasti kjóll, fullkomið fyrir fínustu tilefni. Bleikur og rauður saman Taraji P. Henson og Mandy Moore klæddust báðar bleikum og rauðum kjólum á Emmy-verðlaunahátíð- inni í haust. Hingað til hefur þessi litasamsetning þótt frekar væmin og óspennandi en í vor verður hún að öllum líkindum áberandi. Skemmtilegt og vorlegt. Nýtt ár er hafið og því um að gera að skoða vortískuna. Hér eru nokkur alveg ómissandi trend sem þykja líkleg til að verða áberandi nú í vor. 9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.