Fréttablaðið - 09.01.2020, Side 39
Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar okkar í síma 580 3900
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
*Einnig fáanlegt með ensku tali.
TILBOÐSVERÐ
LIFEPAK CR PLUS
159.900
KR M/VSK
VEGGFESTING
19.000
KR M/VSK
Einfalt og nett hjartastuðtæki fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Tækið greinir sjálfkrafa mögulega rafvirkni í hjartanu
og sé þess þörf gefur það rafstuð.
Tækið talar til notandans og gefur fyrirmæli á íslensku*
LIFEPAK CR PLUS
HJARTASTUÐTÆKI
Prikið við Bankastræti ætlar að láta á það reyna að bjóða bara upp á veganfæði út janúar. Geoffrey Huntington-Willams, einn eigenda
staðarins, segir rekstraraðilana hafa
lengi langað að láta á þetta reyna en
Örn Tönsberg, einnig þekktur sem
Össi, er hugmyndasmiðurinn að
baki B12.
U-beygja
„Við ákváðum að taka smá U-beygju
þegar það kemur að eldhúsinu hjá
okkur. Hingað til hefur Prikið verið
þekktast fyrir klassískan þynnku-
mat, egg og beikon í morgunmat og
hamborgarana. Kjötið hefur verið
áberandi en við höfum bætt okkur
mikið síðustu ár og höfum verið
með f lottan veganmatseðil í tvö
ár sem við gerðum í samstarfi við
Össa,“ segir Geoffrey.
Honum f innst mikilvægt að
rekstraraðilar axli ábyrgð og leggi
sitt af mörkum þegar það kemur að
því að bjóða upp á grænkerafæði,
því að sjálfsögðu sé það okkur ekki
einungis gott heldur stuðli að vel-
ferð dýra og minni mengun.
„Við höfum áður gert þetta með
góðum árangri, að vera með pop-
up stað og breyta til tímabundið.
Það var gert í samstarfi við Ko-re
og gekk svo vel að í dag er eigandi
þess staðar, Atli Már, yfirmaður
eldhúss Priksins. Núna ætlum við
að láta reyna á þetta aftur og bjóða
einvörðungu upp á veganfæði úr
eldhúsinu okkar, við erum búin
að fjarlægja allt sem er ekki vegan
og taka eldhúsið í gegn. Þetta er
hugarfóstur Össa en þeir Atli unnu
seðilinn saman. Við köllum þetta
B12 sem er svolítið skemmtilegt, því
Prikið er statt við Bankastræti 12,“
segir Geoffrey.
„Svo er B12 að sjálfsögðu mikil-
vægasta vítamínið fyrir þá sem tak-
marka neyslu kjöts eða eru vegan.
Þetta er eina vítamínið sem þú
færð ekki úr grænkerafæði. En það
er allt í lagi, það er lítið mál að taka
inn B12. Það verður B12 á svæðinu
skilst mér,“ segir Össi.
„Já, öllum verður velkomið að
koma á barinn og fá B12 í boði húss-
ins,“ segir Geoffrey.
„Svo er þetta líka bara áminning
til fólks að taka B12,“ svara Össi.
Ekki sérstakir heilsuréttir
„Við hlökkum mikið til að sjá hvern-
ig þetta virkar og við sem erum að
reka staðinn höfum mjög mikla trú
á þessu. Við vitum að það er rosa-
lega sterkt og gróskumikið vegan-
samfélag á Íslandi. En við erum ekki
endilega bara að reyna að höfða til
þeirra, við lítum líka á þetta sem
tækifæri til að sýna öðrum hvað
vegan matur getur verið góður.
Okkur langar að stuðla að aukinni
víðsýni viðskiptavina okkar. Þetta
eru heldur ekki einhverjir sérstakir
heilsuréttir, þetta er alveg enn
þá Prikið svo sumir réttirnir eru
algjör þynnkumatur, bara „doing’t
it right“,“ segir Geoffrey.
Þeir segja matseðilinn ekki stór-
an en mikið hafi verið lagt í hvern
rétt. Svo verður reglulega boðið upp
á nýja rétti sem ekki eru á seðlinum
sjálfum.
„Við erum að þróa þetta áfram,
okkur langar að hafa þetta svolítið
lifandi,“ segi Össi.
Einfaldaði lífið
Össi gerðist vegan fyrir tæplega
fimm árum á afmælisdaginn sinn.
„Ég horfði á kvikmynd um vegan-
isma þar sem maður sá allt það ljóta
á bak við kjötiðnaðinn. Síðan þá
hef ég verið vegan, ég tók ákvörðun
og hef staðið við hana. Fyrst voru
þetta mikil viðbrigði enda var mun
minna vöruúrval þá en er núna. Svo
kemst þetta í rútínu og vana, eftir
smá tíma hættir maður að hugsa
um það. Ég pæli ekki mikið í því í
dag að ég sé vegan því það er bara
partur af manns undirmeðvitund.
Hinn heimurinn er ekki lengur til.
Það einfaldaði líf mitt til muna að
þurfa ekki að spá í mörgum f leiri
þáttum en akkúrat þessu. Það er
ekkert f lókið í dag að vera vegan,“
segir Össi.
„Já, alveg rétt hjá þér, þú getur
bara labbað inn á Prikið og pantað
þér eitthvað,“ segir Geoffrey og þeir
hlæja báðir.
„Meira að segja bjórinn er vegan,“
bætir hann við.
Veganseðillinn verður í boði út
mánuðinn, mögulega lengur verði
viðtökurnar góðar.
steingerdur@frettabladid.is
B12 í boði á barnum
Í janúar ætlar Prikið í Bankastræti að bjóða einvörðungu upp á
veganfæði úr eldhúsi sínu. Einn eigendanna segir mikilvægt fyrir
rekstraraðila að gera sitt til að stuðla að aukinni neyslu veganfæð-
is, það sé okkur ekki einungis gott heldur stuðli einnig að velferð
dýra og minni mengun. Það sé mun auðveldara en marga grunar.
Geoffrey og Örn eru báðir spenntir fyrir að sjá hvernig mun ganga að bjóða
eingöngu upp á veganfæði á Prikinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sætkartöflu franskar með sterkum kjúklingabaunum, vorlauk, pikkluðu
rauðkáli og sterkri aji verde sósu, fá líklega marga til að sleikja út um.
Maís með hvítlauksmæjó, kóríander, vegan-parmesan og cayenne-pipar.
NÚNA ÆTLUM VIÐ AÐ
LÁTA REYNA Á ÞETTA
AFTUR OG BJÓÐA EINVÖRÐ-
UNGU UPP Á VEGANFÆÐI ÚR
ELDHÚSINU OKKAR, VIÐ ERUM
BÚIN AÐ FJARLÆGJA ALLT SEM
ER EKKI VEGAN OG TAKA
ELDHÚSIÐ Í GEGN.
Geoffrey
ÞAÐ EINFALDAÐI LÍF
MITT TIL MUNA AÐ
ÞURFA EKKI AÐ SPÁ Í MÖRGUM
FLEIRI ÞÁTTUM EN AKKÚRAT
ÞESSU. ÞAÐ ER EKKERT FLÓKIÐ Í
DAG AÐ VERA VEGAN.
Örn Tönsberg
9 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð