Fréttablaðið - 09.01.2020, Page 41
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Kolbeins
Marteinssonar
BAKÞANKAR
Njóttu
20
til 90%
afsláttur
af völdum vörum
Auðvelt að versla á byko.is
Komdu
og gerðu
frábær
kaup!
Hálkusalt
5kg.
895
54710126
Snjóskófla
frá Fiskars
6.995
55622063
Tilboðsverð
Kuldagalli
Dökk blár, stærðir eru:
S, M, L, XL, 2XL, 3XL, 4XL.
10.495
93458380
Almennt verð: 14.995
Tilboðsverð
Mannbroddar
fyrir hálku og ís.
1.496
84533870
Almennt verð: 1.995
-30%
-25%
Förum
varlega
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
db
re
ng
l.
Það eru sannarleg forréttindi að fá að lifa þær miklu breyt-ingar sem átt hafa sér stað á
þessari öld. Flest sem ég taldi sem
barn að væru tækninýjungar er í
dag á leiðinni á Þjóðminjasafnið.
Sonur minn 10 ára spurði mig
um daginn hvað kassetta (segul-
bandsspóla) væri og ég þurfti í
löngu máli að útskýra það fyrir
honum. „Er það svona eins og
maður setur í sjónvarpið uppi
í sumarbústað?“ spurði hann
og ég svaraði því til að það væri
reyndar vídeóspóla sem væri eins
konar stór kassetta. Þegar ég sagði
honum svo frá vídeóleigunum hló
hann hátt.
En breytingum á tækni og um
leið samfélögum fylgja áskoranir
og þeir sem ekki breytast með eru
dæmdir til að enda á sama stað og
áðurnefnd kassetta og hlutirnir
breytast hratt þessi misserin.
Dætur mínar tvær, sem muna vel
eftir vídeóleigunum, eru hættar
að borða kjöt. Eftir því sem ég best
veit tilheyra þær sístækkandi hópi
ungs fólks. Innan skamms munum
við öll borða kjötlíki framleitt úr
plöntupróteinum sem bragðast
eins og hefur svipað næringargildi.
Þá drekka Íslendingar nú þegar
innf lutta hafra- og sojamjólk í
tonnatali í stað kúamjólkur. Þessu
þarf íslenskur landbúnaður að
átta sig á og því fyrr því betra. Allt
í einu er dagskrárvald heims-
málanna komið í hendurnar á
sænskri unglingsstúlku. Það þurfa
miðaldra karlar að skilja og fara
að sætta sig við. Og brátt munu
bensín- og dísilbílar fara á söfn
við hliðina á gufuvélinni, sumum
finnst það dapurleg heimsmynd
og neita að horfast í augu við stað-
reyndir. Þegar barnabarn mitt
talar við pabba sinn (áðurnefndan
son minn) mun það hlæja að allri
þeirri forneskju sem okkur finnst
svo sjálfsögð í dag, en heimurinn
verður betri.
Þið munuð öll …