Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0
Ódýrasti rafbíllinn
260 km drægni
Nýr e-up!
Verð frá
2.990.000 kr
Björgvin Páll Gústavsson fagnar hér eftir að hafa varið eitt af þrettán skotum sínum í ellefu marka sigri á Rússum á Evrópumótinu í gærkvöld. Íslenska liðið stakk af snemma leiks og hleypti
Rússum aldrei inn í leikinn á ný. Liðið er með fullt hús stiga og er komið áfram í milliriðlana eftir að Danir mörðu jafntef li gegn Ungverjum í gær. Sjá síðu 10 og 15. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
LÖGREGLUMÁL Guðmundur Freyr
Magnússon, sem er í haldi spænsku
lögreglunnar í bænum Torrevieja
á Spáni er sagður hafa brotið sér
leið inn á heimili móður sinnar og
banað þar sambýlismanni hennar
með hnífi.
Kristín Guðmundsdóttir, móðir
Guðmundar, segir að harmleikur-
inn hafi átt sér stað á þriðja tím-
anum aðfaranótt sunnudags.
Er Kristín afar ósátt við frétta-
flutning spænska miðilsins Inform-
acion. Bæði Morgunblaðið og Ríkis-
sjónvarpið vitnuðu í Informacion.
Í samtali við Fréttablaðið gagn-
rýnir Kristín frásögn Informacion
og Morgunblaðið fyrir að leita ekki
svara hjá henni áður en fréttin
var birt á mbl.is. Informacion
segir Guðmund hafa klifrað yfir
vegg og komist inn á heimili Krist-
ínar og sambýlismanns hennar.
Komið hafi til átaka sem endað
hafi með því að sambýlismaðurinn
hafi fallið á rúðu og hún brotnað.
Við það hafi hann hlotið fjölda
áverka og látist. Þá segir Inform-
acion að eftir rannsókn lögreglu sé
vitnisburður Kristínar ekki talinn
standast.
Kristín segir Informacion fara
með rangt mál. Sonur hennar hafi
kastað 14 kílóa gaskút í gegn um
rúðuna og síðan ruðst inn í húsið
vopnaður hnífi og ýtt sambýlis-
manni hennar í gólfið og síðan lagt
ítrekað til hans með vopninu. Það
hafi orðið honum að bana.
Að sögn Kristínar voru glerbrot
á víð og dreif um íbúðina. Sam-
býlismaður hennar hafi skorist er
hann reyndi að verjast Guðmundi.
Kristín segir sambýlismann sinn
hafa látist í fangi hennar.
Kristín segir son hennar ekki
hafa náð að f lýja af vettvangi og
verið handtekinn. Hún hrósar lög-
regluþjónunum sem komu fyrstir á
vettvang.
„Einn þeirra tók utan um mig og
hann grét með mér. Annar færði
mér kex og kaffi. Þetta fékk mikið á
þá,“ segir Kristín sem kveður sumt í
málflutningi spænsku lögreglunn-
ar fráleitt.
„Það áttu sér engin átök stað.
Sonur minn hafði hann undir á
skömmum tíma,“ segir Kristín.
Skýrsla var tekin af henni í gær og
hún á að mæta aftur klukkan tíu
fyrir hádegi í dag.
„Við vorum í sambúð í tvö ár.
Hann var yndislegur og góður
maður,“ segir Kristín sem kveðst
vart geta lýst sorginni sem hún
glímir við. „Hann átti systkini,
börn og barnabörn sem ég finn svo
mikið til með.“
Kristín segir Guðmund hafa áður
ráðist á sambýlismanninn sem hafi
fengið höfuðhögg og lagst inn á
spítala. Þá hafi Guðmundur verið
úrskurðaður í nálgunarbann.
Ár ið 2007 var Guðmundur
dæmdur í þriggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir íkveikju. Þá hlaut hann
fangelsisdóm í fyrra og beið afplán-
unar. – kkg
Sagður hafa stungið sambýlismanninn
Móðir mannsins sem situr í varðhaldi á Spáni grunaður um að hafa banað sambýlismanni hennar segir soninn hafa brotið sér leið
inn í íbúð þeirra og banað honum með endurteknum hnífsstungum. Hún gagnrýnir fréttaflutning á Íslandi og á Spáni af málinu.
Við vorum í sam-
búð í tvö ár. Hann
var yndislegur og góður
maður. Hann átti systkini,
börn og barnabörn sem ég
finn svo mikið til með.
Kristín Guðmundsdóttir í Torrevieja
Meira á frettabladid.is