Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.01.2020, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 14.01.2020, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Ódýrasti rafbíllinn 260 km drægni Nýr e-up! Verð frá 2.990.000 kr Björgvin Páll Gústavsson fagnar hér eftir að hafa varið eitt af þrettán skotum sínum í ellefu marka sigri á Rússum á Evrópumótinu í gærkvöld. Íslenska liðið stakk af snemma leiks og hleypti Rússum aldrei inn í leikinn á ný. Liðið er með fullt hús stiga og er komið áfram í milliriðlana eftir að Danir mörðu jafntef li gegn Ungverjum í gær. Sjá síðu 10 og 15. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA LÖGREGLUMÁL Guðmundur Freyr Magnússon, sem er í haldi spænsku lögreglunnar í bænum Torrevieja á Spáni er sagður hafa brotið sér leið inn á heimili móður sinnar og banað þar sambýlismanni hennar með hnífi. Kristín Guðmundsdóttir, móðir Guðmundar, segir að harmleikur- inn hafi átt sér stað á þriðja tím- anum aðfaranótt sunnudags. Er Kristín afar ósátt við frétta- flutning spænska miðilsins Inform- acion. Bæði Morgunblaðið og Ríkis- sjónvarpið vitnuðu í Informacion. Í samtali við Fréttablaðið gagn- rýnir Kristín frásögn Informacion og Morgunblaðið fyrir að leita ekki svara hjá henni áður en fréttin var birt á  mbl.is.  Informacion segir  Guðmund hafa klifrað yfir vegg og komist inn á heimili Krist- ínar og sambýlismanns hennar. Komið hafi til átaka sem endað hafi með því að sambýlismaðurinn hafi fallið á rúðu og hún brotnað. Við það hafi hann hlotið fjölda áverka og látist. Þá segir Inform- acion að eftir rannsókn lögreglu sé vitnisburður Kristínar ekki talinn standast. Kristín segir Informacion fara með rangt mál. Sonur hennar hafi kastað 14 kílóa gaskút í gegn um rúðuna og síðan ruðst inn í húsið vopnaður hnífi og ýtt sambýlis- manni hennar í gólfið og síðan lagt ítrekað til hans með vopninu. Það hafi orðið honum að bana. Að sögn Kristínar voru glerbrot á víð og dreif um íbúðina. Sam- býlismaður hennar hafi skorist er hann reyndi að verjast Guðmundi. Kristín segir sambýlismann sinn hafa látist í fangi hennar. Kristín segir son hennar ekki hafa náð að f lýja af vettvangi og verið handtekinn. Hún hrósar lög- regluþjónunum sem komu fyrstir á vettvang. „Einn þeirra tók utan um mig og hann grét með mér. Annar færði mér kex og kaffi. Þetta fékk mikið á þá,“ segir Kristín sem kveður sumt í málflutningi spænsku lögreglunn- ar fráleitt. „Það áttu sér engin átök stað. Sonur minn hafði hann undir á skömmum tíma,“ segir Kristín. Skýrsla var tekin af henni í gær og hún á að mæta aftur klukkan tíu fyrir hádegi í dag. „Við vorum í sambúð í tvö ár. Hann var yndislegur og góður maður,“ segir Kristín sem kveðst vart geta lýst sorginni sem hún glímir við.  „Hann átti systkini, börn og barnabörn sem ég finn svo mikið til með.“ Kristín segir Guðmund hafa áður ráðist á sambýlismanninn sem hafi fengið höfuðhögg og lagst inn á spítala. Þá hafi Guðmundur verið úrskurðaður í nálgunarbann. Ár ið 2007 var Guðmundur dæmdur í þriggja og hálfs árs fang- elsi fyrir íkveikju. Þá hlaut hann fangelsisdóm í fyrra og beið afplán- unar. – kkg Sagður hafa stungið sambýlismanninn Móðir mannsins sem situr í varðhaldi á Spáni grunaður um að hafa banað sambýlismanni hennar segir soninn hafa brotið sér leið inn í íbúð þeirra og banað honum með endurteknum hnífsstungum. Hún gagnrýnir fréttaflutning á Íslandi og á Spáni af málinu. Við vorum í sam- búð í tvö ár. Hann var yndislegur og góður maður. Hann átti systkini, börn og barnabörn sem ég finn svo mikið til með. Kristín Guðmundsdóttir í Torrevieja Meira á frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.