Fréttablaðið - 14.01.2020, Page 4
Réttarbeiðnir frá er-
lendum yfirvöldum varða
meðal annars öflun gagna
hér á landi og skýrslutökur
af vitnum og sakborningum.
LÖGREGLUMÁL Málum sem koma
inn á borð Ríkissaksóknara fjölgar
mikið milli ára. Áfrýjuðum málum
fjölgaði um tæplega þriðjung í fyrra
frá því árinu þar á undan en áfrýj-
anir voru 100 árið 2017, 105 árið
2018 en fóru í 147 í fyrra. Kærum
til Ríkissaksóknara hefur að sama
skapi fjölgað umtalsvert milli ára.
Þá fer beiðnum frá öðrum ríkjum
um framsal sakaðra manna einnig
fjölgandi. Slíkar beiðnir voru fimm
árið 2017, níu árið 2018 en 14 í fyrra.
Á síðasta ári bárust ríkissaksókn-
ara alls 76 réttarbeiðnir frá erlend-
um yfirvöldum sem er líka fjölgun
því þær voru 58 árið 2018. Í svari við
fyrirspurn Fréttablaðsins segir að
verkefni að baki réttarbeiðnunum
séu fjölbreytt og misumfangsmikil,
en um þær gilda lög um framsal
sakamanna og aðra aðstoð í saka-
málum. Á meðal verkefna slíkra
beiðna eru skýrslutökur af vitnum
eða sakborningum, gagnaöflun og
birting gagna. Af þeim 76 réttar-
beiðnum sem bárust í fyrra sé 41
lokið en 35 ólokið.
Fyrir kemur að dómstólar leysi
úr ágreiningi um hvort orðið er við
réttarbeiðni. Í apríl á þessu ári hafn-
aði Landsréttur til að mynda kröfu
um afhendingu upplýsinga um IP-
tölu hér á landi vegna rannsóknar
á meintum ærumeiðingum í garð
opinbers starfsmanns í tengslum
við ætlaðar mútugreiðslur. Voru
hinar meintu ærumeiðingar birtar
á vefsíðu sem tengist IP-tölu skráðri
hér á landi. – aá
Beiðnum frá erlendum lögregluyfirvöldum fjölgar
Sogavegi 3 • Höfðabakka 1 • Sími 555 2800
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
RAUÐMAGIER FARINNAÐ KOMA
HROGN
& LIFUR
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
MINJAR „Flugskýlið er búið að
standa þarna frá 1940, þar inni er
rekstur sem stendur mjög vel. Með
friðuninni er búið að skapa stöðug-
leika, þetta er mjög mikill léttir að
vita að það verði ekki rifið,“ segir
Hilmar Á. Hilmarsson, athafna-
maður og eigandi f lugskýlis 1 á
Reykjavíkurflugvelli.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
í gær þá hefur mennta- og menn-
ingarmálaráðherra samþykkt til-
lögu Minjastofnunar um að friða
flugskýlið. Ekki hefur verið gengið
formlega frá friðlýsingunni.
Hilmar segir friðlýsingu ekki
breyta neinu fyrir starfsemina, það
sem hún geri sé að skapa stöðug-
leika um starfsemina.
„Þetta er í rauninni trygging
fyrir því að skýlið fari ekki neitt.
Það hefur reglulega verið skipt um
stjórnendur hjá Isavia á meðan við
höfum verið með rekstur í skýlinu,
annað slagið koma upp hugmyndir
um að rífa skýlið,“ segir Hilmar.
Margþættur f lugrekstur er nú til
staðar í skýlinu. „Skýlið er 3.000
fermetrar. Í norðurendanum er
Flugfélagið Ernir. Flugvirkjar eru
þarna með starfsemi. Svo eru líka
geymdar þyrlur þarna inni, annað
slagið eru þarna einkaþotur.“
Forsendur Minjastofnunar fyrir
friðun eru að skýlið sé með elstu
mannvirkjum á flugvellinum, smíð-
að af Bretum í síðari heimsstyrjöld
og burðarvirkið kunni að hafa varð-
veislugildi á heimsvísu. „Nánast
hvert einasta f lugfélag sem hefur
verið stofnað hér á landi hefur verið
með starfsemi í skýlinu. Loftleiðir
byrjuðu í þessu skýli,“ segir Hilmar.
Hilmar segir ferlið hafa tekið
langan tíma. Reykjavíkurborg hafi
ekki sett sig upp á móti friðun en
málið hafi verið lengi inni í ráðu-
neyti. Hilmar segir að það kunni
að skýrast af því að ríkið eigi lóðina
sem skýlið stendur á. „Reykjavíkur-
flugvöllur er sérstakur að því leyti
að þar eru engar lóðir fyrir hús-
næði. Lóðin sem flugskýlið stendur
á heyrir undir f jármálaráðu-
neytið,“ segir Hilmar. Isavia sendi
frá sér erindi til Minjastofnunar
vorið 2018 þar sem lögð voru fram
gagnrök fyrir friðun. „Isavia hefur
barist á móti friðuninni. Þeir fóru
með þetta til fjármálaráðuneytisins
til að koma í veg fyrir friðun. Ég er
glaður að vita að þessu sé lokið.“
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
sendi bréf á mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytið í október í
fyrra þar sem lýst er yfir andstöðu
við friðlýsingu. Segir að f lugskýlið
standi á einu verðmætasta bygg-
ingarsvæði landsins. Geti friðlýsing
takmarkað „eðlilega og skynsam-
lega uppbyggingu“ á landinu, það
myndi þá einnig búa til eignaverð-
mæti sem voru ekki áður til staðar.
Varðandi minjavernd segir í bréf-
inu að frekar ætti að friðlýsa eitthvað
annað flugskýli sem sé í eigu ríkisins
og koma þeim fyrir nálægt f lug-
turninum ef f lugstarfsemi leggst af
á Reykjavíkurflugvelli. Það sé „mun
eðlilegra“ en að friðlýsa f lugskýli 1
sem sé í eigu einkaaðila.
Hilmar segir að nú sé kominn
þrýstingur á lóðaúthlutun innan
f lugvallarins. „Við myndum þá fá
lóðarleigusamning, þeir myndu
áfram eiga lóðina, við þyrftum bara
að greiða leigu. Ég veit ekki af hverju
það er ekki þannig núna.“ arib@
frettabladid.is
Friðlýsing skapar stöðugleika
um starfsemina í flugskýli 1
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu Minjastofnunar um friðlýsingu á flugskýli
1 á Reykjavíkurflugvelli. Eigandi skýlisins segir það létti að starfsemin þar geti haldið áfram í friði fyrir
hugmyndum um niðurrif. Fjármála- og efnahagsráðuneytið vildi frekar friðlýsa skýli í eigu ríkisins.
Flugskýlið er um þrjú þúsund fermetrar að stærð og stendur fyrir aftan Hótel Natura. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNSÝSLA Grímur Grímsson,
tengsla full trúi Ís lands hjá Europol,
er á meðal um sækjanda um starf
Ríkis lög reglu stjóra. Sjö sóttu um
starfið og voru nöfn þeirra birt á
vef dómsmálaráðuneytisins í gær.
Auk Gríms sóttu um þau Arnar
Ágústs son öryggis vörður, Halla
Berg þóra Björns dóttir, lög reglu-
stjóri á Norður landi eystra, Kristín
Jóhannes dóttir lög fræðingur, Logi
Kjartans son, lög fræðingur, Páll
Win kel fangelsis mála stjóri og Sig-
ríður Björk Guð jóns dóttir, lög reglu-
stjóri á höfuð borgar svæðinu.
Em bætti ríkis lög reglu stjóra var
aug lýst laust til um sóknar eftir
að dómsmálaráðherra samdi um
starfslok við Harald Johannes sen
sem gegnt hefur embættinu í tæpan
aldarfjórðung. Nokkur styr stóð um
störf Haralds í aðdraganda starfs-
loka hans og lýstu meðal annars
allir lögreglustjórar á landinu, að
einum undanskildum, vantrausti á
Harald fyrr í vetur. – aá
Grímur meðal
umsækjenda
Grímur
Grímsson.
1 Harm leikurinn í Tor revi eja: Kona hins látna segir sorgina
ó bæri lega Maðurinn sem er í haldi
lögreglunnar á Spáni grunaður um
að hafa orðið manni að bana heitir
Guðmundur Freyr Magnússon.
2 Grímur Gríms son sækir um stöðu ríkis lög reglu stjóra
Grímur Gríms son er á meðal um
sækjanda um stöðuna.
3 „Þetta eru flókin mál fyrir fjölskylduna að leysa“ Elísa
bet II sendi frá sér yfirlýsingu um
ákvörðun Harrys og Meghan um
að láta af opinberum störfum
sínum fyrir konungsfjölskylduna.
SAMFÉLAG Erlendum ríkisborg-
urum búsettum hér á landi fjölgaði
um 59 frá desember 2019 til janúar
2020.
Alls voru 49.403 erlendir ríkis-
borgarar búsettir á Íslandi þann 1.
janúar á þessu ári.
Þetta kemur fram á vef Þjóð-
skrár Íslands. Á sama tíma fjölgaði
íslenskum ríkisborgurum búsett-
um hér á landi um 247.
Langstærstur hluti erlendra rík-
isborgara er frá Póllandi eða 20.655
manns.
Pólverjum búsettum á Íslandi
fækkaði um nítján frá desember til
janúar. Þótt aðeins sé um fáeina að
ræða er það í fyrsta skipti í nokkur
ár sem fækkar í þessum hópi.
Næststærsti hópur erlendra rík-
isborgara búsettra á Íslandi er frá
Litháen eða 4.629 manns. Í þeim
hópi f jölgaði um þrettán frá 1.
desember 2019 til 1. janúar á þessu
ári. – bdj
Pólverjum á Íslandi fækkaði lítillega
Frá Fullveldishlaupi Pólverja á Íslandi 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð