Fréttablaðið - 14.01.2020, Síða 13

Fréttablaðið - 14.01.2020, Síða 13
Hu g t a k ið n á m s -orða forði hef u r feng ið va x a nd i athygli í umræðu hér á landi. Kemur það til vegna þess að rannsóknir, erlendar og inn- lendar, sýna sterk tengsl á milli orðaforða nemenda og árangurs í námi. Menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, leggur áherslu á mikilvægi þess að efla námsorða- forða íslenskra nemenda, til að þeir standist alþjóðlegan samanburð í lesskilningi. En hver er íslenskur námsorða- forði, hvernig lærist hann og hvern- ig getum við metið hann? Námsorðaforði tilheyrir tungu- máli skólastarfsins og liggur til grundvallar námsframvindu á öllum sviðum. Með námsorðaforða er átt við þekkingu á orðum sem eru umfram algengustu orð tungumálsins. Þau eru notuð og eru nauðsynleg þegar fjallað er um ákveðin efni á djúpan, innihaldsríkan hátt. Slík orð koma sjaldan fyrir hvert og eitt og eru ótal mörg. Námsorðaforða má skipta upp í nokkra flokka: 1 samheiti algengra orða með einfalda merkingu: piltur í stað strákur; 2 orð með flóknari merkingu: or- sakir og afleiðingar, framvinda og velgengni; 3 orð sem tengjast áhugamálum eða ýmsum daglegum störfum: skíðasvæði, naglbítur, pipar- kvörn; 4 safn merkingarlega skyldra hugtaka: leikföng, verkfæri og matvæli; 5 orðasambönd: fara á fætur, taka djúpt í árinni; 6 orðaforði tiltekinna náms- greina: spendýr og ljóstillífun, landbúnaður og iðnaður. Ung börn bæta auðveldlega sjald- gæfum orðum með einfalda merk- ingu í safnið sitt. Ef þau umgangast fólk sem notar orð eins og stúlka, snæða, narta, kroppa og príla þá læra þau slík orð og nota jafnvel sjálf. Orð af þessu tagi bætast einn- ig í safnið í gegnum lestur. Fái börn að taka þátt í daglegu amstri með fullorðnum læra þau enn fleiri orð: steikarpanna, sláttuvél, skrúfjárn. Við sjö til níu ára aldur geta börn lýst hlutum, t.d. litum, stærð, lögun og hraða, greint það sem er líkt og ólíkt og f lokkað hluti eftir eigin- leikum eða/og hlutverkum. Í skólastarfi þarf að vinna mark- visst með orð sem tilheyra náms- orðaforðanum. Þau eru svo mörg og koma svo sjaldan fyrir að lík- urnar á að þau lærist af sjálfu sér eru hverfandi. Ef námsorðaforða er ekki sinnt er veruleg hætta á að frumskógarlögmálið verði ríkjandi í skólasamfélaginu. Þegar orð með flókna merkingu eru notuð og orð námsgreina eru tekin fyrir eiga börn með góðan orðaforða auðveldara með að til- einka sér efnið og læra ný orð. Börn sem hafa ekki fengið ríkulegt mál- uppeldi og börn sem nota ekki íslensku heima sitja eftir, þekking þeirra vex hægar. Hin ríku verða ríkari og hin fátæku fátækari. Markviss vinna með námsorða- forða byggir á vitneskju um það hver íslenskur námsorðaforði er, hvaða orð á að kenna á hverju stigi námsins og hve mörg orð. Grund- völlur að slíku starfi er að byggt sé á orðasafni sem unnið er úr rituðu efni samtímans, svokölluðum mál- heildum. Íslensku málheildirnar Mörkuð íslensk málheild og Risa- málheildin geta nýst sem grunnur að slíku starfi. Þar er orðum raðað á lista eftir tíðni þeirra. Algengasta orð íslenskunnar er númer eitt og svo koll af kolli. Enskar rannsóknir hafa leitt í ljós að algengustu 2000– 3000 ensku orðin tilheyra daglegu máli. Það eru því orð sem eru sjald- gæfari sem þarf að vinna með sér- staklega. Enskar rannsóknir hafa leitt í ljós að við 18 ára aldur þurfa nemendur að þekkja 80.000 orð til að ná tökum á framhaldsnámi. Mörkuð íslensk málheild og Risa- málheildin innihalda meira en milljón íslensk orð. Enn hafa ekki verið gerðar rann- sóknir á því hver íslenskur náms- orðaforði er nákvæmlega og hvort samræmi sé í tíðni orða í skólastarfi og í ofangreindu íslensku mál- heildunum. Við þurfum að auka þekkingu okkar á íslenskum orða- forða svo hægt sé að vinna með orð í skólastarfi sem líklegt er að komi fyrir náminu og í lífi og starfi í fram- tíðinni. Óformleg könnun á meðal háskólanema vakti efasemdir um hvort þeir hafi fengið næg tækifæri til að læra mikilvæg orð í grunn- og framhaldsskóla. Nemendurnir voru beðnir að hlusta á þáttinn Viku- lokin á Rás 1 og skrá öll orð sem þeir skildu ekki. Orðin framvinda, gró- inn, stofnframlag, neyslustýring, andagift, uppgangur, kapítalistar og eldmóður komu oftast upp. Ekki var kannað hvort þessi orð hafi leikið það stórt hlutverk að umfjöllunar- efnið hafi ekki skilist nægilega. Það má ekki vera tilviljunum háð hvaða orð og hversu mörg orð er unnið með í skólastarfi. Við þurfum líka að gæta þess að börn bæti jafnt og þétt við námsorðaforða sinn til að þau séu virkir námsmenn og nái markmiðum sínum. Enn eru ekki til íslensk orðaforðapróf sem taka mið af málheildum, hvorki próf sem meta orðskilning né orðanotkun, en slíkt er til m.a. fyrir enskt tungumál. Til að efla íslenskan námsorðaforða þurfum við að rannsaka hver hann er, þróa leiðir til að ef la hann og meta framfarir nemenda. Það má ekki vera tilviljun- um háð hvaða orð og hversu mörg orð er unnið með í skólastarfi. Íslenskur námsorðaforði: Hvernig eflum við hann og metum? Sigríður Ólafsdóttir lektor á menntavísinda- sviði Háskóla Íslands. Umr æða u m þær mik lu breytingar á þjóðfélaginu sem leiða af tæknivæðingu nútímans – fjórðu iðnbyltingunni – er vissulega tímabær. Í leiðara Fréttablaðsins þann 11. janúar ,Auður í aldri, er vikið að atriðum sem snerta vinnumarkaðinn á tíma sem þjóðin eldist hratt. Það þýðir, ef mannfjölgun samkvæmt spám Hagstofunnar gengur eftir, verði afar mikil stækkun á aldurs- hópnum á þriðja aldursskeiðinu, þ.e. fólki 65 ára og eldri. Og með auknu langlíf i gæti æviskeiðið eftir starfslok orðið álíka langt þeim tíma, sem viðkomandi voru á vinnumarkaði. Mannfjöldinn á Íslandi 2019 var 361 þúsund og voru 230 þúsund á höfuðborgarsvæðinu og 130 þúsund utan þess. Svokölluð mið- spá fyrir árið 2069 er 436 þúsund og gætu þá um 100 þúsund þeirra verið 65 ára og eldri. En þótt þetta séu aðeins ágiskanir og hugarf lug, er full ástæða til að gera ráð fyrir aukinni framfærslubyrði hinna yngri vegna aukins fjölda hinna eldri. Spurningin er því hvort eða hvernig megi bregðast við, t.d. einnig með því að eldri kynslóðin megi staldra lengur við í atvinnu og með lengri eigin framfærslu. Fólk á aldrinum 65-70 ára býr býsna oft við það atgervi að geta mætt óskum um að vinna lengur; um getur verið að ræða skort á sér- fræðikunnáttu þeirra og eru lækn- arnir væntanlega ekki eina dæmi þess. En hver svo sem starfsgreinin er, ætti það að spara hinum yngri sporin, að geta notið fenginnar langrar reynslu þeirra sem skila af sér og hverfa frá. Í þeim anda er lagafrumvarp, sem er komið fram um að opinberir starfsmenn geti unnið lengur en til sjötugs. En að lokum þetta : Gleymum því ekki að vaxandi hópur aldr- aðra er stærsti kjósendahópurinn. Ætti ekki að vera kominn tími til að stjórnmálaf lokkar hef ji innan eigin vébanda, umræðu um hvernig auka megi atvinnuframlag aldraðra í einkageiranum, þ.e. sem mestu án ríkisforsjónar? Myndi eldra fólk ekki meta mikils að heyra eitthvað annað en hve mjög þurfi að auka fjárframlög til elli- umönnunar? Fyrr og síðar Einar Benediktsson fyrrverandi sendiherra FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir: Jón Ívar Vilhelmsson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is ÞORRABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Kemur út föstudaginn 17. janúar. Meðal efnis verður Guðni Ágústsson í skemmtilegu forsíðuviðtali. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.