Fréttablaðið - 14.01.2020, Blaðsíða 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Mig langar að hjálpa öðrum við að ná tökum á fitu-púkanum því ég hef sjálf
verið föst í óhamingjusömum
skrokk og þegar ég kynntist því
hvernig er að verða laus við þessa
fíkn – já, ég kalla sykur fíkniefni,
það eina löglega í heiminum að
mínu mati, sem er sorglegt – þá
upplifði ég hversu geggjað þetta
frelsi er. Að geta gengið fram hjá
fólki í náttfötunum að moka sykri í
poka í Nammilandinu er til dæmis
pínu sigur því ég tók þátt í þeirri
vitleysu fyrir nokkrum árum,
segir María Krista sem sendi fitu-
púkann í sínu lífi í ævarandi útlegð
fyrir sex árum.
„Það setur mig fátt úr jafnvægi
núna. Blóðsykur helst jafn og mér
finnst ég hafa fulla stjórn á lífinu.
Ég hef fallið en staðið upp aftur
og er ekki að fara að snúa til baka.
Ef ég get haldið öðrum við efnið
með því að elda mat á Instagram
eða setja inn uppskriftir á bloggið
mitt, þá er ég hamingjusöm kona.
Svo er ekki verra að ég er farin að
vera í samstarfi með fyrirtækjum
og heildsölum og get því haft smá
áhrif á innkaup og úrval fyrir
okkur öll. Það er snilld,“ segir
María Krista sem tók meira að
segja þátt í þróun á ís sem er nú
seldur hjá Pizzunni og finnst gef-
andi að hafa lagt sitt af mörkum.
Sleppum sykrinum fyrst
Nýja árið leggst þrusuvel í Maríu
Kristu.
„Ég gæti ekki verið spenntari. Ég
er að endurheimta dóttur mína úr
danskri útlegð eftir sex ára nám og
í fjölskylduna bættist við tveggja
ára barnabarn sem kemur til
ömmu sinnar í febrúar. Mataræðið
sem ég fylgi er líka á toppnum um
þessar mundir og dásamlegt að sjá
hvað margir eru að vakna og taka
út sykur og rusl úr mataræði sínu.
Ég sé því bara fram á góða tíma;
spennandi hluti úti um allt og for-
réttindi að geta unnið við það sem
ég elska. MAT!“ segir María Krista
og hlær.
Hún kemur vel undan nýaf-
stöðnum hátíðum.
„Ég er kannski pínu þreytt eftir
jólatörnina í versluninni enda eru
jólin aðalsölutíminn hjá KristuDe-
sign og framleiðslan tekur sinn
toll. En skipulag, bæði á heimilinu
og í matargerð, gerir það að verk-
um að ég fer ekki út af sporinu. Það
er bara áskorun að snúa jólahefð-
unum í hollari útgáfur og ég fór létt
með það enda enginn sykurpúki
til staðar að rugla í mér,“ segir
María Krista kát.
Hún lumar á góðum heilræðum
í upphafi nýs árs þegar mörgum
blöskrar líkamsformið.
„Mitt besta ráð er að gleypa
ekki allan heiminn fyrstu þrjár
vikurnar í janúar heldur hugsa
þetta sem langhlaup og breyttan
lífsstíl til framtíðar. Það flaska
alltof margir á því að kaupa kort í
ræktinni, kasta nammidunknum
í ruslið og henda sér í ketólaugina
eða á nýjasta safakúrinn án þess
að undirbúa sig og gefast þá fljótt
upp. Ég mundi algjörlega byrja
á því að taka úr sykurinn, það
er númer eitt, tvö og þrjú. Borða
góðan mat á meðan til að fá orku
og alls ekki svelta sig! Bara sleppa
sykrinum.“
Leiðin liggi upp á við þegar við
náum tökum á sykurpúkanum og
áttum okkur á hvað þurfi að gera.
„Maður kaupir ekki bara
vikumatseðil, ýtir á „play“ og allt
verður í lagi á einni viku. Það þarf
að lesa sér til um það sem maður
ætlar að gera og ekki velja bara það
besta, eins og sumir sem bæta við
rjómasósum og beikoni en halda
áfram í sykrinum um helgar. Taktu
ákvörðun og stattu við hana, en
ekki fara of geyst. Stundaðu létta
líkamsrækt á meðan líkaminn
afeitrast, göngur og sund, og undir-
búðu þig andlega því líkaminn er
ekki að fara neitt eftir mánuð. Við
búum flest þarna inni næstu ára-
tugina. Vöndum okkur.“
Kollagen frábær heilsubót
María Krista aðhyllist lágkol-
vetnamataræði sem gjörbreytti lífi
hennar og heilsufari.
„Lágkolvetnamataræði gerir
okkur ótrúlega gott. Það gefur
að skilja að ruslmatur og sykur
flokkast ekki undir lágkolvetna-
mataræði svo það eitt að sleppa því
er nóg til að bæta heilsuna svo um
munar. Þá gerist ótrúlega margt í
líkamanum annað en fitutap og ég
hef fundið það best sjálf á síðustu
árum,“ segir María Krista sem á
árum áður kvaðst vera Íslands-
meistari í megrun.
„Ég hafði stokkið á alla þá kúra
og æði sem fundin hafa verið upp.
Ég léttist jú og bætti á mig aftur,
varð ægilega mjó en samt þreytt því
ég borðaði nammi bara á laugar-
dögum. Ég hef líka æft átta sinnum
í viku og leyft mér að borða eins
og svín í staðinn. Lágkolvetna-
mataræði kallar á miklu meira
jafnvægi og ró. Blóðsykurinn helst
jafn, skapið lagast, svefninn verður
frábær, liðverkir og bólgur hverfa
og heilinn vinnur betur, svo ég tali
nú ekki um orkuna sem maður
fær þegar sykurinn er settur ofan
í skúffu,“ segir María Krista sem
notar kollagen frá Feel Iceland með
góðum árangri.
„Kollagen hefur átt sinn þátt í
að bæta liðverki sem ég hef lengi
þjáðst af, sérstaklega í ökklum en
ég hef átt það til að missa fæturna
undan mér og átti auðvelt með
að togna. Ég hef ekki fundið fyrir
slíku síðan ég byrjaði að taka inn
Feel Iceland kollagenið og svo
er kollagen auðvitað bara gott
prótín sem er frábær viðbót við
fæðuna okkar,“ segir María Krista
og árangur af inntöku kollagens
kemur fljótt fram.
„Ég hef heyrt fólk finna mun eftir
notkun kollagen vegna hárloss á
þremur til fjórum vikum. Þeir sem
fylgja ketómataræði hafa sumir
upplifað hárlos og því mæli ég
sérstaklega með notkun kollagens
fyrir þá aðila. Ég fann mjög fljótt
mun á liðunum á mér og neglurnar
styrktust sem og þurrkublettir í
andliti sem hurfu mjög snemma.
Árangur af fráhvarfi sykurs og rusls
kemur hins vegar strax fram hjá
flestum, við losnum við mikinn
bjúg og vökva á fyrstu dögunum
og ég hef heyrt fleiri en mig tala
um að það sé eins og dregið sé frá
gluggatjöldum og við sjáum loksins
út. Doðinn hverfur og þungt skap
sömuleiðis, ég finn til dæmis aldrei
fyrir neinu skammdegisþung-
lyndi; ég kveiki bara á kerti og hef
það kósí í janúarrökkrinu og er
100 prósent viss um að þar hefur
mataræðið mikið að segja.“
Byrjar hvern dag á kollageni
María Krista tekur Feel Iceland
kollagen fram yfir erlent kollagen.
„Ég hef svosem enga vitneskju
fyrir því að erlent kollagen sé
verra en ég veit að það er oft búið
til úr nautgripum sem ræktuð
eru ytra og maður veit ósköp lítið
um upprunann og gæðin. Ég vel
Feel Iceland þar sem ég veit að um
íslenskan þorsk er að ræða þó svo
að hann sé fluttur utan til vinnslu.
Mér finnst bara betra að vita eins
mikið og ég get um hráefnið og
mér finnst skipta máli að notuð
sé hrein, íslensk náttúruafurð í
kollagenið, svo ég tali nú ekki um
nýtinguna á okkar auðlindum,“
segir María Krista sem notar
Feel Iceland kollagen daglega út í
Bulletproof-kakóbollann sinn.
„Ég hreinlega get ekki byrjað dag-
inn án þess. Kollagenið þykkir líka
drykkinn og gerir hann saðsamari,
enda 100 prósent hreint prótín. Ég
hef sleppt kollageni á ferðalögum til
útlanda og fann þá strax að liðirnir
urðu stífir og þreyttir,“ segir María
Krista.
Hún er stundum spurð hvers
vegna hún borði ekki harðfisk til að
fá sitt kollagen.
„Ég vel að taka kollagen inn sem
bætiefni þar sem ég borða ekki fisk.
Ég er víst með eitthvert heilkenni
sem kallast „fish odour syndrome“
og brýt ekki niður ensímin. Ef ég
borða fisk skilst mér að ég angi eins
og fiskur næsta dag, sem er ekki svo
huggulegt, ekki satt? Sonur minn
er í sömu sporum svo kollagen fyrir
mér er góð leið til að fá mitt fiski-
prótín. Það er formelt og því finn
ég ekki þessi áhrif af því,“ útskýrir
María Krista.
Inntaka á kollageni er rétt eins
og að taka inn D-vítamín vegna
sólarleysis.
„Eftir 25 ára aldur minnkar fram-
leiðsla kollagens í líkamanum. Því
þarf annað hvort að neyta töluvert
meira af fiski, drekka beinasoð eða
taka það hreinlega inn í formi bæti-
efnis ef þörf krefur. Það er svo val
hvers og eins, eins og að taka víta-
mínin sín,“ upplýsir María Krista
sem notar líka kollagen í matar-
gerð og bakstur. „Það er hægt að
setja kollagen í ótrúlegasta mat. Ég
bakaði til dæmis bolludagsbollur
úr kollageni og notaði MCT-olíu
í glassúrinn svo það eru senni-
lega hollustu bolludagsbollur sem
finnast. Ég hef líka notað kollagen í
kalda frappa, pönnukökur, kleinu-
hringi, chia-grauta og boost og það
hentar einmitt mjög vel í bakstur.“
Lífið er núna; ekki seinna
Undanfarin ár hefur María Krista
rekið verslunina Systur og maka í
félagi við Kötlu, systur sína.
„Verslunin verður áfram í Síðu-
múla 21 en ég ætla að draga mig úr
rekstrinum á sjálfri búðinni. Katla
systir og merkið hennar Volcano
Design verður meira áberandi og
svo munu einhverjar vörur frá mér
haldast inni en ég stefni á að nota
vefverslun meira og sinna matar-
stússinu, námskeiðum og ömmu-
barninu betur,“ upplýsir María
Krista.
Hún segir Kamillu hjá kakó.is
hafa komið með góða útskýringu
mála.
„Kamilla taldi að ég væri með
alltof marga krana í gangi í einu
og að ef ég vildi ekki skrúfa fyrir
einhverja þeirra yrði flæðið lélegt
í öllum og það er staðreynd. Ég vil
frekar taka að mér færri verkefni og
gera þau vel en að segja já við öllu
og rétt ná að sinna þeim 50 prósent.
KristaDesign.is verður að vef-
verslun og ég mun áfram vera með
besta úrvalið af gjafavöru þar inni.
Lífið er núna. Ekki seinna.“
Í nýju vefversluninni býður
María Krista uppskriftaspjöld
til kaups sem og möppur undir
spjöldin og í vor bætast við Kristu-
Design-vörurnar.
„Ég held líka áfram með nám-
skeiðið Lífsstíll til framtíðar sem
ég setti á laggirnar í fyrra og hlaut
frábærar viðtökur. Nú er ég búin að
fylla öll námskeið í janúar og þetta
er í raun kynning á mataræðinu
LKL og ketó, hver ávinningur þess
er að taka út sykur og drasl og svo
fer ég yfir hráefni, uppskriftir,
gef fólki að smakka lágkolvetna-
bakstur og mat og svara öllum
þeim spurningum sem brenna á
þeim sem eru að taka fyrstu sporin
í átt að bættri heilsu. Mér finnst
hrikalega gaman að hitta hresst
fólk og þetta endar yfirleitt eins og
saumaklúbbur, kjams yfir matnum
mínum og ánægjustunur sem
gleðja mig óskaplega mikið,“ segir
ástríðukokkurinn María Krista
sem veit upp á hár hvað ætti alltaf
að vera til í eldhúsinu til að seðja
svanga maga með girnilegum og
hollum krásum.
„Það er smjör og aftur smjör,
hnetur, möndlur, og góð sætuefni ef
maður vill sætindi. Ég á alltaf rifinn
ost, skinku og möndlumjöl ef ég vil
útbúa mér sveitta vöfflusamloku.“
Þegar kemur að uppáhalds-
sætindum til að seðja sykurlöngun-
ina svara María Krista:
„Ég elska að gera kókoskúlur sem
eru hálfgerðar fitubombur og á til
í frysti. Pekanpæ er í uppáhaldi og
allt sem inniheldur sítrónur. Ann-
ars er ég alltaf að gera eitthvað nýtt
og kannski á ég eftir að finna mitt
uppáhaldsnammi,“ segir María
Krista og gefur hér uppskriftir
af Bulletproof-kakóinu góða og
dásamlegum chia-búðingi, og
hvort tveggja inniheldur kollagen.
Fylgstu með á mariakrista.com.
Chia-búðingur, grunnur
fyrir fjóra skammta:
40g Sukrin Melis
500 ml ósæt möndlumjólk
70g chia fræ
1 msk. kakóduft frá Nóa Síríus
4 mæliskeiðar Feel Iceland
kollagen
Blandið öllu í skál og pískið
vel í nokkrar mínútur. Geymið
blönduna í ísskáp í lokuðu íláti í
sólarhring. Hrærið upp í grautnum
daginn eftir og deilið í skálar.
Æðislegt borið fram með rist-
uðum kókosflögum, rjómaslettu
og jarðarberjum. Léttur og góður
morgunmatur, í hádegi og eftir
matinn.
Bulletproof kakó með
Feel Iceland kollageni
1 risastór kaffibolli
2 mæliskeiðar kollagen frá Feel
Iceland.
1 msk. Mct-olía frá Now
1 msk. saltlaust smjör eða Ghee
3-4 dropar Now stevía með
french vanilla
1 msk. heilagt kakó frá kako.is
Setjið í blandara, þeytið og njótið.
Feel Iceland fæst meðal annars í
Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyf og heilsu,
Fjarðarkaup, Apótekaranum, Frí-
höfninni og Jurtaapótekinu.
Chia-búðingur með kollageni er
ljúffengur hvenær dagsins sem er.
María Krista drekkur Feel Iceland
kollagen í Bulletproof-kakóbolla.
María Krista notar Feel Iceland kollagen í bakstur, drykki og matargerð með gómsætum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . JA N ÚA R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R