Fréttablaðið - 14.01.2020, Side 17

Fréttablaðið - 14.01.2020, Side 17
Steinþóra segir að sem barn og unglingur hafi hún ekki hreyft sig skipulega eða verið að að taka þátt í íþróttum. „Þegar ég varð eldri keypti ég mér einstaka árskort sem lágu ónotuð ofan í skúffu. Ég var að kljást við verki í baki í mörg ár og fleiri kvilla vegna hreyfingarskorts,“ segir hún. „Maðurinn minn var alltaf í formi og reyndi að draga mig með í gönguferðir og fjallgöngur sem sjaldan tókst. Hann var duglegur að hlaupa og reyndi á hverju ári að draga mig með í Reykjavíkurmara- þon, sem gekk bara alls ekki.“ Árið 2012 tók Steinþóra þá ákvörðun, of þung að eigin mati, og verkjuð að taka þátt í átta vikna æfingaplani sem nefnist „upp úr sófanum og í 5 km“ sem hún fékk óvænt upp í hendurnar. „Ég og vinkona mín byrjuðum að ganga og hlaupa milli ljósastaura. Sam- kvæmt þessu plani átti að minnka gönguna og lengja hlaupin. Þegar komið var í viku 4 var þetta svo erfitt að við endurtókum hverja viku mörgum sinnum. Þannig gekk þetta í átta mánuði í stað 8 vikna, en hafðist að lokum en því miður þurfti vinkonan að hætta vegna bílslyss og nú voru góð ráð dýr. Ég skráði mig því í hlaupahóp í hverfinu. Það hafði svona dásam- lega hvetjandi áhrif að síðan þá hef ég hlaupið þrjú maraþon, nokkuð mörg hálfmaraþon, eitt ultramara- þon og stefni á annað. Hlaupafélagar eru svo hvetjandi að ég er núna að hlaupa með Hlaupahópi Breiðabliks tvisvar til þrisvar í viku en þar að auki er ég að hjóla með hjólreiðadeild Breiðabliks og ég mæti í styrkt- aræfingar hjá frábærum þjálfara í Sporthúsinu tvisvar í viku. Ég er 47 ára og öll þessi hreyfing er að sjálfsögðu að segja aðeins til sín, ég finn alveg fyrir því að liðirnir eru ekki 20 ára,“ segir hún. „Liðaktín Forte frá Gula Mið- anum er ný og kraftmikil blanda virkra efna sem vinna að bættri liðheilsu og hámarks árangri. Þessi blanda inni- heldur glúkósamín, kondrótín, MSM, túrmerik og C-víta- mín en saman eru þessi efni öflug hjálp fyrir þá sem þjást af liðverkjum og brjóskeyðingu. Glúkósamín, kondrótín og MSM eru einstaklega gott teymi þegar kemur að verkja- stillingu, viðhaldi og uppbyggingu á brjóski og vefjum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að blanda glúkósamíns, kondrótíns og MSM dregur úr óþægindum og verkjum, dregur úr bólgu og auki hreyfigetu. Eins virðist blandan mögu- lega draga úr frekara niður- broti á brjóski í liðum. Túrmerik er andoxandi og hafa rannsóknir sýnt að það virðist geta dregið úr bólgum í líkamanum. C-vítamín er andox- unarefni sem eykur bæði myndun kollagens og virðast beinbrot gróa hraðar við inntöku þess,“ upp- lýsir hún og bætir við. „Fulla ferð áfram í leik og starfi með Gula miðanum.“ Ráðlögð inntaka: 3 töflur á dag, með mat. Töflustærðin er þægileg til inntöku. Búast má við merkjan- legum árangri eftir 1-3 mánuði. Betri liðheilsa og hámarks árangur Steinþóra Þórisdóttir hlaupari hefur prófað Liðaktín með góðum árangri en Liðaktín Forte er kraftmikil blanda virkra efna sem vinna að bættri liðheilsu og dregur úr bólgum og verkjum. Steinþóra Þórisdóttir hefur fundið fyrir lið- verkjum vegna mikillar hreyf- ingar.FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Mælingar á útvíkkun á sjá-öldrum fólks getur gefið til kynna hvort það heyri eða ekki. Hefðbundin heyrnar- próf krefjast þess að manneskjan sem prófuð er lyfti upp hönd eða ýti á takka þegar hún heyrir hljóð. Út frá því geta sérfræðingar skorið úr um hversu vel hún heyrir ákveðna tíðni. Það gefur augaleið að slík próf henta ekki fólki sem ekki getur gefið til kynna með einhverju merki að það heyri hljóðin. Eins og til dæmis ungabörn eða fólk sem hlotið hefur einhvers konar heilaskaða. Hópur sérfræðinga við taugavísindadeild háskólans í Oregon hafa fundið upp aðferð til að mæla heyrn þessara einstakl- inga. Sérfræðingarnir höfðu tekið eftir því að sjáöldrin á uglum víkka þegar þær greina hljóð. Þeir gáfu sér það því í þessari nýju rannsókn að það sama ætti við um mannfólk. Sérstök tækni var notuð til að skoða augasteina rúmlega 30 fullorðinna mann- eskja sem voru að meðaltali 24 ára gamlar og ekki með heyrnar- skerðingu. Notast var við innrauða mynda- vél til að fylgjast með augastein- um þátttakenda á meðan þeir tóku heyrnarpróf. Þátttakend- urnir áttu að ýta á hnapp ef þeir heyrðu hljóð og áttu á sama tíma að horfa á tölvuskjá. Punktur birtist á skjánum og honum fylgdi svo hljóð eftir mislangan tíma. Þátttakendurnir gátu því ekki giskað á hvenær hljóðið myndi heyrast. Þegar punkturinn breytt- ist í spurningarmerki áttu þátt- takendur að láta vita hvort þeir hefðu heyrt hljóðin eða ekki. Rannsakendur fylgdust með augasteinum þátttakenda í að minnsta kosti eina sekúndu fyrir hljóðið og tvær sekúndur eftir hljóðið. Þeir útilokuðu stækkun á augasteinum sem gæti verið af leiðing af heilastarfseminni sem fer í það að þurfa að ýta á takka eftir skipun. Niðurstaðan varð sú að útvíkkun á augasteinum þátt- takenda hófst eftir um fjórðung af sekúndu eftir að hljóðið heyrðist. Útvíkkunin var jafn áreiðanlegt merki um að þátttakendur hefðu heyrt hljóð og það þegar þeir ýttu á takka. Hægt er að mæla heyrnina með því að horfa á augun Ný rannsókn leiðir í ljós nýstárlega aðferð við að mæla heyrn fólks sem ekki getur nýtt sér hefðbundin heyrnarpróf. Prófið mælir útvíkkun á sjáöldrum. Liðaktin Forte frá Gula miðanum. Liðaktín Forte fæst í f lestum apótekum, heilsuvöruverslunum og heilsuhillum matvöru- verslana. Rannsóknirnar sýna nýja mögulega leið til að mæla heyrn ungbarna og ann- arra sem ekki geta tekið hefðbundin heyrnarpróf. NORDICPHOTOS/GETTY Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á miðvikudögum Vettvangur viðskiptafrétta FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 4 . JA N ÚA R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.