Fréttablaðið - 31.01.2020, Blaðsíða 8
Um er að ræða annars vegar einstaklings
framboð vegna sjö sæta í aðalstjórn til
tveggja ára, tveggja sæta í aðalstjórn til
eins árs og þriggja sæta varamanna til eins
árs. Skrifleg meðmæli 15 félagsmanna VR
þarf vegna einstaklingsframboðs
til stjórnar.
Hins vegar er um að ræða listaframboð
fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi
vegna trúnaðarráðs sem borinn er fram
gegn lista Uppstillinganefndar sé löglega
fram borinn þarf skrifleg meðmæli 360
félagsmanna sem og skriflegt samþykki
frambjóðenda á listanum.
Frambjóðendum er bent á www.vr.is,
þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegri upplýsingar birtar
um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs.
Kjörstjórn VR veitir einnig frekari
upplýsingar í síma 510 1700 eða með
tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
Framboðum og framboðslistum skal
skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR,
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
31. janúar 2020
Kjörstjórn VR
VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is
Vilt þú
starfa í
forystu VR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn
VR eftir einstaklingsframboðum í stjórn
félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Framboðsfrestur er til kl. 12.00 á hádegi,
mánudaginn 10. febrúar 2020.
Læknir í Víetnam hlúir að konu sem greindist með veiruna þar í landi.
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi smitaðra af
kórónaveirunni, sem á uppruna í
Whuhan- borg í Kína, er nú að verða
sá sami og fjöldi þeirra sem smituð-
ust af HABL-veirunni í byrjun aldar-
innar. Alls er búið að staðfesta tæp-
lega átta þúsund smit og 170 manns
hafa látist af völdum veirunnar.
Áhrifa veirunnar gætir víða um
heim en í gær var rúmlega sjö þús-
und farþegum skemmtiferðaskips
meinað að fara frá borði á Ítalíu
meðan gengið var úr skugga um að
tveir farþegar væru ekki smitaðir.
Rússland hefur lokað landamærum
sínum við Kína og nokkur flugfélög
hafa fellt niður flug til Kína.
Í Kína er búið að loka á samgöngur
milli nokkurra borga og hefur verið
hætt við ýmsar fjöldasamkomur, þá
er búið að blása af alla knattspyrnu-
leiki í landinu.
Flest smit eru í Kína en þau hafa
einnig komið upp í Taívan, Taílandi,
Ástralíu, Malasíu, Singapúr, Frakk-
landi, Japan, Suður-Kóreu, Banda-
ríkjunum, Víetnam, Kanada, Nepal,
Filippseyjum, Srí-Lanka, Kamb-
ódíu, Indlandi, Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, Þýskalandi og
Finnlandi.
Enginn hefur greinst með veiruna
hér á landi en Heilsugæslan biður þá
sem telja sig hafa einkenni hennar að
leita ekki beint á heilsugæslu heldur
hringja og leita ráðlegginga. Það er
gert til að draga úr smithættu.
Á vef Heilsugæslunnar er greint frá
því að helstu einkenni kórónaveir-
unnar séu hiti, hósti, beinverkir og
öndunarerfiðleikar og að einkenn-
unum geti svipað til inflúensuein-
kenna. Þá er fólki ráðlagt að huga
vel að handþvotti og spritta hendur
sínar.
Staðfest hefur verið að veiran
smitast milli manna og að einstakl-
ingar geti verið sýktir af veirunni í
allt að tvær vikur án þess að finna
fyrir einkennum. Á þessu tíma-
bili geti smit þó borist á milli fólks.
Aðal smitleið kórónaveirunnar
er snerti smit en smit getur einnig
borist manna á milli með hósta eða
hnerra en þó aðeins í mikilli nálægð
við smitaðan einstakling, innan
tveggja metra.
Sóttvarnalæknir segir handþvott
og notkun á spritti helstu leiðina
til verndunar gegn smiti. „Hugsan-
lega notkun á hönskum sem vernda,
grímur kannski í einstaka tilfellum
en það er ekki stóri þátturinn í
þessu.“
arib@frettabladid.is
birnadrofn@frettabladid.is
Áhrifa kórónaveirunnar gætir víða
Tæplega átta þúsund manns hafa smitast af kórónaveirunni og 170 hafa látist. Veiran hefur borist til fjölmargra landa og áhrifin eru
margvísleg. Ekkert tilfelli hefur greinst hér á landi og hefur fólk verið hvatt til að huga vel að handþvotti og að spritta hendur sínar.
Hafist var handa við byggingu nýs sjúkrahúss í Wuhan í síðustu viku.
Áætlað er að sjúkrahúsið verði tilbúið 3. febrúar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Aðalsmitleið kóróna
veirunnar er snertismit.
Fólk er hvatt til að huga vel
að handþvotti og spritta
hendur sínar.
3 1 . J A N Ú A R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð