Fréttablaðið - 31.01.2020, Qupperneq 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga
Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Regína Ósk viðurkennir að það hafi verið svolítið áfall að detta svona snemma úr
keppni. „Ég var ekki tilbúin til þess
og hefði viljað halda áfram,“ segir
hún. „Það var mikil áskorun fyrir
mig að taka þátt í þessari keppni,
aðeins að fara út úr þægindaramm-
anum og gera eitthvað nýtt. Þegar
mér var boðið að vera með var ég í
ákveðinni lægð þannig að það kom
á hárréttum tíma. Mig langaði til
að gera eitthvað sem ég hafði ekki
gert áður. Þar fyrir utan vissi ég að
þetta myndi gera líkama mínum
gott. Ég var einmitt á þessum tíma-
punkti að byrja að taka heilsuna
í gegn og vissi að dansinn myndi
hafa góð áhrif. Þetta var lærdóms-
rík upplifun og auðgaði líf mitt.
Ég hef aldrei fengið önnur eins
viðbrögð frá ókunnugu fólki eftir
að við duttum út. Sumir komu til
okkar Max og lýstu yfir reiði og og
ósanngirni yfir þessum úrslitum.“
Regína vissi ekki í upphafi hver
yrði dansherrann en var að vonum
ánægð þegar það kom í ljós. Hún
kannaðist við Max þar sem hann
hafði dansað í sýningum sem
hún tók þátt í, til dæmis Freddie
Mercury sýningu og á Fiskideg-
inum á Dalvík. „Mér leist vel á Max
enda góður kennari og yndislegur
maður. Við hittumst fyrst í septem-
ber en hann byrjaði á því að kenna
mér grunnatriði. Dansinn varð
strax hluti af lífi mínu og ég fann að
það var einmitt hann sem vantaði
í líf mitt. Það var þess vegna
nett áfall að detta svona fljótt úr
keppni,“ segir hún.
17 kíló farin síðasta árið
Regína segist aldrei áður hafa lært
samkvæmisdansa þótt hún hafi
farið á alls kyns dansnámskeið,
eins og Bollywood, magadans og
þess háttar. „Mér fannst geggjað
frá a-ö að læra samkvæmisdansa.
Það tekur auðvitað tíma að læra
dans, hann krefst mikillar ein-
beitingar og þjálfunar. Ég gleymdi
mér alveg í honum, þetta var svo
skemmtilegt. Dansinn var góður
skóli. Ég tók hann alla leið, fór í
ræktina meðfram enda fann ég
fljótt mun á liðleika og styrk auk
þess sem kílóin hrundu. Ég var í
þjálfun hjá Yesmine Olsson og ætla
sko ekki að hætta hjá henni,“ segir
Regína sem hefur misst 17 kíló á
undanförnum mánuðum. „Maður
verður heltekinn af þessu enda
ákvað ég frá byrjun að taka mig í
gegn fyrir sjálfa mig. Nú hreyfi ég
mig á hverjum degi. Hreyfingin og
breyttur lífsstíll gerir manni gott
andlega og líkamlega.“
Alltaf umkringd börnum
Regína á þrjú börn á aldrinum 5, 10
og 17 ára en hún er gift Sigursveini
Þór Árnasyni tónlistarmanni.
„Börnin eru á ólíkum aldri með
ólíkar þarfir og það er aldrei logn-
molla í kringum mig,“ segir hún.
Regína er reyndar alltaf í kringum
börn þar sem hún kennir þeim
að syngja í Söngskóla Maríu. Þar
hefur hún kennt í sautján ár jafnt
börnum sem fullorðnum og finnst
einstaklega skemmtilegt. Margar
frábærar söngkonur hafa stigið sín
fyrstu skref í skólanum og má þar
nefna Jóhönnu Guðrúnu, Ragn-
heiði Gröndal og fleiri. „Mæður
barna sem koma í skólann hafa oft
verið þar sjálfar svo þetta gengur
kynslóð eftir kynslóð.“
Regína er ekki bara með börnum
í söngskólanum því hún sér um
sunnudagaskóla í Lindakirkju í
Kópavogi og hefur einstaklega
gaman af því starfi. „Ég hef starfað
í kirkjunni í tvö ár bæði með
sunnudagaskólann og foreldra-
morgna. Auk þess syng ég mikið í
kirkjunni, var töluvert í messum
um jólin,“ segir hún. Þegar hún
er spurð hvort hún ætli kannski í
guðfræði, svarar hún: „Sú hug-
mynd hefur alveg komið upp hjá
mér svo ég segi bara hver veit? Mér
finnst ótrúlega gaman að vinna í
kirkjunni, þar er frábært starfs-
fólk,“ segir Regína og telur það
ekkert eftir sér að mæta snemma
á sunnudagsmorgnum í kirkjuna,
jafnvel þótt hún hafi sungið lengi
kvöldinu áður. „Ég er A-manneskja
og vakna alltaf snemma.“
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Regína Ósk sér um sunnudagaskóla og foreldramorgna í Lindakirkju í Kópa-
vogi. Hún þvertekur ekki fyrir að hana langi í guðfræði enda finnst henni
kirkjustarfið skemmtilegt og vera með börnum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Max og Regína
voru glæsilegt
par á dans-
gólfinu. Þau
verða ekki með
í úrslitunum í
kvöld.
Einstök tilþrif á dansgólfinu. Regína Ósk ætlar að stofna danshóp nokkurra
para og halda áfram að dansa samkvæmisdansa, Max ætlar að hjálpa til.
Dansinn var tekinn alla leið þó ekki kæmi hann þeim í úrslit.
Framhald af forsíðu ➛
Stofnar dansklúbb
Regína segist ekki vera mikið fyrir
matseld. Eiginmaðurinn sér frekar
um þá hlið á heimilinu. „Mér
finnst skemmtilegra að stússast
í f lestu öðru,“ viðurkennir hún.
„Eiginmaðurinn er sem betur fer
góður kokkur. Ég fer í búðina og
hann eldar,“ segir Regína Ósk en
eiginmaðurinn verður brátt rifinn
út á dansgólfið þar sem hún hefur
sett saman hóp para sem ætla í
danstíma. „Ég vil ekki hætta að
dansa. Hef verið vængbrotin eftir
að ég hætti í þáttunum þannig að
ég varð bara að taka málin í mínar
eigin hendur. Auður Haralds dans-
kennari ætlar að vera okkur innan
handar og Max kemur örugg-
lega eitthvað líka. Þetta verður
skemmtilegt.“
Nýtt lag í febrúar
Það er líka alltaf nóg að gera í
söngnum hjá Regínu Ósk. Hún er
að gefa út nýtt lag í febrúar með
eigin texta. „Ég er að leggja loka-
hönd á lagið en þetta er fyrsta
lagið mitt á plötu í þó nokkurn
tíma. Stefnan er að taka upp aðeins
meira. Ég var dugleg við þetta fyrir
nokkrum árum en hef slegið slöku
við,“ segir hún en Regína hefur
gefið út fimm sólóplötur: „Regína
Ósk“ árið 2005, „Í djúpum dal“ árið
2006, „Ef væri ég …“ árið 2007, „Reg-
ína Ósk um gleðileg jól“ árið 2010
auk plötu með Eurobandinu, „This
is my life“ árið 2008 og barnaplötu
árið 2014, „Leiddu mig litla hendi“.
Auk þess hefur hún sungið inn á
tugi platna með öðrum. Regína
Ósk hefur farið fjórum sinnum í
Eurovision, þrisvar sem bakrödd
og einu sinni með Friðriki Ómari
og Eurobandinu. Hún segist ekki
hafa haft áhuga á að senda lag inn
í keppnina að þessu sinni. „Það
verður að koma eitthvað alveg sér-
stakt lag upp í hendurnar á mér ef
ég fer aftur,“ segir hún.
Regína kemur víða við í söngn-
um, syngur við alls konar tilefni,
þorrablót, árshátíðir, brúðkaup,
afmæli, jarðarfarir og hvað eina.
Auk þess sem hún hefur komið
fram á fjölmörgum sýningum sem
Rigg setur upp víða um landið. Þá
mun hún fagna fimmtugsafmæli
skærustu poppstjörnu landsins,
Páls Óskars, á tónleikum hans í
Háskólabíói 13. og 14. mars næst-
komandi.
Ég er að leggja
lokahönd á lagið
en þetta er fyrsta lagið
mitt á plötu í þó nokk-
urn tíma. Stefnan er að
taka upp aðeins meira.
Ég var dugleg við þetta
fyrir nokkrum árum en
hef slegið slöku við.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R