Fréttablaðið - 31.01.2020, Side 22
er talsverður áhugi á að nýta vind-
orku hér á landi nú þegar kostn-
aður þeirrar tækni hefur lækkað,“
segir Ketill. „Fyrir um áratug reisti
Landsvirkjun líka tvær vindmyllur
fyrir ofan Búrfell og reynslan af
rekstri þeirra hefur til þessa verið
góð.“
Ketill segir sérstöðu Zephyr vera
margvíslega. Fyrirtækið vilji f lýta
sér hægt og leggi mikla áherslu
á sem breiðasta sátt um hvert
verkefni. „Zephyr samanstendur af
mjög þéttu teymi fólks með góða
þekkingu og reynslu af vindorku
og það mun efalítið reynast upp-
byggingu Zephyr Iceland vel,“ segir
Ketill. „Reynslan af verkefnum
Zephyr í Noregi sýnir að þar hefur
tekist vel til í samskiptum bæði við
landeigendur og nágranna verk-
efnanna. Enda er algjört grund-
vallaratriði að fólkið sem býr í
nágrenni verkefnanna sé sátt við
framkvæmdirnar og að þær skili
nærsamfélaginu sem mestu.“
Sérlega hagkvæmt á Íslandi
„Nú erum við að byrja að setja upp
fyrsta vindmælingamastrið og
mögulega verður svo annað sett
upp næsta sumar eða í haust,“ segir
Ketill. „Svo er fjórði áfangi ramma-
áætlunar að fara af stað núna, sem
þýðir að það er hægt að byrja verk-
efni innan hennar. Og vindorka
er hagkvæm og endurnýjanleg
orka sem er sérlega áhugaverð
fyrir Ísland. Það getur nefnilega
verið hagkvæmt fyrir kerfi sem
byggir að stórum hluta á vatnsafli
með miðlun, líkt og Ísland gerir,
að bæta vindmyllum við kerfið.
Með slíku samspili vatnsafls og
vindafls er mögulegt að fá betri
nýtingu úr kerfinu og auka tekjur
af núverandi vatnsaflskerfi,“ segir
Ketill.
„Íslenska raforkukerfið er heldur
ekki stórt og því sérlega mikilvægt
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning í virkjun vindsins í mörgum
löndum og meðal annars í Noregi,
enda hefur hagkvæmni vindorku
aukist mikið á síðustu árum. Nú er
vindorka orðin svo hagkvæm að
hún er á mörgum svæðum orðin
ódýrasta tegund nýrrar raforku-
framleiðslu. Hér á Íslandi eru
vindaðstæður víða með því sem
best gerist í heiminum og vindorka
því vafalítið samkeppnishæf á
íslenskum raforkumarkaði. Það er
því tímabært að vindurinn verði
virkjaður hér á landi.
„Vindorkufyrirtækið Zephyr
Iceland var stofnað síðla árs 2018
og á næstu misserum og árum
hyggst fyrirtækið ráðast í umtals-
verðar rannsóknir á íslenskum
vindi með það að markmiði að
reisa vindmyllugarð eða vind-
myllugarða á Íslandi,“ segir Ketill
Sigurjónsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins.
Zephyr er brautryðjandi í
nýtingu vindorku í Noregi
Zephyr Iceland er í meirihlutaeigu
næststærsta vindorkufyrirtækis-
ins í Noregi, sem heitir Zephyr.
Einungis ríkisfyrirtækið Statkraft
er umsvifameira í vindorkunni
í Noregi. Zephyr er í eigu þriggja
norskra vatnsaflsfyrirtækja, sem
öll eru í eigu norskra sveitarfélaga
og fylkja og er Zephyr því 100% í
opinberri eigu.
„Zephyr hefur verið brautryðj-
andi í nýtingu á norskri vindorku
og er eitt reynslumesta vindorku-
fyrirtækið þar í landi,“ segir Ketill.
„Vindmyllugarðar Zephyr í Noregi
eru nú alls um 600 MW og brátt
bætast um 200 MW við á fjalllend-
inu upp af vesturströnd landsins.
Til samanburðar má nefna að allt
uppsett rafafl HS Orku er um eða
innan við 200 MW og hjá Orku-
veitu Reykjavíkur er aflið um 450
MW.“
Tvö stærstu vindorkuverkefni
Zephyr til þessa eru bygging 160
MW vindmyllugarðs við Tellenes
og nú er verið að byggja annan á
Guleslettene sem verður um 200
MW,“ segir Ketill. „Google kaupir
alla raforkuna frá Tellenes næstu 12
árin og öll raforkan frá Gule-slet-
tene hefur verið seld til Alcoa með
langtímasamningi. Zephyr hefur
öðlast gríðarlega reynslu af öllu því
sem viðkemur vindorku og undir-
búningi, fjármögnun, byggingu og
rekstri vindmyllugarða.“
Sérfræðingar í undirbúningi,
fjármögnun og rekstri
Að sögn Ketils er það ekki skilyrði
í rekstri Zephyr að fyrirtækið eigi
vindmyllugarðana sem fyrir-
tækið reisir. „Í dag eru það einkum
elstu verkefnin sem Zephyr hefur
eignarhald á. Sökum þess hversu
þau gengu vel vakti Zephyr athygli
bandaríska fjárfestingasjóðsins
Black Rock, sem er einn stærsti
fjárfestingasjóður í heimi, með
um sex þúsund milljarða Banda-
ríkjadollara í eignastýringu,“
segir Ketill. „Zephyr hefur nú selt
tvo nýjustu vindmyllugarðana
til Black Rock, sem hefur gert
langtímasamning við Zephyr um
rekstur þeirra. Hvaða viðskipta-
módel hentar Íslandi best á eftir
að koma í ljós, en það gæti til að
mynda verið áhugavert að þróa og
byggja vindmyllugarð fyrir eitt-
hvert af rótgrónu íslensku raforku-
fyrirtækjunum.“
Ábyrgt og áreiðanlegt
„Opinbera eignarhaldið á Zephyr
er vafalítið einn þáttur í því hversu
mjög fyrirtækið hefur varfærni að
leiðarljósi og leitast við að forðast
áhættu. Þá er mikil áhersla lögð
á samfélagslegt gildi verkefna
og gott samstarf við heimafólk,“
útskýrir Ketill.
„Það eru eðlilega fleiri fyrirtæki
að skoða vindorku á Íslandi og
hafa byrjað vindmælingar, enda
Tellenes-vindmyllugarðurinn er nálægt vesturstönd Noregs, í nágrenni
Stavanger. Google kaupir alla raforkuna sem er framleidd þar.
Þessa mynd tók Ketill í Tellenes-vindmyllugarðinum í skammdeginu í desember síðastliðnum.
Nánast allt vatns-
afl með miðlun á
Íslandi er í eigu Lands-
virkjunar svo það fyrir-
tæki ræður mjög miklu
um það hvort eða hversu
mikil vindorka verður
nýtt hér á land.
Verkefni Zephyr í Noregi
n Mehuken-vindmyllugarður-
inn 25 MW (2010 og stækkun
2015).
n Midtfjellet-vindmyllugarður-
inn 110 MW (2013).
n Tellenes-vindmyllugarðurinn
160 MW (2017).
n Kvitfjell og Raudfjell-vind-
myllugarðurinn 280 MW (Ze-
phyr rekstraraðili síðan 2019).
n Guleslettene vindmyllugarð-
urinn 200 MW (rís sumarið
2020).
að forðast að byggja of stórar virkj-
anir sem gætu skapað offramboð.
Þess vegna er lítil fjárhagsleg skyn-
semi í því að byggja til að mynda
stórar vatnsaflsvirkjanir, því það
er svo mikil viðbót í einu,“ segir
Ketill. „En vindorka er þess eðlis
að þar er hægt að bæta við afar
hógværu afli í áföngum á sama eða
á sitt hvoru svæðinu. Þannig er til
dæmis hægt að stefna að 150 MW
en byrja bara með 30 MW og svo
er hægt að bæta við eftir þörfum í
nokkrum áföngum. Þannig er unnt
að skapa hógværan vöxt í fram-
boði, samhliða hógværum vexti í
eftirspurn eftir rafmagni.“
Skýra þarf regluverkið
„Vindmyllugarðar eru annars eðlis
en vatnsaflsvirkjun með miðlunar-
lón þar sem miðlunin er notuð til
að tryggja stöðuga og jafna fram-
leiðslu. Vindmyllugarðar eru eðli-
lega háðir því að vindar blási,“ segir
Ketill. „Til að tryggja megi stöðugt
framboð frá vindorkufyrirtæki
þarf traustan aðgang að jöfnunar-
afli eða varaafli. Það er vara sem til
að mynda gengur kaupum og sölu
á opnum og skilvirkum raforku-
markaði í Skandinavíu, en hér á
landi erum við á ókortlögðu landi
hvað þetta varðar. Við vitum sem
sagt ekki hver kostnaðurinn af
þessu afli verður, en það skiptir
miklu fyrir vindorkuframleiðslu.
Nánast allt vatnsafl með miðlun
á Íslandi er í eigu Landsvirkjunar
svo það fyrirtæki ræður mjög
miklu um það hvort eða hversu
mikil vindorka verður nýtt hér
á landi. Það þarf að verða skýrar
hvernig viðskiptum með slíkt afl
verður háttað hér á landi. Og það
mun örugglega brátt skýrast, enda
hagkvæmt bæði fyrir vindorku-
framleiðendur og vatnsaflsfyrir-
tækið,“ segir Ketill.
Það er líka ennþá óvissa um
hvort eða með hvaða hætti vind-
orka fari undir rammaáætlun. En
það er verið að skoða þau mál af
hálfu stjórnvalda og þetta mun
eflaust skýrast f ljótlega,“ segir
Ketill. „Regluverkið þarf einfald-
lega að vera skýrt. Það er líka
mögulegt að það séu einhver atriði
sem sveitarfélög vilja fá skýrari
leiðbeiningar um frá stjórnvöld-
um, til dæmis hver fjarlægðin á að
vera frá byggð. En það þarf ekki
að vera neitt f lókið að skýra allan
þennan lagaramma, það þarf bara
að ganga í það.“
Mikilvægar mælingar
„Vindmælingamastrið sem við
erum að setja upp á Mosfellsheiði
er nauðsynlegur þáttur í undir-
búningi svona verkefna,“ segir Ket-
ill. „Við erum með nokkuð góðar
upplýsingar um vindaðstæður
þarna, sem og á öðrum stöðum
sem við erum að skoða. En rétt eins
og þekkja þarf rennsli vatnsfalls og
breytingar á því við undirbúning
vatnsaflsvirkjunar, þarf að mæla
vindinn af nákvæmni í að minnsta
kosti heilt ár til að fá nákvæmar
upplýsingar um orkuna.
Svona mælingamöstur eru
nokkuð há eða um 80 metrar. Enda
þarf að mæla vindinn í svipaðri
hæð eins og þeirri sem spaðarnir
væru að snúast í. Það eru líklega
mjög fá ef þá nokkur dæmi um
að vindur hafi verið mældur í svo
mikilli hæð á Íslandi fyrr en nú
á allra síðustu misserum,“ segir
Ketill. „Þetta eru sérhæfð mæli-
tæki sem mæla vindstyrk, stefnu,
úrkomu, hitastig og margt fleira.
Það er norskt fyrirtæki með mikla
reynslu af svona mælingum, sem
sér um mælingarnar fyrir okkur.“
Vindmyllugarður á Íslandi
innan nokkurra ára
„Raforkan sem fæst úr vindorku
er ýmist seld beint til tiltekinna
notenda eða til milliliða sem selja
rafmagnið áfram, til dæmis til
raforkufyrirtækja sem sjá þannig
tækifæri til að auka markaðshlut-
deild sína,“ segir Ketill. „Við von-
umst til að geta boðið Íslendingum
og íslenskum fyrirtækjum raforku
frá íslenskum vindi á hagstæðu
verði innan nokkurra ára.
Ef allt gengur að óskum gætu
vindmyllugarðar verið komnir í
starfsemi eftir um það bil fimm
ár. Um leið er mikilvægt að hafa í
huga að orkuverkefni geta reynst
mjög tímafrek í undirbúningi og
ýmis lagaleg óvissuatriði geta tafið
þau. Vindmyllugarðar hafa aftur á
móti þá sérstöðu að þegar öll leyfi
eru í höfn er unnt að reisa vind-
myllurnar á skömmum tíma. Og
það er full ástæða til bjartsýni um
að verkefnin gangi vel,“ segir Ketill
Sigurjónsson.
2 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RORKA ÍSLANDS