Fréttablaðið - 31.01.2020, Page 26

Fréttablaðið - 31.01.2020, Page 26
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða | Gagnheiði 35 | 800 Selfossi Sími 480 8500 / 860 2054 | raekto@raekto.is | raekto.is Jarðborar á ferðinni Vantar vatn eða varma? Borum eftir heitu og köldu vatni, varmadæluholur, rannsóknar- holur, metangasholur og sjóholur. Allt frá grunnum holum til djúpra og grannra til víðra. Erum með borverkefni í gangi víðsvegar um landið og mætum óskum verkkaupa um boranir hvar sem er. Endilega hað samband ef ykkur vantar holu. Áratuga reynsla við jarðboranir. Ég er 29 ára Kópavogsbúi sem hefur áhuga á að takast á við brýn umhverfisvanda- mál samtímans. Til þessa hefur háskólanám mitt verið í Banda- ríkjunum þar sem ég kláraði bakkalárs próf í umhverfis- og jarðvísindum frá Furman-háskóla í Suður-Karólínu og meistara- próf í umhverfisstjórnsýslu frá Columbia-háskóla í New York.“ Þróar sjálfbærnivísa „Ég náði að nýta mér það að vera ágæt í golfi til að fá tækifæri til að læra við flotta skóla í Banda- ríkjunum og er núna doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands að rannsaka sjálfbæra orkuþróun. Um tíma vann ég hjá Umhverfisstofnun sem sérfræðingur í úrgangsmálum þar sem ég stýrði meðal annars vitundarvakningarherferð gegn matarsóun.“ Ingunn hefur löngum haft áhuga á þessum mikilvæga málaflokki. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á orkumálum, sérstaklega í ljósi þess hversu stóran sess þau skipa í íslensku samfélagi. Mér fannst ég hafa góðan grunn í umhverfis- málum og stefnumótun en vanta frekari þekkingu á orkumálum. Þá var ekki verra að viðfangs- efnið yrði íslenska orkukerfið sem stendur einstaklega vel í alþjóð- legum samanburði að mörgu leyti. Þessi doktorsrannsókn hefur leitt mig lengra út í félagsvísindi en ég bjóst við sem hefur verið lærdóms- ríkt,“ skýrir hún frá. „Meginmarkmið rannsóknar- innar er að þróa sjálfbærnivísa fyrir íslenska orkukerfið. Sjálf- bærni vísar eru í rauninni mæli- kvarðar á árangur í átt að sjálf- bærri orkuþróun eða sjálfbærri orkuframtíð. Fyrsta skrefið var því að skilgreina hvað sjálfbær orku- þróun á Íslandi fæli í sér sem ég Mikilvægt að við deilum þekkingu Ingunn Gunnarsdóttir nam við virta háskóla í Bandaríkjunum þar sem golfhæfileikar henn- ar komu sér vel. Hún vinnur nú að doktorsrannsókn í umhverfis- og auðlindafræði við HÍ. Ingunn Gunn- arsdóttir, doktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI gerði með samtali við hagsmuna- aðila. Í kjölfarið hef ég þróað sjálf- bærnivísa sem endurspegla þær áskoranir sem íslenska orkukerfið stendur frammi fyrir.“ Þá bendir Ingunn á samspil umhverfis- og þróunarmála. „Á alþjóðavísu er mest áríðandi að ná sjöunda heimsmarkmiði Samein- uðu þjóðanna um að tryggja öllum aðgang að öruggri og sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði. Aðgengi að orku er grundvöllur fyrir sam- félagslegri og efnahagslegri þróun og bættum lífsgæðum. Því spilar orka stórt hlutverk í því að takast á við þróunarvandamál heimsins.“ Tækifæri og áskoranir Ingunn segir Ísland búa yfir mikilli sérstöðu í þessum málaflokki. „Í rauninni mætti segja að Ísland sé með eitt sjálfbærasta orkukerfi í heiminum vegna hás hlutfalls endur nýjanlegra orkugjafa í því sem er kallað frumorkunotkun. Við erum rík af náttúru- og orkuauð- lindum sem hafa gefið okkur sér- stöðu í þessum málaflokki og því er mikilvægt að við deilum þekkingu okkar með þeim sem eru eftirbátar okkar, að því marki sem auðið er.“ Viðfangsefnið er hvorki einfalt né auðvelt. „Við stöndum samt frammi fyrir ýmsum áskorunum. Má þar helst nefna orkuskipti í samgöngum og sjávarútvegi. Með orkuskiptum má minnka losun en einnig myndi orkuöryggi aukast þar sem við þyrftum ekki að reiða okkur á innflutt jarðefnaeldsneyti. Sömu framsýni þarf og var sýnd við hitaveituvæðingu á sínum tíma til að leitast við að losna við það sem enn er notað af jarðefnaeldsneyti. Hversu flott væri að geta sagt að Ísland sé að öllu leyti knúið af inn- lendri og endurnýjanlegri orku?“ Gera þurfi betur á mörgum sviðum. „Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa í frumorkunotkun okkar hefur minnkað á undanförnum árum, aðallega vegna aukningar í flugi, sem er alfarið rekið á jarð- efnaeldsneyti. Þetta er slæm þróun. Aðrar áskoranir sem mætti nefna er styrking flutnings- og dreifikerfis fyrir raforku. Óveðrin undanfarið hafa sýnt greinilega fram á þörf þess. Einnig finnst mér varhugavert hversu hátt hlutfall stóriðjan hefur í raforkunotkun landsins. Mér finnst fullmörg egg í þeirri körfu.“ 6 KYNNINGARBLAÐ 3 1 . JA N ÚA R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RORKA ÍSLANDS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.