Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 16
Green Diamond harðkorna-dekkin eru íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæður sem henta í f lestum tilvikum betur en nagladekk, menga margfalt minna og endast einstaklega vel. Green Diamond eru einu umhverfisvænu og vistvænu dekkin sem bjóðast Íslendingum. „Það sem er kannski skemmti- legast við þetta er ekki bara að framleiðsla dekkjanna sé byggð á íslensku einkaleyfi, heldur hvað þetta er f lott vara,“ segir Kristinn Sigurðsson, seljandi dekkjanna. „Að sjálfsögðu notum við 100% náttúrulegt gæðagúmmí í slitlagið og við blöndum iðnaðardemanti í allt slitlag Green Diamond dekkja, en það eru á bilinu 300-400 grömm af iðnaðardemanti í hverju fólksbíladekki. Sumir leyfa sér að auglýsa harðkornadekk sem hafa kannski 20 grömm af iðnaðar- demanti, sem er mulningur í efsta yfirborðinu. Mér finnst það vera hrein og klár vörusvik. Stuðlar mjög að sjálfbærni að endurnýta dekk Sumum bregður þegar ég nefni að dekkin séu endursóluð, en það eru þau dekk þar sem belgurinn er endurnýttur og nýr gúmmí- slitflötur settur á. En tækninni í endursólun hefur fleygt fram og gallatíðni er sambærileg við ný dekk, við framleiðsluna er notuð sambærileg tækni og þekkist hvort tveggja hjá Formúlu 1 og í f lug- vélabransanum,“ segir Kristinn. „Belgurinn sem við notum er líka framleiddur til að vera endur- nýttur, en hann er allt að 75% af nýja dekkinu. Við spörum nálægt 100 lítra af jarðefnaeldsneyti á einum dekkjagangi og það er engin spurning að við verðum að endur- nýta allt sem við getum. Hvert einasta kolefnisspor skiptir miklu máli og margt smátt gerir eitt stórt. Þeir sem hafa fylgst með fréttum síðustu daga og umræðunni um loftgæðamál hljóta allir að vera sammála mér.“ Koma vel út í prófunum „Við eigum próf frá annarri af tveimur stofnunum í heiminum sem hafa alþjóðlega vottun til að gera samanburðarrannsóknir á dekkjum, VTI (Vej og Teknik Institut), sem er hliðarfyrirtæki við sænsku vegamálastofnunina,“ segir Kristinn. „Samkvæmt upp- lýsingum frá Umferðarstofu eru algengustu óhappaskilyrðin hér á höfuðborgarsvæðinu þegar það er blautur ís við frostmark og þau skilyrði voru endursköpuð á rann- sóknarstofunni. Green Diamond reyndist hafa 36% meiri virkni í bremsuprófi en það dekk sem kom næst og 32% meiri virkni í beygjuprófi. Hér skilur milli lífs og dauða.“ Nagladekk barn síns tíma „Green Diamond harðkornadekk hafa mikilvæga kosti fram yfir nagladekk. Ítarleg rannsókn dr. Haraldar Sigþórssonar umferðar- verkfræðings gefur í fyrsta lagi sterkar vísbendingar um að naglarnir geti gefið falskt öryggi og ökumenn á negldum hjólbörðum valdi hlutfallslega fleiri slysum en aðrir,“ segir Kristinn. „Ökumenn á nöglum keyra hraðar, sem þýðir lengri bremsuvegalengd, og á höf- uðborgarsvæðinu er oftast keyrt á þurru eða blautu malbiki, en við slík skilyrði er hemlunarvegalengd bifreiða á nagladekkjum almennt lengri. Þá þekkist það við ákveðn- ar aðstæður að bílar á nöglum geta „skautað“ og það skapar hættu. Ég leyfi mér bara að orða það þannig að naglar drepa. Læknar segja að allt að 80 Íslendingar deyi ótímabærum dauða árlega vegna svifryksmengunar og mörg hund- ruð glíma við heilsufarsvandamál. Það má rekja allt að 30% af upp- sprettu svifryks til nagladekkja,“ segir Kristinn. „Þegar naglarnir sverfa göturnar myndast líka djúp hjólför sem fyllast af vatni og geta skapað slysahættu, auk þess sem tjaran úr malbikinu sest á dekk og minnkar veggrip. Green Diamond dekkin sverfa vegina hins vegar 14 sinnum minna. Nagladekk eru bara barn síns tíma. Það er alveg ljóst að forgangs- bifreið Björgunarsveitarinnar á Flúðum væri ekki búin að vera á Green Diamond dekkjum í fimm vetur ef þau væru ekki að virka,“ segir Kristinn. „Ef Green Diamond virkar í uppsveitum Árnessýslu þá þarf engin nagladekk á höfuðborg- arsvæðinu. Ár eftir ár hafa líka Hafnarfjarðarbær, Isavia, Ístak og fleiri kosið að skipta við okkur og við erum stolt af því.“ Einstakt grip allan líftíma dekksins fækkar tjónum „Athuganir sýna að það virðast allt að þrisvar sinnum meiri líkur á að ökumenn á slitnum hjólbörð- um valdi árekstri en aðrir og f lest- öll dekk byrja strax að missa grip þegar þau slitna,“ segir Kristinn. „Green Diamond dekkin halda virkninni aftur á móti miklu betur af því að iðnaðardemanturinn er í öllu slitlaginu, en ekki bara efst, og það er sama góða gúmmíið í öllu dekkinu. Green Diamond dekkin geta því fækkað tjónum heilmikið og þannig sparað þjóðarbúinu hluta af þeim kostnaði sem fylgir umferðaróhöppum, en samkvæmt Samgöngustofu eru hann áætl- aður yfir 30 milljörðum á hverju ári.“ Eru Green Diamond dekkin samkeppnishæf í verði? „Já, þau eru það. Green Dia- mond dekkin eru ekki ódýrustu dekkin á markaðnum, en maður ætti aldrei að gefa afslátt af öryggi og þau eru mjög endingargóð, þannig að þetta eru sannarlega hagstæð kaup,“ segir Kristinn. „Það er vel þess virði að fjárfesta í gæðadekkjum, bæði til að tryggja öryggi og vernda umhverfið.“ Nánari upplýsingar má finna á hardkornadekk.is og í síma 611 7799. Einnig má senda póst á hardkornadekk@gmail.com. Þegar ákvörðun um kaup liggur fyrir er dekkjunum komið á tiltekið dekkjaverkstæði. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Green Diamond harðkornadekkin eru umhverfisvæn dekk úr náttúrulegu gæðagúmmíi. Þau eru sérstaklega hönnuð fyrir íslenskar aðstæður og endast einstaklega vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Green Diamond reyndist hafa 36% meiri virkni í bremsu- prófi en það dekk sem kom næst og 32% meiri virkni í beygjuprófi. Hér skilur milli lífs og dauða. Kristinn Sigurðsson Guðmundur Sigurðsson, eigandi og framkvæmda- stjóri ferðaþjónustu- fyrirtækisins Gateway to Iceland: „Ég hef verið atvinnubíl- stjóri í 47 ár. Green Di- amond dekkin eru bestu vetrardekk sem ég hef ekið á. Við hjá Gate way to Iceland höfum notað Green Diaamond dekkin í rúm fimm ár. Dekkin hafa alveg ótrúlegt grip. Bílarnir skríða aldrei til að aftan, þeir eru eins og negldir við veginn. Það er sama hversu mikið Green Diamond dekkin slitna, það er alltaf frábært grip í dekkjunum.“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.