Fréttablaðið - 10.12.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 10.12.2019, Blaðsíða 22
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Súpur eru einfaldar, næringar-ríkar og ódýrar. Það þarf ekki meira en saxað grænmeti, grænmetissoð, jurtamjólk eða -rjóma og krydd. Auðvelt er að breyta innihaldsefnum, þykkja eða þynna og þar fram eftir götunum. Súpugerð fylgir mikið athafnafrelsi. Þessa sveppasúpu er auðvelt að laga til eftir eigin höfði. Magn innihaldsefna er langt í frá að vera heilagt. Þá er líka hægt að prófa sig áfram með ýmsum innihaldsefn- um til að þykkja eða bragðbæta. Þessi uppskrift er ekki með inni- haldsefnum sem þykkja súpuna en undir „Athugið“, hér fyrir neðan, má sjá nokkrar uppástungur að því hvernig hægt er að gera súpuna þykkari. Saðsöm sveppasúpa í skammdeginu Þessa súpu er einfalt að útbúa og gera eftir eigin hugmyndaflugi. Auðvelt er að þykkja eða þynna, hvort sem það er með hveiti eða öðru. Sveppasúpur eru mikið lostæti. NORDICPHOTOS/GETTY Ágætt er að hafa í huga að sveppir minnka umtalsvert þegar þeir eru eldaðir og því um að gera að hafa meira magn sveppa og vera óhrædd við að blanda saman ólíkum tegundum sveppa. Sveppasúpa 1-2 msk. olía eða vegansmjör 2-3 bollar saxaðir sveppir, t.d. þessir hefðbundnu (ekki verra að hafa nokkrar tegundir) 1 gulur laukur, saxaður 3-4 söxuð hvítlauksrif (eða 1 tsk. hvítlauksduft) 2-3 bollar grænmetissoð eða vatn og grænmetiskraftur (það er virkilega gott að nota líka sveppa- kraft ef hann er til) 1-2 bollar jurtarjómi (hafra, möndlu eða soja) eða 1 dós af kókosmjólk Salt og pipar Ferskt eða þurrkað krydd: t.d. timjan, steinselja og/eða salvía Hitið olíu eða vegansmjör, steikið laukinn í 2-3 mínútur. Bætið við söxuðum sveppum ásamt hvítlauk og kryddum og léttsteikið í nokkrar mínútur, þar til vökvinn er að mestu farinn úr sveppunum. Bætið við grænmetissoði (eða vatni ásamt sveppa- og/eða græn- metiskrafti) og látið suðuna koma upp. Bætið við jurtarjóma og leyfið súpunni að malla. Smakkið til með salti, pipar og öðrum kryddum. Athugið: n Alltaf er gott að hafa ferskar, saxaðar kryddjurtir eins og t.d. timjan og steinselju. n 1-2 lárviðarlauf er líka gott, sé það til, og er það þá sett með vökvanum og fjarlægt í lokin. n Sumum finnst gott að mauka súpuna með töfrasprota til að þykkja hana, annaðhvort alla eða taka hluta sveppanna til hliðar og setja svo aftur út í svo súpan sé ögn bitastæðari. n Til þess að þykkja súpuna er líka hægt nota ýmist hveiti, tapíóka- mjöl, maísmjöl eða soðnar, maukaðar kartöflur (eða jafnvel soðið og maukað blómkál). n Þá getur líka verið gott að bæta við vegan-rjómaosti, sé hann innan handar. n Sumum þykir gott að bæta við smá hvítvíni (eða rauðvíni eða sérríi) á sveppina við lok steik- ingar, rétt áður en vökvanum er bætt við. n Ef notast er við hveiti, eða tapíókamjöl til þykkingar þá er gott að blanda því annaðhvort við smá vatn eða jurtamjólk í lokuðu íláti og hrista vel, þar til engir kekkir eru, og setja með soðinu. Þá er líka hægt að strá hveiti yfir sveppina eftir að þeir eru steiktir, bæta við fitu ef þarf, hræra vel og vandlega svo engir kekkir séu, svo bæta við græn- metissoði og ná upp suðu. Það er fátt jafn kærkomið og heit og seðjandi súpa, ekki síst núna þegar kuldinn og myrkrið umvefur okkur. HEILSA Laugardaginn 28. desember mun sérblaðið Heilsa fylgja Fréttablaðinu. Fjallað er um allt sem viðkemur bættri heilsu. Í blaðinu verða áhugaverð viðtöl og fróðleiksmolar sem unnið er af blaðamönnum Fréttablaðsins. Boðið er upp á auglýsingapláss í blaðinu af öllum stærðum og gerðum. Einnig er hægt að fá kynningarumfjöllun sem unnin er af blaðamanni Fréttablaðsins. Pantanir og skil á auglýsingum er til og með 27. desember. Kynningarumfjallanir þarf að panta í síðasta lagi miðvikudaginn 18. desember. Áhugasamir auglýsendur hafi samband við: Jón Ívar Vilhelmsson Sími 550 5654 jonivar@frettabladid.is Arnar Magnússon Sími 550 5652 arnarm@frettabladid.is Atli Bergmann Sími 550 5657 atlib@frettabladid.is Ruth Bergsdóttir Sími 694 4103 ruth@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.