Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 28
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Elskulegur eiginmaður, faðir, afi,
langafi og bróðir,
Helgi Brynjar Þórisson
Eiðistorgi 3,
Seltjarnarnesi,
lést 28. nóvember sl.
Útför hans fer fram föstudaginn
13. desember kl. 13.00 frá Neskirkju.
Sonja Lúðvígs
Anna María McCrann
Andrea Dýrleif Helgadóttir Mike Stroud
Ómar Sigurður Helgason
Karítas K. McCrann Mauricio R. Villavizar
Ísak Helgi og Elín Ylfa
Alexandra og Lucas
Margrét Þórisdóttir Hörður Gunnarsson
Kristján Guðmundur
Sigurðsson
Húnabraut 36, Blönduósi,
fyrrum bóndi á Höskuldsstöðum,
fæddur 25.08.1930 í Ásgarði í Garði,
lést á gjörgæslu Akureyrar þann
4. desember. Útför fer fram frá
Höskuldsstaðarkirkju, laugardaginn 14. desember kl. 14.00.
Helga Guðmundsdóttir
Elínbjörg Kristjánsdóttir
Anna Kristjánsdóttir Kristján Árnason
Sigurður Kristjánsson Natalía Stetsii
Ólafur Kristjánsson Aldís Hreinsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Svava Þórdís Baldvinsdóttir
Siglufirði,
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar
miðvikudaginn 4. desember.
Útför hennar verður frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 14. desember kl. 13.30.
Baldvin Júlíusson Margrét Sveinbergsdóttir
Theodór Júlíusson Guðrún Stefánsdóttir
Hörður Júlíusson Sigurlaug J. Hauksdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir afi og langafi,
Hólmar Tryggvason
trésmiður,
Fífudal 9, 260 Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 15, nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Signý Guðmundsdóttir
Bergþór Heimir Hólmarsson Sonja Sigurðardóttir
Elín Guðlaug Hólmarsdóttir Jens Ólafsson
Dagný Elva Hólmarsdóttir Valdimar Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elsku mamma mín, amma okkar
og langamma,
Angela Guðbjörg
Guðjónsdóttir
frá Svarfhóli í Svínadal,
lést á Nesvöllum Reykjanesbæ þann
30. nóvember sl. Bálför hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hennar. Af öllu hjarta viljum við þakka
starfsfólki á Hrafnistu Reykjanesbæ fyrir einstaka
umönnun og kærleiksrík samskipti. Þið öll eruð einstök og
gerðuð lífið svo miklu betra. Gleðilega hátíð.
Fjóla Sigurðardóttir
Guðjón Vilhelm Sigurðsson Sylvía Færseth
Angela Guðbjörg Eggertsdóttir Jón Gunnar Ragnarsson
Agnes Baldvinsdóttir
Sædís Ósk, Kamilla Birta, Benóný Einar,
Fjóla Dís, Ásdís Lilja og Þór
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, afi og tengdafaðir,
Sigurður Valdimars
Gunnarsson
múrari,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 29. nóvember. Útför hans
verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, þriðjudaginn
10. desember kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Guðrún Stefanía Guðjónsdóttir
Guðrún B. Sigurðardóttir Guðmundur M. Sigurðsson
Gunnar Heimir Kristjánsson Selma Gísladóttir
Ragnar Steinn Ragnarsson María Lísa Benediktsdóttir
Rúnar Steinn Ragnarsson Helga Kristrún Hjálmarsd.
barnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Guðbjörg Erla Hafliðadóttir
lést þann 4. desember.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 13. desember kl. 11.
Tryggvi Hjörvar
Kjartan T. Hjörvar Linda Rós Helgadóttir
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Sigríður Manasesdóttir
frá Glæsibæ í Hörgársveit,
lést á Öldrunarheimilinu
Lögmannshlíð fimmtudaginn
5. desember.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 16. desember kl. 13.30.
Valgerður Davíðsdóttir Magnús S. Sigurólason
Rúnar Davíðsson Jakobína E. Áskelsdóttir
Hulda Davíðsdóttir
Heiða S. Davíðsdóttir Michael V. Clausen
Eydís B. Davíðsdóttir Atli R. Arngrímsson
og fjölskyldur.
Þessi dagur árið 1939 fékk hér á landi
nafngiftina „Finnlandsdagurinn“, en þá
stóðu Rauði kross Íslands og Norræna
félagið fyrir söfnun til handa Finnum
vegna innrásar Sovétríkjanna. Stóð
fjársöfnun í nokkrar vikur um land allt.
Með söfnuninni sýndi íslenska þjóðin
gríðarlegan samhug með Finnum.
Rauði herinn réðst yfir landamæri
Finnlands þann 30. nóvember 1939
með hálfa milljón sovéskra fótgöngu-
liða auk skriðdrekasveita, stórskota-
liðs og herflugvéla. Til varnar voru 140
þúsund Finnar með fá og úrelt her-
gögn. Átökin sem fengu nafnið Vetrar-
stríðið, stóðu í tæpa fjóra mánuði. Þau
þóttu ójafnt tafl og því fylltust menn
aðdáun á baráttuþreki Finna. Innrás
Sovétríkjanna var fordæmd víða af
alþjóðasamfélaginu.
Á Íslandi vakti stríðið og varnarbar-
átta Finna fádæma viðbrögð. Þeir voru
sagðir útvörður norrænnar menningar
í austri og mjög ólíkir árásarþjóðinni
sem leitaðist við að brjóta þá undir
vald sitt og harðstjórn. Finnar voru
sögð fátæk þjóð og fámenn og þurfa á
frændþjóðum að halda.
Rauði kross Íslands og Norræna fé-
lagið hér á landi gengust fyrir umfangs-
mikilli fjársöfnun fyrir Finna. Allir voru
hvattir til að láta eitthvað af hendi
rakna. Varð þetta stærsta fjársöfnun
sem haldin hafði verið á Íslandi.
Gefendur og fjárhæðir þeirra voru
margir listaðir upp í dagblöðum. Þann-
ig gaf séra Friðrik Hallgrímsson 10 kr.;
skipshöfnin á Heklu 550 kr.; Thor-
valdsensfélagið 100 kr.; Stúdentaráð
Háskólans 1000 kr.; Veitingaþjónar á
Hótel Borg 86 kr.; Kvenfélagi Skaftár-
tungu 295; og svo mætti lengi telja.
Að auki bárust gjafir, til að mynda
prjónles sem Ullarverksmiðjan Fram-
tíðin gaf.
Samkvæmt ársskýrslu Rauða kross
Íslands árið 1939 söfnuðust 165.661,93
krónur í peningum en að auki voru
ýmsar vörur gefnar þannig að heildar-
upphæð Finnlandssöfnunarinnar nam
174.486,89 krónum.
david@frettabladid.is
Þ E T TA G E R Ð I S T 10 . D E S E M B E R 1939 :
Söfnun fyrir Finna vegna innrásar Rússa
1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT