Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 10.12.2019, Qupperneq 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is Slakaðu á með Slökun g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, kippir og spenna g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartsláttur g Kvíði g Streita g Pirringur Einkenni magnesíum- skorts www.mammaveitbest.is lakaðu á eð lö g Lítil orka g Þróttleysi g Veik bein g Hormóna ójafnvægi g Svefntruflanir g Vöðvakrampar, ki pir og spe na g Kölkun líffæra g Óreglulegur hjartslá tur g Kvíði g Streita g Pi ringur Einke i agnesí skorts i t.i Fyrsti stóri slípirokkurinn knúinn af einni rafhlöðu sem skilar ai til þess að slípa, er léttari en snúrurokkur í sinni stærð. Sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee ® M18™ rafhlöðum. Verð 136.900 kr. (með rafhlöðu) M18 FLAG Alvöru slípirokkur frá Milwaukee vfs.is Járn & Gler ehf. • Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin 104 Reykjavík • S. 58 58 900 • www.jarngler.is Bjóðum upp á sjálfvirkan hurðaopnunarbúnað, hurðir og gluggakerfi ásamt uppsetningu og viðhaldi á búnaði. Áratuga reynsla. Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is Á morgun opnar lista-teymið Krot og Krass sýninguna Kuldaljóð. Krot og Krass er skipað þeim Elsu Jónsdóttur og Birni Loka Björnssyni. Þau hafa starfað saman í þrjú ár, og beitt kröftum sínum víða. Verkin sem þau vinna eru helst grafísk verk byggð á gömlum íslenskum útskurði. Í gámahverfi á Árósum „Núna erum við að vinna með fund- in orð,“ segir Elsa og útskýrir svo: „Við skoðum íslenskt mál og velt- um okkur upp úr því. Við vinnum þetta oft frekar staðartengt. Við höfum unnið nánast á nýjum stað í hverjum mánuði allt þetta ár. Þetta er eiginlega sjálfsköpuð residensía.“ Í ár hafa þau dvalið víðs vegar um landið með stoppi í Árósum. „Á þessu ári höfum við verið í Bol- ungarvík, Siglufirði, Neskaupstað, Seyðisfirði og Flateyri. Við stopp- uðum í tæpa tvo mánuði í Árósum þar sem við bjuggum í gámahverfi fyrir sjálfstætt starfandi listamenn,“ segir Björn Loki. Á stöðunum vinna þau sín eigin verk en skilja oft eftir sig vegglista- verk, sem tengjast stundum veru þeirra í bænum á einn eða annan hátt. „Ástæðan fyrir því að við fórum upphaflega á svona flakk var að við fórum að leigja minna stúdíó hérna í bænum fyrir tveimur árum. Þann- ig að við ákváðum að kaupa okkur húsbíl. Við vildum prufa að fara eitt- hvert annað að vinna, eitthvert út á land,“ segir Björn Loki. Þau segja mun ódýrara að leigja rými undir listsköpun sína úti á landi, og ekki skemmi fyrir að kom- ast í nýtt og öðruvísu umhverfi. Þau segja einangrunina einnig geta hjálpað til við að halda þeim við efnið. Svaðilför í Borgarnesi Sýningin er einnig ætluð sem útgáfuhóf fyrir þriðju útgáfu Krots og Krass. Síðustu tvö ár hafa Elsa og Loki gert samantekt á listsköpun sinni yfir hvert ár undir lok þess og gefið út á bók. „Kuldaljóð kemur svo til okkar þegar við erum í Bolungarvík. Í nokkra mánuði sést ekki til sólar, það kemur smá birta og svo aftur myrkur. Við vorum þarna innilok- uð í einhverju stúdíói og öll verkin bera merki um það,“ segir Elsa, en öll verkin á sýningunni voru einmitt gerð í Bolungarvík. „Allt sem við gerðum þar var einhvern veginn tengt þessu. Það er svolítið þannig. Við gerðum til dæmis vegglistaverk í Borgarnesi þar sem stendur orðið svaðilför, því það átti svo vel við dagana á undan,“ bætir Björn Loki við. Húsbíllinn hefur líka komið sér vel á ferðalögum tvímenninganna. Í íslensku veðráttunni var gott að gera leitað í hlýjan húsbíl, þar á meðal á LungA. „Það voru örugglega um 25 manns inni í bílnum á einum tímapunkti, að skýla sér fyrir veðrinu,“ segir Elsa. „Það var alveg troðfullt,“ bætir Björn Loki við. Fyrsta árið sem þau fóru á f lakk tóku þau líka landsbyggðina, en árið eftir fóru þau vítt og breitt um Evrópu á húsbílnum. „Í ár tókum landsbyggðina svo aftur, en fórum líka í alveg fjögur verkefni í Danmörku. En húsbíllinn fékk að bíða heima í þetta skipti,“ segir Elsa. Sýningin Kuldaljóð verður opnuð á morgun klukkan 16.00 á Ingólfs- stræti 6, en þar verður einnig hægt að næla sér í þriðja bindi af Kroti og Krassi. Sýningin stendur yfir til 17. desember. steingerdur@frettabladid.is Krot, Krass og Kuldaljóð Á morgun verður sýningin Kuldaljóð opnuð. Það er listateymið Krot og Krass sem stendur að henni, en það er skipað þeim Birni og Elsu. Elsa Jónsdóttir og Björn Loki Björnsson opna sýninguna Kuldaljóð á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hægt verður festa kaup á þriðja bindi Krots og Krass á staðnum. 1 0 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.