Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2019, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 19.12.2019, Qupperneq 8
Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út. Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði. Jól 2019 Uppþvottavél, 45 sm SR 415W00CS 10 manna. Sex kerfi, þar á meðal hraðkerfi á 65° C. Hljóð: 44 dB. Fullt verð: 119.900 kr. Jólaverð: 89.900 kr. Orkuflokkur Örbylgjuofn HMT 75G451 Frístandandi. 17 lítra. Mesti örbylgjustyrkur 800 W. Grill: 1000 W. Fullt verð: 33.900 kr. Jólaverð: 25.900 kr. Blandari MMB 42G0B 700 W. Einstaklega hljóðlátur. Fullt verð: 17.500 kr. Jólaverð: 12.900 kr. ORKUMÁL Skipulags- og fram- kvæmdaráð Norðurþings hefur samþykkt stöðuleyfi fyrir veður- athugunarmastri á Hólaheiði í Núpasveit. Fyrirtækið Quadran Development, sem er í eigu franskra aðila, mun setja það upp til að rann- saka aðstæður til þess að byggja vindmyllugarð. Þegar er fyrirtækið með veðurathugunarmastur í Sól- heimum í Laxárdal í Dalasýslu. Landeigendur á svæðinu, á bæj- unum Katastöðum, Presthólum og Efri-Hólum, hafa þegar sam- þykkt að mastrið verði sett upp. Í vikunni samþykkti Samgöngustofa það einnig, með því skilyrði að það yrði merkt sérstaklega með tilliti til f lugöryggis. Tryggvi Þór Herbertsson, sem sér um fjárfestingar fyrir Quadran á Íslandi, segir að verið sé að athuga hvaða staðsetningar henti fyrir vindmyllugarð. Ef aðstæður á Hólaheiði reynast góðar gæti þar risið garður sem myndi hugsanlega skaffa um 60 megavött. Til saman- burðar er það álíka mikið rafmagn og jarðgufuvirkjunin í Kröflu fram- leiðir. Veðurathuganirnar sjálfar og úrvinnsla gagna úr þeim taki þó um tvö ár. Tryggvi segir að landeigendur og sveitarfélög séu almennt jákvæð gagnvart nýtingu vindorku. „Hins vegar er þetta kerfi sem við búum við þungt í vöfum. Enn hefur ekk- ert stoppað en þetta er ekki auð- velt,“ segir hann. „Kerfið er ekki mjög samvinnuþýtt þegar kemur að framkvæmdum. Skipulags- og umhverfismál geta reynst flókin og flutningskerfi raforku er mjög bág- borið, eins og við höfum séð síðustu daga.“ Quadran var stofnað árið 2013 við samruna tveggja orkufyrir- tækja, JMB og Aerowatt. Hefur það starfað í nýtingu endurnýjanlegrar orku, svo sem vindorku, sólarorku og vatnsorku. Quadran er með verk- efni í gangi um allan heim, á ýmsum stigum rannsókna, fjármögnunar og framleiðslu. Auk Íslands starfar það meðal annars í Ítalíu, Póllandi, Brasilíu, Víetnam, Marokkó og Máritíus. Yfirlýst stefna Quadran er að framleiða samanlagt eitt gígavatt árið 2022 og bæta við sig 200 mega- vöttum á hverju ári eftir það. „Fyrirtækinu er full alvara í því að byggja hér upp vindmyllugarð, eða -garða. Hvað verður úr þessu mun verða ljóst þegar rannsóknir liggja fyrir, hvort það fáist öll leyfi og svo framvegis. Það er ekkert fast í hendi,“ segir Tryggvi. Fimm vindmyllur eru nú þegar á Íslandi, ein í Leirársveit, tvær í Þykkvabæ og tvær við Búrfell í Þjórsárdal. Þær síðastnefndu voru reistar sem tilraunaverkefni Lands- virkjunar árið 2013. Eiginlega vind- myllugarða, með tugum vindmylla er ekki að finna á Íslandi en hafa verið í umræðunni undanfarin ár. kristinnhaukur@frettabladid.is Leyfi veitt til rannsókna fyrir vindmyllugarð í Norðurþingi Fyrirtækið Quadran hefur fengið grænt ljós frá skipulags- og framkvæmdaráði Norðurþings fyrir upp- setningu veðurmasturs á Hólaheiði til rannsókna fyrir hugsanlegan vindmyllugarð. Tryggvi Þór Her- bertsson er forsvarsmaður félagsins. Hann segir landeigendur og sveitarfélög jákvæðari en stjórnkerfið. Vindmyllur hafa verið settar upp við Búrfell í Þjórsárdal.FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrirtækinu er full alvara í því að byggja hér upp vindmyllu- garð, eða -garða. Hvað verður úr þessu mun verða ljóst þegar rannsóknir liggja fyrir. Tryggvi Þór Herbertsson, forsvarsmaður Quadran Deve- lopment á Íslandi GRÆNLAND Tvö voru myrt í græn- lensku þorpi í fyrrinótt og óskaði grænlenska lögreglan eftir aðstoð almennings við leit að morðingj- anum. Maður sem kom að karli og konu á miðjum aldri í íbúð í þorpinu gerði lögreglu viðvart. Þau höfðu verið stungin til bana. Grænlenskir miðlar birtu frétta- tilkynningu frá lögreglunni um málið í gær. Þar er óskað eftir aðstoð þeirra sem gætu veitt upplýsingar sem leitt gætu lögreglu til hins seka. Þrír danskir rannsóknarlögreglu- menn eru komnir til Grænlands til að aðstoða heimamenn við rann- sókn málsins. – aá Tvö myrt á Grænlandi Einn fjölmargra fjarða Grænlands. Morales safnar nú kröftum í Arg- entínu. NORDICPHOTOS/GETTY BÓLIVÍA Gefin hefur verið út hand- tökuskipun á hendur Evo Moreles sem hrökklaðist úr embætti forseta Bólivíu í nóvember síðastliðnum. Embætti saksóknara í höfuðborg landsins gaf handtökuskipunina út í gær vegna gruns um aðstoð og stuðning við hryðjuverkastarfsemi. Morales hefur þegar verið ákærð- ur fyrir að bera ábyrgð á ofbeldis- hrinu sem dró 35 manns til dauða skömmu fyrir og eftir að hann hrökklaðist úr embætti. Morales er í útlegð í Argentínu en hann kaus að dvelja þar þrátt fyrir að hafa fengið pólitískt hæli í Mexíkó. Hann neitar staðfastlega ásökunum á hendur sér. Enn er eftir að kjósa nýjan forseta í Bólivíu og segist Morales styðja forsetaefni Sósíalistaflokksins sem hann tilheyrir en forsetaefni flokks- ins hefur enn ekki verið valið. Evo má ekki gefa kost á sér sjálfur en eftir langa valdatíð er hann sakaður um kosningasvindl eftir sigur í sínum fjórðu kosningum. Rannsókn Sam- bands Ameríkuríkja gaf þeim ásök- unum byr undir báða vængi. Völd Morales í heimalandinu eru sögð mikil þrátt fyrir útlegðina og bráðabirgðastjórnin í landinu hefur lýst áhyggjum af því að hann noti Búenos Aíres sem vígi til að byggja sig upp áður en hann snýr til baka. – aá Handtökuskipun gefin út á Evo Morales Morales hefur þegar verið ákærður fyrir að bera ábyrgð á ofbeldishrinu sem dró 35 manns til dauða. Sjanghæ, gamli og nýi bærinn. KÍNA Kínverskir stúdentar við Fudon-háskóla í Sjanghæ hafa gagn- rýnt harðlega nýlegar breytingar á stofnskrá skólans. Með breytingun- um fékk ákvæði um hugsanafrelsið að fjúka úr stofnskránni en í staðinn hefur verið sett ákvæði um stuðning við Kommúnistaflokkinn. Stuttu eftir að menntamálaráð- herra landsins lýsti stuðningi við breytingarnar fóru þær eins og eldur í sinu á Weibo, vinsælum þarlendum samfélagsmiðli. „Hvernig ætlist þið til að okkar kynslóð af Fudan-nemum horfist í augu við forvera okkar hér, ef ég dirfist að spyrja?“ spurði einn nem- endanna í færslu á Weibo. Fudan-háskólinn í Sjanghæ er meðal stærstu háskóla í Kína og þykir með þeim frjálslyndustu í landinu. – aá Háskólanemar í Kína ósáttir 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.