Fréttablaðið - 19.12.2019, Qupperneq 30
Þó kuldinn næði um Daladætur þá dreymir allar um sól og vor. Og þó við göngum í svörtum,
þykkum fötum yfir vetrarmánuð-
ina má alltaf láta sig dreyma um
tískulitina næsta vor og sumar. Á
tískusýningarpöllunum mátti sjá
glitta í mörg falleg snið og tísku-
strauma en litadýrðin vakti þó
mestu athyglina enda verða gulur,
rauður, grænn og blár aðallitirnir
sumarið 2020. Þó ekki bara ein-
hverjir gulir, rauðir, grænir og bláir
litir, þessir eru alveg spes. Litastofn-
unin Pantone Colour Institute sem
hefur ráðið litapallettu heimsins
síðan árið 2000 hefur lýst litum
næsta sumars sem vingjarnlegum
og þægilegum og að þeir „blandi
saman menningu og hefð annars
vegar og æskuþrótti og birtu hins
vegar og að saman myndi þessir
litir sterkar samsetningar fullar
af jákvæðni og bjartsýni“, að sögn
Leatrice Eiseman, framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar. Við seljum
það ekki dýrara en við keyptum en
kynnum til sögunnar sjö sterkustu
sumarlitina sem verða á allra
herðum og víðar árið 2020.
Sumarlitagleðin árið 2020
Þó að gráu treflarnir og þykku svörtu kápurnar séu allsráðandi núna er sumarið handan við horn-
ið með birtu, yl og söng. Sumarið verður einstaklega glaðlegt í tískunni og litadýrðin í fyrirrúmi.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is Eldskarlatsrauður
Ákveðinn, sterkur,
hlýr og orkumikill
litur sem ber með sér
sjálfstraust og er yfir
lýsing í sjálfu sér.
Kóralbleikur
Mjúkur, hlýr og fínlegur litur sem
er kvenlegur og klæðilegur bæði
kvölds og morgna. Fer sérstaklega
vel á silki, pallíettuefnum og tjulli.
Saffran
Þessi sterki
gulappelsínu
guli litur kallar
fram jákvæðni
og bjartsýni
í hvaða sam
setningum
sem er. Einkum
þó ef í honum
er verið ein
göngu.
Graslauksgrænn
Einstaklega fallegur,
dökkdjúpgrænn
litur sem er þó
merkilega hlutlaus
og passar til dæmis
einstaklega vel með
hinum krefjandi
saffrangula lit.
Svo kemur hann
sérstaklega vel út á
leðurflíkum.
Útvatnaður gallablár
Þetta er þessi sígildi
ljósblái sem er bæði ör
uggur og töff og alltaf hægt
að reiða sig á. Hann passar
vel með sterkari litum og
er fjarri því að vera of fínn
heldur ber með sér af
slöppun og þægindi.
Hvítur
Sumar og vor er ekki að
marka ef ekki er eitthvað
hvítt í klæðaskápnum til að
koma okkur í sumarhitagír
inn. Allir hvítir litir ganga,
allt frá ljósasta bleika og yfir
í klórhvítt og öll efni, frá hör
yfir í silki yfir í blúndu.
Str. S-XXL
Fleiri litir
Jakkar
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kr. 10.990.-
Kr. 12.900.-Kr. 10.990.-
Kr. 8.900.-
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
SMART JÓLAFÖT, FYRIR SMART KONUR
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R