Fréttablaðið - 19.12.2019, Side 20
Fyrsta ígræðslan í
Íslending var gerð í Lund-
únum árið 1970 og er sá
nýrnaþegi enn í fullu fjöri og
nýtir enn nýrað sem gefið
var, nær 50 árum síðar.
Opnunartímar
Kirkjugarða Reykjavíkur um jólin
Á aðventunni, um jól og áramót eru Fossvogskirkjugarður, Gufuneskirkjugarður,
Kópavogskirkjugarður og Hólavallagarður opnir allan sólarhringinn nema
Fossvogskirkjugarður er lokaður fyrir allri bílaumferð á
aðfangadag milli kl 11:00 og 14:00 vegna mikils fjölda gangandi og slysahættu.
Þeir sem ekki geta vitjað leiða ástvina sinna nema koma akandi
er bent á að koma annað hvort fyrir eða eftir tilgreindan lokunartíma.
Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Suðurhlíð og Vesturhlíð.
Á Þorláksmessu og aðfangadag er hringakstur í Gufuneskirkjugarði
með aðkomu eingöngu frá Hallsvegi og farið er út norðan megin inn á
Borgaveg eins og verið hefur.
Símavarsla verður á skrifstofu Kirkjugarðanna á aðfangadag og gamlársdag
frá kl. 08:00 - 12:00 í síma 585 2700 fyrir þá sem þurfa
að leita upplýsinga og aðstoðar.
Hægt er að nálgast upplýsingar um staðsetningu leiða á vefnum www.gardur.is
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.
www.kirkjugardar.is
Jólin eru tíminn þegar f leiri en færri borða meira en venjulega. Oftar en ekki er um að ræða kjöt þó að
fiskurinn sé alltaf að verða vinsælli. Þá
eru býsna margir sem þykir gott að fá
sér aðeins í tána og drekka gott vín með
matnum, jafnvel fá sér fordrykk, þá er
ekki óalgengt að einstaka fái sér koníak
með kaffinu. Ef laust fara margir yfir
strikið í bæði mat og drykk, en hvaða
máli skiptir það svosem þegar manni
líður vel? Hægt er að velta upp mörgum
tegundum af matseðlum og hver og einn
á sinn uppáhalds geri ég ráð fyrir.
Sú sem líklega væri vinsæl hjá þvag-
sýrugigtarpúkanum og líka hjá veit-
ingamönnum víða um heim er algjör
lúxusfæða. Hvítlauksristaður og smjör-
steiktur humar sem forréttur, nauta-
lund með ferskum grilluðum aspas,
fylltum sveppum og bearnaise. Þessu
fylgjandi að sjálfsögðu vín sem passa
við hvern rétt, frönsk súkkulaðikaka
með rjóma og tvöfaldur espresso.
Þessi samsetning alveg steinliggur
fyrir þá sem eiga á hættu að fá þvag-
sýrugigtarkast, því miður. Sama gildir
reyndar um villibráðina að hluta og svo
ekki síst hamborgarhrygginn og reykta
kjötið almennt líkt og hangikjötið.
Þeir eru ófáir einstaklingarn-
ir sem hafa vaknað um miðja
nótt við nístandi sársauka,
jafnvel brunatilfinningu,
og geta með engu móti
legið kyrrir undir
sænginni vegna
verkja. Algengast
er að fá þvag-
sýrugigtarkast í
lið stórutáar en
það getur svo-
sem verið hvaða
liður sem er sem
bólgnar upp. Eymslin eru
svo mikil að það má varla
koma við húðina yfir bólgna
liðnum, hvað þá nota hann og stíga í.
Algengara er að karlar á miðjum aldri
fái slík köst, en konur eftir tíðahvörf er
hópur sem ætti mögulega líka að vara
sig á humri og nautalund á sama kvöldi.
En hvað er það sem gerist við slík
köst? Þessir einstaklingar eru ekki með
neina gigt í sjálfu sér en fá samt gífur-
lega bólgu í liði sem getur tekið margar
vikur að ganga til baka. Skýringin
er margþætt en í grunninn falla út
kristallar í þá liði sem bólgna upp í
kjölfar þess að þvagsýra safnast upp í
líkama viðkomandi. Undir venjulegum
kringumstæðum myndast þvagsýra
við ákveðin efnaskipti og nýrun sjá um
að losa hana út án þess að við finnum
mikið fyrir því. Ef nýrun virka ekki sem
skyldi eða við framleiðum of mikið af
þvagsýru aukast líkurnar á því að fá
kast.
Lífsstíll, mataræði og ýmsir sjúkdóm-
ar geta ýtt undir þetta ástand, en þar
ber einna helst að telja neyslu á dýra-
próteinum, fitu, ákveðnum tegundum
grænmetis, einföld kolvetni, ger,
áfengisneyslu og þá sérstaklega bjór og
reykingar. Þeir sem þjást af háum blóð-
þrýstingi, sykursýki og svokölluðum
lífsstílssjúkdómum auk krabbameina
eru í meiri áhættu. Svelti og ofþornun
auk vissra lyfja eru einnig áhættuþættir
svo það er ýmislegt sem ber að varast.
Greiningin er fyrst og fremst klínísk
hjá þeim sem koma í kasti til læknis og
þurfa nauðsynlega á lyfjum að halda
til að tækla svæsinn verkinn sem fylgir
bólgunni. Yfirleitt er einnig reynt
að mæla þvagsýru í blóði og fá stað-
festingu. Sumir fá bara einu sinni kast,
en flestir fá ítrekað einkenni og þurfa
nákvæmar leiðbeiningar um hvað beri
að forðast auk þess sem margir fá lyf í
forvarnarskyni. Ýmsar leiðir eru færar
til að meðhöndla köstin sjálf, en þær
byggja fyrst og fremst á bólgueyðandi
og verkjastillandi lyfjum. Hjá vel-
flestum næst mjög viðunandi árangur
og ekki verða neinar langtímaafleið-
ingar, þó er þekkt að fá húðbreytingar,
útfellingar í festum og sinum auk þess
að geta myndað nýrnasteina.
Það er því almennt mælt með hollu,
trefjaríku fæði, ríkulegri neyslu á vatni,
að draga úr áfengisneyslu og tóbaks-
notkun, hreyfa sig reglubundið og
draga úr álagi og streitu. Það rímar við
hið fornkveðna að halda góðu jafn-
vægi milli líkama og sálar, en matur
er reyndar stór þáttur í því. Að þessu
sögðu þá njótið jólanna.
Steikin, vínið og bólgueyðandi …
LÆKNISFRÆÐI Í haust hófst nýr kafli
í nýrnaígræðslum á Landspítal-
anum þegar fyrstu ígræðslurnar
hófust þar sem grætt var líffæri úr
látnum íslenskum nýrnagjöfum.
Fram kemur í frétt frá Land-
spítalanum að slíkar aðgerðir séu
mun einfaldari en aðgerðir þar sem
gjafinn er lifandi og er það talið til
marks um að spítalinn sé í fremstu
röð.
Íslendingar hafa árum saman
gefið úr sér líffæri, þar á meðal
nýru, en landsmenn hafa gefið mun
fleiri líffæri en koma að notum hér
á landi.
Fram til þessa voru Íslendingar
sendir utan í ígræðslur. Í fréttinni
segir að fyrsta ígræðslan í Íslending
hafi verið gerð í Lundúnum árið
1970 og er sá nýrnaþegi enn í fullu
fjöri og nýtir enn nýrað sem gefið
var, nær 50 árum síðar. Segir jafn-
framt að fyrsta nýrnaígræðslan hér
á landi hafi farið fram árið 2003 og
var þá grætt nýra úr lifandi gjafa.
Upp frá því hafa 115 ígræðslur verið
gerðar hér á landi. Þess er jafnframt
getið að um þessar mundir geri
íslensk lög ráð fyrir að allir Íslend-
ingar séu líffæragjafar, hafi þeir
ekki ákveðið annað og skráð.
Nýrnaígræðslur eru algengustu
líffæraígræðslurnar, en fimmtán
til tuttugu Íslendingar þurfa þeirra
með árlega. Þá segir að þeir séu mun
færri sem þurfa á ígræðslu að halda
þegar kemur að lifur, lungum eða
hjarta. – jþ
Hófu ígræðslu nýrna úr
látnum líffæragjöfum
Teitur Guðmundsson
læknir
Fyrsta nýrnaígræðslan hér á landi var árið 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð