Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.12.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 19.12.2019, Qupperneq 18
Stefnt er að innleiðingu Evrópureglugerðar sem tekur af allan vafa um þessi mál. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR „Nú er búið að taka af allan vafa um það að félög sem eru með fjármála- gerninga sem hafa verið teknir til viðskipta á aðalmarkaði Kaup- hallarinnar þurfa að vera á tánum í allri uppgjörsvinnu,“ segir Andri Fannar Bergþórsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, í samtali við Markaðinn. „Það liggur fyrir að þegar drög að uppgjörum fela í sér innherjaupp- lýsingar þurfa félögin að bregðast hratt við, annaðhvort með því að taka ákvörðun um frestun á birtingu upplýsinganna ef skilyrði fyrir því eru fyrir hendi eða birta innherjaupplýsingarnar áður en uppgjörið sjálft er birt opinberlega.“ Hæstiréttur Íslands k vað í vikunni upp sýknudóm í máli Eimskipafélags Íslands gegn Fjár- málaeftirlitinu og íslenska ríkinu. Forsaga málsins er sú að í mars 2017 tók stjórn Fjármálaeftirlits- ins ákvörðun um að beita Eimskip stjórnvaldssektum fyrir að hafa ekki birt opinberlega innherjaupp- lýsingar, sem Fjármálaeftirlitið taldi að hefðu komið fram í fyrstu drögum árshlutareiknings, eins fljótt og auðið var. Upplýsingaskyldan sem deilt var um í málinu byggir á hugtakinu innherjaupplýsingar, en hugtakið gegnir einnig lykilhlutverki í banni við innherjasvikum. Upphaf lega var hugtakinu aðeins ætlað að ná til banns við innherjasvikum en það breyttist þegar Markaðssvika- tilskipun Evrópusambandsins, eða MAD, var innleidd í íslenskan rétt árið 2005. „Innherjaupplýsingar geta verið þannig að þær lýsa einhverju sem hefur orðið, til dæmis samruna, en einnig er nóg að samrunaviðræður séu í gangi sem eru ekki endan- legar upplýsingar, það er að segja, atburðurinn hefur ekki átt sér stað. Í verðbréfaviðskiptalögum er takið fram að útgefanda beri að birta innherjaupplýsingar eins f ljótt og auðið er eða taka ákvörðun um frestun á eigin ábyrgð. Það er í sam- ræmi við orðalagið í MAD,“ segir Andri Fannar. Eitt af þeim álitaefnum sem deilt var um í Eimskipsmálinu var hvort upplýsingaskyldan verði virk um leið og innherjaupplýsingar mynd- ast, jafnvel þótt þær séu ekki endan- legar, eða hvort hún verði ekki virk fyrr en innherjaupplýsingarnar verði endanlegar, til dæmis þegar uppgjör er samþykkt af stjórn félags. Ástæðan fyrir ágreiningnum er sú að tímamark upplýsingaskyld- unnar er útfært nánar í reglugerð en ekki verðbréfaviðskiptalögunum sjálfum. Reglugerðinni er meðal annars ætlað að innleiða aðra til- skipun frá Evrópusambandinu sem fjallar nánar um upplýsinga- skylduna í MAD. Í íslensku reglugerðinni er tekið fram að upplýsingaskyldan verði ekki virk fyrr en innherjaupplýs- ingarnar eru endanlegar. Ef miðað hefði verið við það hefði upplýs- ingaskylda Eimskips ekki orðið virk fyrr en stjórn félagsins hefði samþykkt uppgjörið. Túlkun Fjár- málaeftirlitsins var hins vegar sú að ákvæði reglugerðarinnar sem lýsti tímamarki upplýsingaskyldunnar hefði ekki nægilega lagastoð og það leit þannig á að upplýsingaskyldan yrði virk um leið og innherjaupp- lýsingar mynduðust. Á öllum dóm- stólastigum var fallist á rökstuðn- ing Fjármálaeftirlitsins. „Í grein eftir mig frá 2013 rök- studdi ég þá niðurstöðu að upplýs- ingaskyldan verði ekki virk fyrr en innherjaupplýsingar eru endanleg- ar. Byggði ég meðal annars á því að Evrópulöggjöfin var mjög skýr hvað þetta varðar. Það má velta fyrir sér hvort niðurstaða Hæstarétt- ar hefði verið önnur ef tilskipunin sem útfærði tímamark upplýsinga- skyldunnar hefði verið innleidd í verðbréfaviðskiptalögin en ekki reglugerð,“ segir Andri Fannar og nefnir að í Danmörku hafi umrædd tilskipun á sínum tíma verið inn- leidd í dönsku verðbréfaviðskipta- lögin og því hafi enginn vafi leikið á því að upplýsingaskyldan virkjaðist þegar innherjaupplýsingar væru endanlegar. Stefnt er að innleiðingu á Mark- aðssvikareglugerð Evrópusam- bandsins, MAR, sem ætlað er að leysa af hólmi MAD. Í MAR er tek- inn af allur vafi um það að tíma- mörk upplýsingaskyldunnar eru þegar innherjaupplýsingar mynd- ast hjá útgefanda. „Þó að hægt sé að gagnrýna túlkun Hæstaréttar núna þá er hún í samræmi við það sem koma skal,“ segir Andri Fannar. thorsteinn@frettabladid.is Þurfa að vera á tánum með uppgjörin Dómur Hæstaréttar í máli Eimskips gegn FME þýðir að skráð félög þurfa að vera á tánum í allri uppgjörsvinnu. Þurfa að bregðast hratt við ef innherjaupplýsingar myndast. Birting innherjaupplýsinga hefur aukist frá því að FME birti ákvörðun sína, segir lektor. Hátíðarsteikur frá Kjötkompaní Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. 6999 kr.kg Lambahryggur með hvítlauksfyllingu 4999 kr.kg Lambalæri með villisveppafyllingu10980 kr.kg Nautalund miðja Chateaubriand með rósmarín og trufflu marineringu Má spyrja hvort of langt sé gengið Annað mikilvægt álitaefni sem skorið var úr um í dómi Hæsta- réttar var tímamark upplýsinga- skyldu þegar innherjaupplýs- ingar myndast í uppgjörsvinnu. Í verðbréfaviðskiptalögunum eru sérákvæði sem fjalla um upplýsingaskyldu útgefanda varðandi ýmsar fjárhagsupplýs- ingar, til dæmis ársreikninga og árshlutareikninga. Tímasetning á birtingu árshlutareikninganna byggir á dagatali sem útgefandi birtir opinberlega áður en nýtt fjárhagsár hefst. Í Eimskipsmálinu sló Hæsti- réttur því föstu að þegar inn- herjaupplýsingar myndast í uppgjörsvinnu útgefanda verði upplýsingaskyldan virk um leið og upplýsingarnar myndast og því ekki hægt að bíða fram að birtingu alls uppgjörsins sam- kvæmt fjárhagsdagatalinu. „Ég myndi segja að þetta hafi ekki verið augljóst fyrir Eimskips- málið við hvort tímamark ætti að miða við þessar aðstæður. Greina má töluverða aukningu í birtingu innherjaupplýsinga sem mynd- ast í uppgjörsdrögum útgefanda frá því að Fjármálaeftirlitið birti opinberlega ákvörðun sína um að beita Eimskip stjórnvalds- sektum. Framkvæmdin virðist vera í samræmi við núgildandi reglur, sem byggja á löggjöf frá Evrópusambandinu, en það má spyrja sig hvort gengið sé of langt í að skylda útgefendur til að birta innherjaupplýsingar.“ segir Andri Fannar. Þó að hægt sé að gagnrýna túlkun Hæstaréttar núna þá er hún í samræmi við það sem koma skal. Andri Fannar Berg- þórsson, lektor við lagadeild Háskól- ans í Reykjavík MARKAÐURINN 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R16 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.