Fréttablaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 19.12.2019, Blaðsíða 22
Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Ofan Grundarfjarðar á Snæfellsnesi er hrikalegur fjallgarður sem heitir því kuldalega nafni Helgrindur. Þarna er oft stórviðrasamt og í mestu hvass-viðrum hvín í þeim eins og fölsku pípuorgeli og geta lætin heyrst alla leið niður í Grundarfjörð. En þótt nafnið sé frá- hrindandi þá er ganga á Helgrindur frábær upplifun í góðu veðri og ekki eru Grindurnar síðri fyrir þá sem stunda vetrarferðir og fjallaskíði. Algengast er að hefja gönguna við bæinn Kálfárvelli, rétt áður en komið er að Búðum. Gengið er meðfram Kálfá austan megin en í henni er fallegur foss. Fyrsta brekkan er býsna brött og því skynsamlegt að notast við stafi og í vetrarferðum mannbrodda og ísöxi. Þegar brekkan er að baki tekur við nokkuð aflíðandi Kálfárdalur með litlum fossum og smátjörnum. Smám saman eykst brattinn og þá opnast stórkostlegur fjallasalur sem skartar fjöllum eins og Stakkfelli, Kambi og Erninum. Í vestri gnæfir síðan sjálfur Snæfellsjökull (1.485 m). Haldið er í norður upp brekkur Helgrinda uns komið er að hæsta tindinum, Böðvarskúlu (988 m). Þarna blasir Breiðafjörðurinn við í öllu sínu veldi en ekki er síður tilkomumikið að sjá Kirkjufellið og Grundar- fjörð og til austurs glittir í Kolgrafarfjörð. Skammt frá Böðvarskúlu er skarð þar sem hægt er að renna sér á fjallaskíðum niður norðurhlíðar fjallsins, jafnvel alla leið að fossinum fræga við Kirkjufell. Þetta er með eftirminnilegri fjallaskíðabrekkum á Íslandi en á sumrin er þetta sömuleiðis frábær gönguleið. Flestir kjósa þó að ganga sömu leið til baka af Helgrindum að Kálfárvöllum, eða halda í vestur og norður af Böðvars kúlu og þaðan meðfram fjallinu Kaldnasa (986 m) uns komið er í hömrum girtan Lárdal sem leiðir að þjóðveginum skammt frá Kvíárbryggju. Það eru ekki nema tæpir 15 km að þvera Snæfellsnes yfir Helgrindur og tekur daginn með 1.000 m hækkun. Ekki er ráðlegt að halda á Hel- grindur nema veðurspá sé góð, enda fjallið mikið veðravíti eins og nafnið gefur til kynna. En í góðu veðri eru fáir staðir sem bjóða upp á annað eins landslag og útsýni – og örstutt í himnaríki. Himneskar Helgrindur Helgrindur kljúfa Snæfellsnes í tvennt eftir endilöngu og standa undir nafni sem hrikalegur fjallgarður. MYNDIR/ÓMB Ofan af Helgrindum fæst frábært útsýni yfir Kirkjufell og Grundarfjörð. Á veturna eru Helgrindur ísilagðar og minna helst á frystikistu. 1 9 . D E S E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.